Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Frægt fólk sem þú vissir ekki að væru tvíburar – Sjáðu myndirnar!

Frægt fólk sem þú vissir ekki að væru tvíburar – Sjáðu myndirnar!
Vin Diesel og Paul Sinclair

E News! tók saman lista yfir fræga ein­stak­linga sem ekki allir vissu að væru tví­burar.

Til gam­ans á þessum fína sunnu­degi má hér fyrir neðan skoða ljós­myndir af frægum ein­stak­lingnum sem senni­lega fáir vissu að ættu sér tví­bura­systkin.

Chloe og Noah Schnapp

Chloe og Noah Schnapp

Stranger Things stjarnan Noah Schnapp á tví­bura­syst­ur­ina Chloe en hin ungu systk­ini eru mjög náin.

Christopher og Parker Posey

Christopher og Parker Posey

Gam­an­lei­konan Parker Posey á tví­bura­bróð­ur­inn Christopher sem starfar sem lög­maður í Atlanta.

Daniel og Jon Heder

Daniel og Jon Heder

Hvað er betra en Jon Heder? Tveir Jon Heder! Daniel Heder er víst ansi vanur að þurfa að skrifa eig­in­hand­ar­á­rit­anir fyrir ein­eggja tví­bura­bróður sinn, Napoleon Dynamite leik­ar­ann Jon Heder. Alls eru Heder systk­inin sex tals­ins.

Giovanni og Marissa Ribisi

Giovanni og Marissa Ribisi

Leik­ar­inn sem lék skrítna bróður Phoebe í Friends, Giovanni Ribisi á tví­bura­syst­ur­ina Marissu en hún er leik­kona eins og brósi.

Hunter og Scarlett Johansson

Hunter og Scarlett Johans­son

Marvel-leik­konan og söng­konan Scarlett Johans­son á tví­bura­bróð­ur­inn Hunter. „Ég finn svo mikla teng­ingu við hann. Hann er með hjarta úr gulli,“ sagði Scarlett í við­tali um árið.

Jacqueline and Jill Hennessy

Jacqueline og Jill Hennessy

Rit­höf­und­ur­inn og sjón­varps­frétta­konan Jacqueline Hennessy þykir svo lík tví­bura­systur sinni, Crossing Jordan leikkon­unni Jill Hennessy, að hún þarf ítrekað að útskýra fyrir aðdá­endum Jill að hún sé systir hennar. Fæstir trúa því þó.

Jake og Joseph Fiennes

Jake og Joseph Fiennes

Hinn huggu­legi stór­leik­ari Joseph Fiennes á sér tví­eggja tví­bura, hann Jake, sem er stór­stjarna á sviði skipu­lagn­ingar á landi og auð­lyndum þess, í heima­land­inu Bret­landi. Alls eru Fiennes sex tals­ins en sá elsti, Ralph er einnig leik­ari eins og Joseph.

Javon Walton og Jaden Walton

Javon Walton og Jaden Walton

Euphoria-stjarnan Javon Walton á ein­eggja tví­bura­bróður að nafni Jaden en hann virð­ist hafa meiri áhuga á íþróttum en leik, sam­kvæmt Instagram-reikn­ingi hans.

Joselin og Judy Reyes

Joselin og Judy Reyes

Leikkon­urnar Joselin og Judy Reyes eru tví­eggja tví­burar en þær hafa aðeins einu sinni leikið saman en það var í þætti Scrubs.

Joy og Eva Green

Joy og Eva Green

Franska leik­konan og fyr­ir­sætan Eva Green á tví­bura­systur að nafni Joy. Samkvæmt Evu kom þeim frekar illa saman þegar þær voru yngri en eru nán­ari í dag. Joy er gift ítölskum greifa og býr með honum og börnum þeirra og passar upp á vín­ekrur þeirra. Ekki slæmt líf það.

Laverne Cox og M Lamar

Laverne Cox og M Lamar

Orange is the New Black stjarnan Laverne Cox á ein­eggja tví­bura að nafni M Lamar. Lamar er óperu­söngv­ari og tón­skáld en hann lék systur sína í einum þætti í Orange is the New Black en þá hugsar karakter Laverne til baka frá því að áður en hún fór í kyn­skipti­að­gerð. Að sögn Laverne eru systk­inin afar náin.

Michael og Ashton Kutcher

Michael og Ashton Kutcher

Michael og Ashton Kutcher eru tví­burar en Michael greind­ist með heila­lömun aðeins þriggja ára gam­all og fór í hjarta­að­gerð 13 ára. Árið 2012 sagði Ashton, sem heitir í raun Chris, frá heila­lömun bróður síns en Michael var reiður honum í þó nokkurn tíma því hann vildi ekki vera and­lit heila­löm­unar. En hann hefur nú fyr­ir­gefið brósa og segir nú að hann hafi í raun gert honum risa­greiða með þessu, því þetta hafi leyft honum að vera hann sjálfur. Michael er aðgerð­ar­sinni og þriggja barna faðir.

Nicholas Brendan og Kelly Donovan

Nicholas Brendan og Kelly Donovan

Buffy the Vampire Slayer leik­ar­inn Nicholas Brendan á ein­eggja tví­bura að nafni Kelly Donovan. Kelly hefur sjálfur leikið nokkur lítil hlut­verk, meðal ann­ars tví­fara bróður síns í tveimur Buffy-þáttum. Ómögu­legt er að sjá hvor er hvor á mynd­inni hér að ofan.

Patricia og Gisele Bündchen

Patricia og Gisele Bündchen

Ein fal­leg­asta kona heims, hin brasil­íska Gisele Bündchen, á sér tví­bura­systur og hún er ekki síður fal­leg, maður minn lif­andi. Patricia lifir rólegra lífi en systir hennar en hún sér um við­skipta­hlið Gisele og gerir það af mynd­ar­skap.

Rachel og Kiefer Sutherland

Rachel og Kiefer Suther­land

Rólegur Kiefer! 24-leik­ar­inn Kiefer Suther­land á tví­bura­systur að nafni Rachel. Að sögn móður þeirra voru þau farin að hugsa um hvort annað, slík voru tengslin.

Samantha og Charlotte Ronson

Samantha og Charlotte Ronson

Plötu­snúð­ur­inn Samantha Ronson, sem senni­lega er þekkt­ust fyrir að hafa átt í ást­ar­sam­bandi við Lindsey Lohan, á tví­bura­syst­ur­ina Charlotte, sem er tísku­hönn­uður. Mark Ronson tón­list­ar­maður, er eldri bróðir þeirra, þannig að það er gott í þessu geni.

Sami og Rami Malek

Sami og Rami Malek

Ósk­arsverð­launa­leik­ar­inn Rami Malek á sér tví­bura­bróður að nafni Sami. Þegar Rami og Sami voru yngri voru þeir vanir að þykj­ast vera hvor annan en þeir hafa orðið ólík­ari með tím­anum að sögn Sami, sem starfar sem kenn­ari.

Vin Diesel og Paul Sinclair

Vin Diesel og Paul Sinclair

Fast and the Furious leik­ar­inn Vin Diesel er tví­eggja tví­buri. Bróðir hans heitir Paul Sinclair en hann hefur alltaf passað vel upp á einka­líf sitt og því er lítið vitað um hann annað en að hann aðstoðar tví­bura­bróður sinn stundum í vinn­unni.

Wade og Alanis Morissette

Wade og Alanis Moris­sette

Kanadíska stór­söng­konan Alanis Moris­sette á tví­bura­bróð­ur­inn Wade, sem er sjálfur tón­lista­maður og jóga kenn­ari.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Menning

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Nýtt bóka­for­lag vill efla íslensku­lestur meðal fólks af erlendum upp­runa

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar

Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu

Myndband
Menning

Luthers­son frum­sýnir blóð­uga ást­ar­sögu í eyði­mörk Kali­forníu