„Þetta er ekkert nema fjárhagslegt ofbeldi” segir huldulistamaðurinn Blanksy, sem hefur eins og margir hafa tekið eftir sett sinn svip á bæði net- og raunheima undanfarna daga.Höfuðborgarbúar hafa sennilega margir tekið eftir verkum hins sjálfskipaða listamanns, en hann hefur sett mark sitt á auglýsingaskilti, bifreiðar og eignir fyrir ófáar milljónir, eins og fram kemur í fréttatilkynningu, allt til þess að vekja athygli á tölfræðinni 68 prósent.Um er að ræða óhefðbundna herferð frá ÖBÍ réttindasamtökum sem miðar að því að vekja athygli á því að rúmlega 68 prósent öryrkja ná ekki að mæta óvæntum útgjöldum, án þess að stofna til skulda. Þetta er um tvöfalt hærra hlutfall en hjá fólki á vinnumarkaði, samkvæmt rannsókn Vörðu, rannsóknastofnunar vinnumarkaðarins. Nokkrir þjóðþekktir einstaklingar hafa tekið þátt í herferðinni en nefna má Gumma Kíró og Hjálmar Örn sem dæmi.Óhætt er að segja að umrædd auglýsingaherferð hafi vægast sagt vakið athygli og vekur upp spurningar um hvar línan milli listar, markaðssetningar og skemmdarverka liggur.Nú stendur yfir formleg leit að Blanksy – þar sem heppinn netverji sem getur giskað á réttan aðila fær 100.000 kr. peningagreiðslu.
Sjá:
https://www.tiktok.com/@gummikiro/video/7352171033069243680
https://www.tiktok.com/@hjalmarorn110/video/7352206897644162336
https://www.tiktok.com/@eggertunnar/video/7352646657009388832
https://www.tiktok.com/@blanksy68
Þá má einnig sjá:
https://www.tiktok.com/@eggertunnar/video/7353375730534862113
https://www.tiktok.com/@ogvnathen/video/7352253286554160417





















Athugasemdir