Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Jón kveður Akureyri með trega: „Þetta er tími sem ég mun aldrei gleyma“

Jón kveður Akureyri með trega: „Þetta er tími sem ég mun aldrei gleyma“
Jón Gnarr og Jóga. Mynd: Facebook

Jón Gnarr kveður Akureyri með trega eftir tveggja og hálfs mán­aða dvöl þar sem hann lék í leik­rit­inu And Björk of course … .

Leik­ar­inn og grínist­inn Jón Gnarr skrif­aði færslu í gær á Facebook þar sem hann þakkar Akur­eyr­ingum fyrir tíma sinn á Akureyri síð­ustu tvo og hálfan mánuð í höf­uð­stað Norð­ur­lands.

„Þá er tveggja­og­hálfs mán­aðar dvöl minni á Akureyri lokið og ég kveð ynd­is­lega bæinn með nokkrum trega enda er dvölin búin að vera í alla staði algjör­lega mögnuð. Þetta er tími sem ég mun aldrei gleyma.“ Þannig hefst hin ein­læga færsla Jóns. Því næst mærir hann leik­ritið sem hann lék í með mynd­ar­brag.

„Ég er búinn að vera að vinna í Leik­hús­inu með frá­bæru sam­starfs­fólki. Akureyri má vera mikið stolt af leik­hús­inu sínu ! Leik­verkið And Björk of course … er íslensk klassík, það er bara þannig, verk sem mun lengi eiga brýnt erindi við sam­tíma sinn á hverjum tíma. Þor­valdur Þor­steins­son var magn­aður lista­maður og höf­undur og algjör­lega einn af höf­uð­skáldum Akur­eyrar. Megi nafn hans hljóma og end­ur­óma í verkum hans um alla fram­tíð. Ég hafði þá ánægju að kynn­ast Þorvaldi lít­il­lega og líka systur hans Jónu Lísu Þor­steins­dóttur og bróður hans Gunnari Þor­steins­syni.“

Jón telur svo upp allt það sem honum fannst frá­bært við Akureyri og „Eyja­fjörð­inn fagra“ en hann seg­ist muna sakna margs.

„Það er margs að sakna. Á þessum 10 vikum hef ég verið frekar virkur þáttak­andi í sam­fé­lag­inu hér. Ég hef labbað um 10 km á dag alla daga og hef því lík­lega gengið um 700 km um bæinn og nágrenni. Fékk til dæmis ein­staka leið­sögn Arnórs Blika um Eyrina en hann veit allt um húsin sem ég er svo for­vit­inn um. Þannig hef ég náð að kynn­ast bænum og íbúum hans á algjör­lega ein­stakan hátt. Ég er búinn að gera mörg kjara­kaupin í Fjöl­smiðjan Akureyri og lík­lega búinn að fara á milli 40 og 50 sinnum í Skóg­ar­böðin. Það er nátt­úr­lega algjör­lega ein­stök perla. Ég er líka búinn að heim­sækja aðra staði við Eyja­fjörð­inn fagra, Dalvík, Grenivík, Hrísey og ófáar ferðir á Hauganes.

Akureyri á svo sann­ar­lega fram­tíð­ina fyrir sér og á bara eftir að vaxa sem sam­fé­lag með sína sér­stöðu, sögu og menn­ingu.“

Að lokum telur hann upp nokkra ein­stak­linga sem hann vill þakka sér­stak­lega fyrir.

„Ég þakka öllum íbúum fyrir hlýjar mót­tökur og skemmti­legar stundir. Ég kom hingað togn­aður á hnéi en eftir með­ferð snill­ings­ins Andra Heiðars Ásgríms­sonar hjá Efling – sjúkra­þjálfun ehf. þá kenni ég mér nú einskis meins! Ég þakka þó mest stjórn­endum Menn­ing­ar­fé­lags Akur­eyrar, Mörtu Nordal og auð­vitað undra­barn­inu úr Hrísey,Grétu Kristínu Ómars­dóttur fyrir að hafa valið mig og gefið mér tæki­færi til að fá að vera með í þessu ein­staka og dásam­lega verk­efni. Takk, takk. Og takk elsku Þórunn Geirs­dóttir fyrir að hafa gengið mér í móður stað og dekrað mig og Klaka með hlýju þinni, útsjón­ar­semi og blíðu leið­sögn.Hlakka til að hefja svo æfingar og sýn­ingar í Borg­ar­leik­hús­inu.Ætla svo að reyna að koma aftur Norður við fyrsta tæki­færi.

Hlýja frá okkur Jógu. Klaki sendir líka kveðjur.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Menning

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Nýtt bóka­for­lag vill efla íslensku­lestur meðal fólks af erlendum upp­runa

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar

Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu

Myndband
Menning

Luthers­son frum­sýnir blóð­uga ást­ar­sögu í eyði­mörk Kali­forníu