Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Jón Gnarr er góður á þvottavél: Stærstu stundirnar þegar börnin fæddust og fluttu loks að heiman

Jón Gnarr er góður á þvottavél: Stærstu stundirnar þegar börnin fæddust og fluttu loks að heiman

Senn rennur út frestur til að safna lág­marks­fjölda með­mæl­enda, ætli maður sér að sækj­ast eftir því að verða for­seti Íslands. Á átt­unda tug manna hefur að und­an­förnu safnað með­mælum en nokkrir hafa nú þegar náð þeim áfanga og eru því gjald­gengir í fram­boð.

Mannlíf lagði spurn­inga­lista fyrir þeim fram­bjóð­endur sem náð hafa lág­marks­fjölda með­mæla, svo þjóðin fái að kynn­ast þeim betur. Munu svör fram­bjóð­end­anna vera birt á næstu dögum.

Jón Gnarr ríður á vaðið en í svörum hans má sjá ýmis­legt áhuga­vert. Þar kemur meðal ann­ars fram að upp­á­halds bók hans er rúss­neska skáldsagan Meist­ar­inn og Margar­íta eftir Mikael Bulgakov og að Þór­bergur Þórð­ars­son er hans helsta fyr­ir­mynd í líf­inu.

Hér má lesa svör Jóns:

Uppáhaldsstaður á Íslandi?

Ég elska skóga; Heiðmörk, Skorra­dal, Kjarna­skóg og auð­vitað Hall­orms­stað. Svo er ég mjög svag fyrir Þing­völlum.

Á forseti að sitja lengur en tvö kjörtímabil?

Já mér finnst það nokkuð opið.

Hvaða breytingar viltu sjá á stjórnskipan Íslands?

Þær grund­vall­ar­reglur sem gilda um stjórn og skipu­lag íslenska rík­is­ins finnst mér í heild­ina skýrar; þrí­skipt­ing rík­is­valds­ins, þing­ræð­is­reglan og þing­ræðið sem grund­vallað er í stjórn­ar­skrá Íslands. Alþingi hefur gert breyt­ingar á stjórn­ar­skránni til að skerpa á ákvæðum og forð­ast mis­skiln­ing. Ég vona að sú vinna haldi áfram. Nýja stjórn­ar­skráin er svo önnur og stærri umræða.

Hver er þinn uppáhalds forseti?

Frú Vigdís Finn­boga­dóttir. Hún hefur verið mér fyr­ir­mynd í líf­inu.

Finnst þér að gera eigi kröfu um fleiri fjölda með­mæl­enda fram­bjóð­enda til emb­ættis for­seta Íslands?

Ég er ekk­ert viss um það. Mér finnst ánægju­legt hversu mörg bjóða sig fram og finnst það merki um heil­brigt lýð­ræði. Mér sýn­ist líka flest eiga í fullu fangi með að upp­fylla þann með­mæl­enda­fjölda sem kraf­ist er og átta mig ekki alveg á til­gangi þess að fjölga þeim.

Hver er þín helsta fyrirmynd í lífinu?

Þór­bergur Þórð­ar­son.

Hver er uppáhaldstónlist þín?

Ég held að Ormurinn langi í flutn­ingi Fær­ey­inga á Ólavsvöku sé það flottasta lag sem ég hef heyrt.

Hefurðu neytt ólöglegra fíkniefna?

Já, það hef ég gert en mæli ekki með því.

Gerði Ólafur Ragnar Grímsson rétt með því að beita neitunarvaldinu á sínum tíma?

Já, það tel ég.

Hver var stærsta stundin í lífi þínu?

Þegar börnin mín fædd­ust og líka þegar þau fluttu loks að heiman.

Hver eru mestu vonbrigðin?

Að ekk­ert minna barna skyldi leggja fyrir sig öldr­un­ar­lækn­ingar.

Fallegasta ljóðið?

Völuspá. Enda eitt feg­ursta kvæði í heimi.

Besta skáldsagan?

Meist­ar­inn og Margar­íta eftir Bulgakof.

Hvað er það besta við Ísland?

Fólkið.

Kanntu á þvottavél?

Já, ég er meira að segja mjög góður á þvotta­vél

Ef þú ættir eina ósk, Íslendingum til hagsbóta, hver væri hún?

Að við höldum alltaf tryggð við sögu okkar, menn­ingu og tungu.

Að þínu mati, hvert er helsta hlutverk forseta Íslands?

Hann á að vera sam­ein­ing­ar­afl fyrir fólkið í land­inu.

Borðarðu þorramat?

Já með mik­illi lyst. Hákarl er sæl­gæti.

Ertu rómantísk/ur?

Já og nei. Mér finnst ég mjög róm­an­tískur en Jógu kon­unni minni finnst ég mætti bæta mig.

Í stuttu máli; hvers vegna ætti að kjósa þig til emb­ættis for­seta Íslands?

Gefa mér tæki­færi á að gera gagn og leggja mitt af mörkum til lands­ins sem ég elska.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Menning

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Nýtt bóka­for­lag vill efla íslensku­lestur meðal fólks af erlendum upp­runa

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar

Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu

Myndband
Menning

Luthers­son frum­sýnir blóð­uga ást­ar­sögu í eyði­mörk Kali­forníu