Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Myndaði fyrsta eldgosið við Keili fyrir tilviljun – Hefur náð öllum gosunum síðan

Myndaði fyrsta eldgosið við Keili fyrir tilviljun – Hefur náð öllum gosunum síðan
Fyrstu þrjú gosin Mynd: Rebekka Guðgeirsdóttir

Ljós­mynd­ar­inn Rebekka Guð­geirs­dóttir mynd­aði fyrir til­viljun fyrsta eld­gosið í nýju eld­gosa­hrin­unni á Reykja­nes­inu og hefur síðan myndað öll sjö eld­gosin.

Rebekka Guð­leifs­dóttir

Mannlíf sagði frá því í dag að Rebekka Guð­geirs­dóttir ljós­mynd­ari hafi náð að mynda augna­blikið sem eld­gosið hófst við Sund­hnjúka­gíga þann 16. mars. Ástæðan fyrir því að Rebekka náði að festa augna­blikið á filmu er sú að frá því í febr­úar 2021 hóf hún að taka ljós­myndir af Keili heiman frá sér og birti á Instagram­reikn­ingi undir nafn­inu Dai­lyKeilir.

Sjá einnig: Náði upp­hafi eld­goss­ins á mynd – Sjáðu hið magn­aða augna­blik

Rebekka útskýrði verk­efni sitt í Facebook-færslu rétt áður en sjö­unda gosið síðan 2021 hófst á Reykja­nes­inu. Þar seg­ist hún hafa orðið afar þung­lynd á tíma­bili og fjar­lægst ljós­myndun eftir röð áfalla. Til að reyna að ná sér upp úr því ákvað hún að velja sér ein­falt ljós­mynda­verk­efni sem hún gæti unnið í dag­lega án mik­illar fyr­ir­hafnar. Keilir blasti við sjón­deild­ar­hring­inn frá heim­ili hennar og varð því fyrir val­inu. Hóf Rebekka því í febr­úar 2021 að taka ljós­myndir af Keili, grun­laus um að mán­uði síðar myndi fyrsta eld­gosið á svæð­inu í 800 ár hefj­ast og það fyrir framan linsur mynda­vélar hennar. Segir hún í færsl­unni að ekk­ert hefði getað und­ir­búið hana undir það sem koma skyldi en hún náði að mynda upp­haf allra eld­gos­anna og er því um ótrú­lega góðar sögu­legar heim­ildir að ræða. Segir hún að fyrstu þrjú gosin hafi ratað full­kom­lega inn á rammann en næstu þrjú ekki eins vel en hún haldi þó áfram að mynda Keili nær dag­lega.

Hér má sjá færslu Rebekku í heild sinni og ótrú­legar ljós­myndir hennar:

„Í til­efni þess að nú fer bráðum að koma sjö­unda gos á Reykja­nesi, langar mig að deila hérna nokkrum myndum. Fyrri sýnir öll sex gosin sem hingað til hafa átt sér stað síðan 19 Mars, 2021. Hin er sam­sett af fyrstu þremur gos­unum.

Eins og margir vita en langt því frá allir, þá byrj­aði ég, í febr­úar 2021, að taka myndir af Keili heiman frá mér, og hóf að deila þeim myndum á nýjum IG reikn­ingi undir nafn­inu Dai­lyKeilir.Þetta verk­efni varð til því ég var búin að vera mjög þung­lynd, hafði fjar­lægst ljós­myndun eftir röð áfalla, og mig lang­aði að hafa eitt­hvað ein­falt verk­efni fyrir stafni sem ég gæti sinnt dag­lega án mik­illar fyr­ir­hafnar, til að koma sköp­un­ar­gleð­inni von­andi aftur í gang.  Keilir blasti við á sjón­deil­ar­hringnum, og varð fyrir val­inu.Verk­efnið hófst tveimur vikum áður en fyrsta öfl­uga skjálfta­hrinan byrj­aði, gos hafði ekki átt sér stað á þessu svæði í meira en 800 ár, og það var bók­staf­lega ekk­ert sem hefði getað búið mig undir þá stórfurðu­legu atburða­rás sem hefur fylgt í kjöl­farið. Stundum finnur maður á sér að það eigi að gera eitt­hvað, og þá er oft bara best að fylgja inn­sæ­inu.Fyrstu þrjú gosin náðu enn­fremur að rata full­kom­lega inn í þann sýmetríska ramma (Keilir fyrir miðju) sem ég valdi strax í upp­hafi, og m.a.s röð­uðu sér þannig að ég gat sett saman þessa þrí­skiptu mynd þannig að öll sjást á sama tíma. Það var eitt­hvað göldrótt við það.Seinni þrjú hafa hins­vegar verið hund­leið­in­leg þrátt fyrir ákveðna feg­urð úr fjar­lægð, hafa valdið stór­skaða og alls­konar ves­eni, og eru líka alls ekk­ert „inni í ramm­anum“. Ég hef samt haldið áfram að mynda næstum dag­lega, enda oft bara svo mikil feg­urð í skýj­unum (verk­efnið var líka upp­haf­lega bara hugsað til að sýna fjöl­breyti­leikan í íslenska veðr­inu, svo bætt­ist við fjöl­breyti­leiki í sjálfu lands­lag­inu, enda sást nýr gígur vaxa yfir sjón­deilda­hringin meðan fyrsta gos var í gangi)Þegar gos númer tvö byrj­aði þá fór ég að fikta við að búa til timelapse mynd­bönd og síðan þá hefur það verið áherslan, sum þeirra hafið þið séð hér í þess­ari grúppu.Datt bara í hug að ein­hver hefði gaman af svona sam­an­burða myndum.“

Fyrstu sex gosin
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Menning

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Nýtt bóka­for­lag vill efla íslensku­lestur meðal fólks af erlendum upp­runa

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar

Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu

Myndband
Menning

Luthers­son frum­sýnir blóð­uga ást­ar­sögu í eyði­mörk Kali­forníu