Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Anna með strengi og lurkum lamin eftir flugferðina: „Sætin voru svona standard Ryanairsæti“

Anna með strengi og lurkum lamin eftir flugferðina: „Sætin voru svona standard Ryanairsæti“
Anna Krist­jáns.

Anna Krist­jáns­dóttir er farin í frí enda hálf­gerð vinna að njóta lífs­ins á Tenerife alla daga.

Í nýj­ustu dag­bók­ar­færslu húmorist­ans og vél­stjór­ans Önnu Krist­jáns­dóttur á Facebook, segir hún frá Spán­ar­ferð sem hún er farin í. Hún býr vissu­lega á spænskri eyju en er farin í frí á meg­in­landið. Flug­ferðin gekk sæmi­lega, þó sér­stak­lega ferðin inn í flug­vél­ina frá flug­vell­inum en hún var bara með tvær töskur og fór hratt í gegnum örygg­is­leit­ina og inn í flug­vél En svo tók við „stand­ard Ryana­ir­sæti“ eins og Anna kallar þau og sagði að þau væru „þröng og ekk­ert of þægi­leg, ekki hægt að hreyfa neitt, ekki einu sinni of stutta armana svo það varð ómögu­legt að gera sér sætið þægi­legt og átti ég þó heita í betri sætum.“ Flugið tók ekki langan tíma en Anna seg­ist hafa komið úr vél­inni með strengi og lurkum lamin.

Færsluna má lesa í heild sinni hér fyrir neðan:

„Dagur 1684 – Spán­ar­ferð.

Eins og sjá má af mynd gær­dags­ins, skrapp ég til Spánar í gær. Þið megið samt ekki mis­skilja mig, en þótt Kanarí­eyjar séu spænsk sjálf­stjórn­ar­svæði, þá líta margir íbú­anna ekki á sig sem Spán­verja heldur fyrst og fremst Kanarí­búa. En ég fór sem­sagt til meg­in­lands Spánar í gær og fengu Pétur fyrrum vinnu­fé­lagi minn og Ásta konan hans heið­ur­inn af því að aka mér á flug­völl­inn á henni Mjall­hvít minni.Ferðin gekk vel að því leyti að ég var ein­ungis með tvær cabintöskur, eina stóra og eina litla og því engin vand­ræði við inn­ritun, heldur fór ég beint inn að örygg­is­leit við komu á norð­ur­flug­völl­inn og hratt í gegn og hófst þar með bið eftir vél­inni, enda var ég komin á stað­inn tveimur tímum fyrir brott­för og var að sjálf­sögðu með þeim fyrstu eða fyrst til að bíða eftir vél­inni.Svo kom vélin, rúm­lega árs­gömul MAX vél frá Ryanair, en það breytti ekki því að sætin voru svona stand­ard Ryana­ir­sæti, þröng og ekk­ert of þægi­leg, ekki hægt að hreyfa neitt, ekki einu sinni of stutta armana svo það varð ómögu­legt að gera sér sætið þægi­legt og átti ég þó heita í betri sætum. Þvert á mig bak­borðs­megin var fjöl­skylda með tvo smá­stráka sem voru upp­á­tækja- og hávaða­samir. Að sjálf­sögðu var ekk­ert að því, en verra fyrir fólk sem ætlar að fá sér smá­lúr á leið­inni yfir hafið.Ferðin gekk vel, vorum ekki nema rúma tvo og hálfan tíma á leið­inni, en mikið var nú samt gott að kom­ast með strengi og lurkum lamin úr vél­inni og alla leið út þar sem Ásta vin­kona mín beið mín og héldum við heim til hennar hvar ég mun gista næstu vik­una, mér til ánægju.—–Þar sem ég er í fríi næstu sjö dag­ana, verða færsl­urnar mína eitt­hvað óreglu­legar meðan á Spán­ar­dvöl­inni stendur og ekk­ert endi­lega á réttum tíma. Á páska­dag breyt­ist klukkan og munu færsl­urnar mína birt­ast fyrr eftir það fyrir þá Íslend­inga sem búa norður í dumbs­hafi, en þá verð ég komin aftur suður til Para­dísar og regla komin aftur í líf mitt.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Menning

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Nýtt bóka­for­lag vill efla íslensku­lestur meðal fólks af erlendum upp­runa

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar

Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu

Myndband
Menning

Luthers­son frum­sýnir blóð­uga ást­ar­sögu í eyði­mörk Kali­forníu