Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Haukur Morthens 100 ára – Heiðurstónleikar

Haukur Morthens 100 ára – Heiðurstónleikar
Haukur Morthens Mynd: Trausti Hafsteinsson

Hinn 17. maí næst­kom­andi verða liðin 100 ár frá fæð­ingu eins virtasta tón­list­ar­manns lands­ins, Hauks Morthens (17. maí 1924 – 13. októ­ber 1992). Af því til­efni verða stór­tón­leikar haldnir í Eld­borg­ar­sal Hörpu.

Aðstand­endur tón­leik­anna sendi frétta­til­kynn­ingu á Mannlíf en þar er meðal ann­ars farið yfir feril Hauks í stuttu máli:

„Ferðalag Hauks í gegnum tón­list­ina hófst þegar hann var aðeins aðeins 11 ára þegar hann kom fyrst fram með drengja­kór Reykja­víkur. 19 ára gam­all hóf Haukur atvinnu­feril sinn með hljóm­sveit Bjarna Böðv­ars­sonar og varð fljótt einn fræg­asti, ást­sæl­asti og áhrifa­mesti söngv­ari Íslands. Hann risti nafn sitt djúpt inn í annál íslenskrar tón­list­ar­sögu, ekki bara sem flytj­andi heldur sem frum­kvöð­ull og hug­sjóna­maður.“

Haukur Morthens

Þá segir einnig í til­kynn­ing­unni að Haukur hafi farið ótroðnar slóðir á ferli sínum:

„Haukur Morthens var marg­þættur hæfi­leika­maður sem bar marga hatta. Hann fór ótroðnar slóðir bæði heima og erlendis. sá fyrsti sem gerði dæg­ur­laga­söng að atvinnu og um leið fyrstur slíkra til að reyna fyrir sér á erlendum vett­vangi, hann var jafn­framt laga­höf­undur, hljóm­sveit­ar­stjóri, skrif­aði um tón­list í blöð og tíma­rit, flutti inn erlent tón­list­ar­fólk, hélt tón­leika og var með eigið útgáfu­fyr­ir­tæki um tíma. Haukur var  fag­maður og reglu­maður fram í fing­ur­góma.“

Í til­efni af afmæl­inu verður blásið til sann­kall­aðra stór­tón­leika í glæsi­leg­asta tón­leika­sal lands­ins, Eld­borg­ar­sal Hörpu, sunnu­dag­inn 26.maí, eins og það er orðað í til­kynn­ing­unni.    

Söngv­ar­arnir sem fram koma á tón­leik­unum eru ekki af verri end­anum en það eru þau Jógvan Hansen, Bogomil Font, Valdimar Guð­munds­son og Unnur Birna Björns­dóttir ásamt hljóm­sveit undir stjórn Karls Olgeirs­sonar. Sér­stakir gestir verða með­limir Karla­kórs Kjal­nes­inga. „Allt verður gert til að skapa huggu­leg stund í Eldborg til að heiðra minn­ingu meist­ara Hauks Morthens,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Valdimar Guð­munds­son, Bogomil Font, Unnur Birna og Jógvan

Að lokum segir í frétta­til­kynn­ing­unni: „Vertu með þegar við minn­umst og gleðj­umst yfir arf­leifð eins ást­sælasta dæg­ur­laga­söngv­ara Íslands Hauks Morthens. Hægt er að næla sér í hér og í miða­sölu Hörpu þar sem sím­inn er 5285050.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Menning

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Nýtt bóka­for­lag vill efla íslensku­lestur meðal fólks af erlendum upp­runa

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar

Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu

Myndband
Menning

Luthers­son frum­sýnir blóð­uga ást­ar­sögu í eyði­mörk Kali­forníu