Hin glæsilega og hæfileikaríka söngkona Elísabet Ormslev rak heldur betur upp stór augu þegar hún kom heim eftir að hafa skemmt landanum í gærkveldi. Hún deilir raunum sínum með fylgjendum á Twitter.
Á meðan Elísabet var til vinnu hafði eiginmaður hennar hafði átt náðugt kvöld heima fyrir og ákveðið að prófa eitthvað nýtt. Kappinn hafði hlaðið nýjum tölvuleik í Playstation tölvu heimilisins. Í forundran yfir vali eiginmannsins skrifar Elísabet:
„Leik sem gengur ekki út á neitt annað en að SLÁ GRAS?“
Engu nær og enn jafnáttavillt skrifar hún:
„Ég veit ekki hvort að þetta sé algjör steypa eða algjör snilld. Hann er allavega 10/10 zen og í algjörri núvitund maðurinn.“
Hér að neðan má sjá færslu Elísabetar í heild:





















Athugasemdir