Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Sölvi varð fyrir áfalli í Kólumbíu: „Á einum degi hrynur því plan mitt um fyrsta skrefið til baka“

Sölvi varð fyrir áfalli í Kólumbíu: „Á einum degi hrynur því plan mitt um fyrsta skrefið til baka“

Sölvi Tryggva­son gefur út bók­ina Skuggi – Saga falls, útskúf­unar, upp­risu og upp­gjörs, hjá bóka­út­gáf­unni Sögur útgáfa, um miðjan dag í dag. 

Bókin fjallar um ósannar sögu­sagnir sem fóru á kreik um að Sölvi hefði brotið á þremur konum og þann gríð­ar­lega hvirf­il­byl sem skap­að­ist í kjöl­far máls­ins.

Mannlíf birtir nú brot úr bók­inni:

„Slaufað í annað sinn

27. des­em­ber 2021 – Medellín, Kólumbíu

Ég sit á kaffi­húsi í Laureles-hverf­inu í Medellín að morgni dags 30. des­em­ber þegar ég átta mig á því að leiðin til baka verði lengri og erf­ið­ari en ég hef haldið. Það hefur borist til fjöl­miðla að hlað­varpið mitt sé að fara af stað aftur og kvis­ast út hvaða við­töl ég sé að fara að setja í loftið. Fjöl­miðlar hafa sett sig í sam­band við við­kom­andi aðila og ekki líður á löngu þar til við­mæl­end­urnir biðja um það einn af öðrum að við­tölin við þá fari ekki í loftið. Fyrst Bogi Ágústs­son og svo Krummi í Mínus og Hermann Hreið­ars­son knatt­spyrnu­goð­sögn.

Á einum degi hrynur því plan mitt um fyrsta skrefið til baka eins og spila­borg. Það er veru­lega sárt að fá þessar beiðnir hverja á fætur annarri, enda eru öll þessi við­töl mjög góð og ég veit að allir höfðu við­mæl­end­urnir labbað úr við­töl­unum vit­andi að þau væru mjög vel heppnuð. Bogi var mjög sáttur og Krummi hafði bein­línis sagt við mig að það hefði verið eins og þerapía að sitja í við­tal­inu hjá mér. Hermann Hreiðars sagði að sér hefði fundið við­talið frá­bært og ég er sama sinnis. Hermann hringir í mig og gefur mér útskýr­ingar. Ég er á hót­el­her­berg­inu mínu í Medellín þegar hann hringir í gegnum Facebook messen­ger. Hann er allur hinn almenni­leg­asti en ég veit strax að erindið er það að hann vill ekki að við­talið okkar fari í loftið. Hann útskýrir fyrir mér að það sé búið að þrýsta á hann úr fleiri en einni átt og að knatt­spyrnu­hreyf­ingin sé öll log­andi hrædd eftir allt fárið í kringum KSÍ. Þó að ég sé ekki alveg sáttur skil ég hvaðan hann er að koma og að end­ingu verðum við ásáttir um að geyma við­talið og birta það mögu­lega síðar.

Þegar þarna var komið sögu sárn­aði mér þetta mjög og fannst þre­menn­ing­arnir vera að taka afstöðu gegn mér. Ég hafði ekki reiknað með þessum við­brögðum og tauga­kerfið fór á ákveð­inn hátt sex mán­uði aftur í tím­ann í end­ur­upp­lifun á slaufun­inni um vorið. Samkvæmt umfjöllun fjöl­miðla átti ég að hafa verið í gæslu­varð­haldi dag­ana sem ég tók við­tölin við Boga, Krumma og Hermann, sem aug­ljós­lega ætti að nægja til að stað­festa að hlut­irnir væru tals­vert öðru­vísi en haldið hafði verið fram.

En nú þegar rykið er sest sé ég þessa atburða­rás með öðrum augum. Miðað við stöð­una í þjóð­fé­lag­inu á þessum tíma var það mikil ein­földun af mér að halda að ég gæti bara sett þessa þætti í loftið og eng­inn segði neitt. Eftir á að hyggja er aug­ljóst að við­mæl­end­urnir yrðu settir í þá stöðu að verða ein­hvers konar and­lit fyrir end­ur­komu mína og að reið­asti hóp­ur­inn myndi setja á þá pressu. Auðvitað var þá ein­faldasta ákvörð­unin að bakka bara út. Eins og með svo margt í þessu ferli tók það mig tíma að setja mig í spor fólks sem ég var sár út í. Eftir að hafa gert það skil ég að það var aldrei neinn per­sónu­legur ill­vilji að verki eða löngun til að klekkja á mér eða taka afstöðu gegn mér.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Menning

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Nýtt bóka­for­lag vill efla íslensku­lestur meðal fólks af erlendum upp­runa

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar

Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu

Myndband
Menning

Luthers­son frum­sýnir blóð­uga ást­ar­sögu í eyði­mörk Kali­forníu