Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Dauðadeildaramman

Dauðadeildaramman

Belt­is­höggin dundu oft og tíðum á Velmu. Faðir hennar stjórn­aði heim­il­inu með harðri hendi og snemma byrj­aði Velma að hnupla hinu og þessu, enda ólst hún upp í fátækt. Með tím­anum tókst henni þó að kom­ast í náð­ina hjá föður sínum og með slægð tókst henni að vefja honum um fingur sér.

Velma var ekki öll þar sem hún var séð og því áttu margir eftir að kynn­ast þegar fram liðu stundir og ein­hverjir þeirra þurftu ekki að kemba hær­urnar.

Velma leit­aði ekki langt yfir skammt að fyrsta fórn­ar­lamb­inu.

Velma Barfield fædd­ist 23. októ­ber árið 1932 í dreif­býli Suður-Karólínu í Banda­ríkj­unum, en ólst upp í grennd við Fayetteville í Norður-Karólínu. Velma var næstelst barna Murphys og Lillie Bullard og elsta dóttirin. Murphy réð lögum og lofum á heim­il­inu og beitti ströngum reglum, en móðir Velmu var und­ir­gefin, lædd­ist með veggjum og bland­aði sér ekki í með­ferð heim­il­is­föð­ur­ins á börnum þeirra hjón­anna. Velma hafði þó ekki erft und­ir­gefni móður sinnar og fékk fyrir vikið ófá belt­is­höggin af hendi föður síns. Árið 1939 hófst skóla­ganga Velmu og fann hún í skól­anum ein­hverja hvíld frá þrúg­andi heim­ili sínu, en var úti­lokuð af hálfu sam­nem­enda sinna vegna fátæk­legs útlits.

Vegna þess hve Velma fann til fátæktar sinnar í skól­anum hóf hún að hnupla. Hún nældi sér í skot­silfur frá föður sínum, en færði út kví­arnar og var síðar staðin að hnupli frá öldruðum nágranna. En Velmu var ekki alls varnað og þegar hún var tíu ára sýndi hún ágæta hæfi­leika í körfuknatt­leik og lék með liði sem faðir hennar stýrði. Fyrir vikið varð Velma „upp­á­halds­dóttirin“ og með tíð og tíma og þó nokk­urri slægð tókst henni að fá frá föður sínum nán­ast allt það sem hugur hennar girntist, en síðar á lífs­leið­inni sak­aði hún hann um kyn­ferð­is­legt ofbeldi.

Ein­kunnir Velmu í fram­halds­skóla voru slakar, en hún eign­að­ist þar kærasta, Thomas Burke, svo ekki varð skóla­gangan alveg til einskis. Turtil­dúf­urnar fóru á stefnu­mót sam­kvæmt ströngum ákvæðum föður hennar og hitt­ust eins oft og við var komið, en að sjálf­sögðu með sam­þykki föður Velmu. Sautján ára ákváðu Velma og Thomas að segja skilið við frekara nám og ganga í hjóna­band, sem þau og gerðu þrátt fyrir and­mæli föður hennar.

Má segja að sú ákvörðun hafi komið föður Velmu í opna skjöldu og gerði hann allt sem hann gat til að koma í veg fyrir ráða­hag­inn. Þrátt fyrir and­mæli föður síns fór Velma sínu fram.

Heimavinnandi húsmóðir

Velma og Thomas eign­uð­ust tvö börn, Ronald Thomas og Kim, og Velma var heima­vinn­andi hús­móðir og naut hverrar stundar sem hún átti með börn­unum. Thomas vann ýmis störf og þrátt fyrir að þau hefðu ekki mikið fé milli hand­anna skorti þau ekk­ert. Velma kenndi börnum þeirra kristin gildi og hin unga, fátæka Burke-fjöl­skylda naut aðdá­unar vina og ætt­ingja. Var fjöl­skyldan af flestum þeim sem til þekktu talin til mik­illar fyr­ir­myndar og þá ekki síst hjónin ungu sem voru talin aldeilis aðdá­un­ar­verð í for­eldra­hlut­verk­inu. Þegar skóla­ganga barn­anna hófst lagði Velma sig fram um að taka þátt í lífi þeirra. Hún tók þátt í skóla­starfi eftir fremsta megni, gerð­ist sjálf­boða­liði í skóla­ferða­lögum og taldi ekk­ert eftir sér. En hún fann til ein­mana­leika þegar börnin voru í skóla og ákvað að fá sér vinnu til að fylla upp í tóma­rúmið og dreifa hug­anum.

Árið 1963 gekkst Velma undir leg­náms­að­gerð. Aðgerðin tókst vel en geðslag Velmu breytt­ist. Geð­sveiflur hennar urðu tíðar og bræðisköst algeng. Hún hafði áhyggjur af því að hún væri ekki eins eft­ir­sókn­ar­verð sem kona því hún gæti ekki eign­ast fleiri börn. Það var fleira sem Velmu gramd­ist og á meðal þess var útstá­elsi Thomasar. Hann eyddi löngum stundum utan heim­il­is­ins og um síðir komst Velma að því að hann var far­inn að halla sér að flösk­unni meira en góðu hófi gegndi. Það varð kornið sem fyllti mæl­inn og brestir komu í stoðir hjóna­bands­ins.

Árið 1965 lenti Thomas í bílslysi og fékk höf­uð­á­verka. Þaðan í frá fékk hann oft og tíðum höf­uð­verk og drykkja hans ágerð­ist. And­rúms­loftið á heim­il­inu ein­kennd­ist af rifr­ildi og deilum. Velma, yfir­buguð af streitu, var lögð inn á sjúkra­hús og henni gefið róandi lyf og vítamín. Eftir að hún kom heim að nýju jók hún smátt og smátt lyfja­neyslu sína og hljóp á milli lækna sem skrif­uðu upp á val­íum fyrir hana.

Dag einn þegar Velma kom heim úr vinn­unni kom hún að heim­il­inu í ljósum logum og Thomas fannst and­vana inni í svefn­her­bergi

Elds­voð­inn

Á sama tíma jókst áfeng­is­neysla Thomasar og sjúk­leg hegðun hans rak fjöl­skyld­una djúpt í fen upp­lausnar. Dag einn þegar Velma kom heim úr vinn­unni kom hún að heim­il­inu í ljósum logum og Thomas fannst and­vana inni í svefn­her­bergi og virt­ist sem reyk­eitrun hefði orðið honum að ald­urtila.

Sorg Velmu var skamm­líf og þrátt fyrir að heim­ilið eyði­legð­ist full­kom­lega í öðrum elds­voða skömmu síðar virt­ist hún hvorki vera buguð af sorg né full­kom­lega ráða­laus. Velma og börnin fluttu til for­eldra Velmu og Velma beið þar spennt eftir trygg­inga­bót­unum.

Í ljósi þess hve lítil áhrif elds­voð­inn og dauði Thomasar höfðu á Velmu, var ekki und­ar­legt að hún biði ekki boð­anna hvað nýtt hjóna­band áhrærði.

Skömmu eftir lát Thomasar kynnt­ist Velma ekkl­inum Jenning Barfield, en hann þjáð­ist meðal ann­ars af syk­ur­sýki og veiku hjarta. Þau gengu í hjóna­band en hjóna­bands­sælan varði ekki lengi og átti aukin lyfja­neysla Velmu stóran þátt í því. Skiln­aður var yfir­vof­andi enda nán­ast allt í molum í sam­lífi þeirra hjóna. En áður en til skiln­aðar kom, gaf hjarta Jennings sig og Velma virt­ist óhugg­andi; hafði misst tvo eig­in­menn, son­ur­inn var í hernum, faðir hennar með lungna­krabba og til að bæta gráu ofan á svart eyði­lagð­ist nýtt heim­ili hennar í elds­voða – enn og aftur.

Endurtekið efni

Velma flutti enn á ný heim til for­eldr­anna og skömmu síðar dró krabba­meinið föður hennar til dauða. Velma og Lillie, móðir hennar, rifust stöðugt og sum­arið 1974 var Lillie lögð inn á sjúkra­hús vegna alvar­legra kvið­verkja sem læknum tókst þó ekki að skil­greina. Eftir örfáa daga leið henni betur og hún sneri heim. Næstu jól var öll fjöl­skyldan saman komin, en skugga bar á jóla­gleð­ina því Lillie hafði áhyggjur af eilífum rukk­unum sem hún var að drukkna í. Þær voru til­komnar vegna bif­reiðar sem hún átti og hafði reyndar greitt að fullu.

Hún bað einn sona sinna að athuga málið, en innan nokk­urra daga tóku kvið­verkirnir sig upp aftur, verri en áður. Áður en son­ur­inn hafði kom­ist til botns í mál­inu var Lillie liðið lík. Árið 1975 var Velma dæmd til hálfs árs fang­els­is­vistar fyrir ávís­anafals, en af þeirri fang­els­is­dvöl fer ekki miklum sögum. Þegar hún losn­aði úr fang­elsi fékk hún starf við umönnun aldr­aðra hjóna, Montgomery og Dollie. Í jan­úar 1977 dó Montgomery, en Velma hélt áfram að sinna um Dollie. Í febr­úar lést Dollie í kjöl­far sárs­auka­fullrar maga­sýk­ingar.

Næsta starf Velmu fól í sér umönnun ann­arra aldr­aðra hjóna, Johns Henrys og eig­in­konu hans, Record, en Record hafði fót­brotnað og þurfti því sér­stakrar hjálpar við. Velma flutti því inn á heim­ili þeirra, en sam­skiptin ein­kennd­ust af sífelldu masi Record, sem fór afskap­lega mikið í taug­arnar á Velmu. Á meðal þess sem Dollie tal­aði um í tíma og ótíma var að fölsuð ávísun í hennar nafni hefði fund­ist í við­skipta­banka hennar. Hvað sem því leið þá fór John Henry að finna til slæmra kvið­verkja í apríl og um tveggja mán­aða skeið glímdi hann við alvar­lega maga­sýk­ingu. Að lokum höfðu veik­indin betur í þeirri glímu og John Henry and­að­ist í júní það ár.

Dularfullt símtal

Sama ár flutti Velma inn til Stuarts Taylor, ekkils sem hún hafði kynnst, en for­tíð hennar, lyfja­neysla og ávís­anafals gerði Stuart frá­hverfan hjóna­bandi. Skötu­hjúin eyddu miklum tíma í kirkju­tengt vafstur og á leið til einnar slíkrar sam­komu fékk Stuart heift­ar­legan maga­krampa sem fór versn­andi. Innan örfárra daga lést Stuart og ráð­þrota læknar mæltu með krufn­ingu.

Áður en nið­ur­staða krufn­ingar lá fyrir fékk Benson Phillips, rann­sókn­ar­lög­reglu­maður í Lum­berton, dul­ar­fullt sím­tal. Kona tjáði honum gráti næst að hún væri systir Velmu Barfield og full­yrti konan að Velma hefði myrt Stuart Taylor og fleiri. Forvitni Phillips var vakin. Læknar komust fljót­lega að þeirri nið­ur­stöðu að arsenik væri lík­leg­asta dán­ar­or­sök Stuarts, en þegar Velma var spurð út í málið var hún sak­leysið upp­málað.

En síðar fór að kvarn­ast úr vörn hennar og hún bug­að­ist. Að lokum ját­aði hún á sig morðin á Montgomery, John Henry og móður sinni og sagð­ist hafa viljað koma í veg fyrir að þau kæmust að því að hún hefði stolið frá þeim pen­ingum til að fjár­magna lyfjafíkn sína. Síðar ját­aði hún einnig á sig fleiri morð, þeirra á meðal morðin á Stuart Thomas og Jenning Barfield. Velma var dæmd til dauða og fékk við­ur­nefnið Dauða­deild­ara­mman, en hún var óþreyt­andi við að hjálpa sam­föngum sínum og gefa þeim ráð sem gerðu þeim kleift að aðlag­ast líf­inu í fang­els­inu. „Þegar ég geng inn í þetta her­bergi klukkan tvö í nótt verður það himna­hlið mitt,“ sagði Velma skömmu fyrir aftök­una, 2. nóv­em­ber 1984.

Hér má nálg­ast hlað­varps­út­gáfu frá­sagn­ar­innar um Velmu Barfield

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Menning

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Nýtt bóka­for­lag vill efla íslensku­lestur meðal fólks af erlendum upp­runa

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar

Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu

Myndband
Menning

Luthers­son frum­sýnir blóð­uga ást­ar­sögu í eyði­mörk Kali­forníu