Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Baldur varð bóndi 13 ára gamall: „Felix er frábær heimilis DJ“

Baldur varð bóndi 13 ára gamall: „Felix er frábær heimilis DJ“
Baldur Þór­halls­son for­seta­fram­bjóð­andi

Baldur Þór­halls­son er mjög heima­kær og kann ekki aðeins á þvotta­vél, heldur þurrkara líka. Hann er alæta á tón­list og segir Felix frá­bæran „heim­ilis Dj“. Upp­á­halds ljóð Baldurs er ljóð eftir maka hans, Felix Bergsson og stærstu stund­irnar í lífi hans eru barn­eign­irnar og barna­börnin.

Upp­á­halds­staður á Íslandi?

Ég er alinn upp á bænum Ægissíðu í Rang­ár­valla­sýslu og er mjög heima­kær
maður. Bærinn er enn í eigu fjöl­skyldu okkar og þangað er alltaf gott að
koma. Hér koma auð­vitað margir staðir til greina, en ég væri að skrökva
ef ég segi eitt­hvað annað en það.

Á for­seti að sitja lengur en tvö kjör­tíma­bil?

Enginn leið­togi er ómissandi og reglu­leg end­ur­nýjun kjör­inna full­trúa er
merki um heil­brigt lýð­ræði. Að lokum er það hins vegar þjóðin sem ræður
því hversu lengi vald­hafar sitja í sínum stólum. Við höfum þó nokkur
dæmi um að for­setar sitji lengur en tvö kjör­tíma­bil og hlotið tölu­vert
fylgi í fleiri en tvö kjör­tíma­bil. Hvort að for­seti eigi að sitja lengur
en tvö kjör­tíma­bil er því alltaf ákvörðun þjóð­ar­innar, og ég treysti
þjóð­inni full­kom­lega fyrir því verk­efni.

Hvaða breyt­ingar viltu sjá á stjórn­skipan Íslands?

Ég myndi vilja sjá aukna vald­dreif­ingu tryggða svo að heima­menn fái
meiru ráðið um sín mál­efni. Ákvarð­anir eiga að vera teknar sem næst þeim
sem þær ákvarð­anir hafa áhrif á.

Hver er þinn uppáhaldsforseti?

Nelson Mandela.

Finnst þér að gera eigi kröfu um fleiri fjölda með­mæl­enda
fram­bjóð­enda til emb­ættis for­seta Íslands?

Ég tel að við þurfum að nálg­ast svona breyt­ingar mjög var­færn­is­lega. Að
margir vilji í fram­boð er ekki galli á lýð­ræð­inu, heldur
styrk­leika­merki. Ég tel að fjöldi ein­stak­linga sem hafa náð að safna
nauð­syn­legum með­mælum í und­an­förnum kosn­ingum hafi ekki verið of mik­ill.
Þá myndi ég segja það var­huga­vert að for­setar eða for­seta­fram­bjóð­endur
hafi aðkomu eða skoð­anir á því að gera öðrum erf­ið­ara fyrir að bjóða sig
fram.

Hver er þín helsta fyrirmynd í lífinu?

Afi minn, Þorgils Jónsson. Hann var bóndi á Ægissíðu þar til hann
veikt­ist og ég tók við búinu af honum 13 ára gam­all. Ég átt­aði mig
kannski ekki á því fyrr en löngu seinna hvað það var margt í hans fari
sem smit­að­ist yfir á mig, og ég tel mig mjög hepp­inn að hafa fengið
tæki­færi til þess að læra af honum.

Hver er uppáhaldstónlist þín?

Ég er algjör alæta á tón­list. En svo bý ég auð­vitað með Felix Bergs­syni
og fæ því bara frekar lítið að segja um tón­list­ar­val á heim­il­inu og í
bílnum. Felix er frá­bær heim­ilis DJ og ég kvarta ekki yfir þess­ari
verka­skipt­ingu.

Hefurðu neytt ólöglegra fíkniefna?

Nei.

Gerði Ólafur Ragnar Grímsson rétt með því að beita neit­un­ar­vald­inu á
sínum tíma?

Já. Ég tel það eina grund­vall­ar­skyldu for­seta að standa vörð um þjóð­ina.
Ef það ger­ist að Alþingi gengur fram af sér og setur lög í land­inu sem
ganga á grund­vall­ar­rétt­indi ein­stak­linga, þá ber for­seta að vísa þeim
málum til þjóð­ar­innar.

Fyrsta málið sem Ólafur Ragnar synj­aði stað­fest­ingu fjall­aði um
fjöl­miðla. Fjöl­miðla­frelsi er horn­steinn lýð­ræðis í land­inu og hvers
kyns tak­mörkun á starf­semi þeirra er mál sem á heima hjá þjóð­inni sem
svo tekur afstöðu með eða á móti.

Mér finnst svo það sama eiga við í málum þar sem gjá hefur mynd­ast milli
þings og þjóðar. Þar ætti for­seti að beita sér þannig að nið­ur­staða
fáist sem fólkið í land­inu getur unað við. Icesave málin voru t.d.
þannig vaxin og Ólafur Ragnar gerði rétt þar.

Hver var stærsta stundin í lífi þínu?

Stærstu stund­irnar voru að eign­ast börn og barna­börn, að sjálf­sögðu. Það
er alveg ein­stök lukka í líf­inu að fá að njóta þess að fylgj­ast með
börnum sínum vaxa og dafna og fá svo barna­börn í hend­urnar. Það jafn­ast
ekk­ert á við það.

Hver eru mestu von­brigðin?

Júró­visjón. Aftur og aftur.

Fallegasta ljóðið?

Augun þín eftir Felix Bergsson.

Besta skáldsagan?

Bróðir minn ljóns­hjarta

Hvað er það besta við Ísland?

Íslensk nátt­úra er auð­vitað það besta við Ísland.

Kanntu á þvottavél?

Já. Og þurrkara líka!

Ef þú ættir eina ósk, Íslendingum til hagsbóta, hver væri hún?

Ég myndi vilja sjá jákvæð­ari og lausn­ar­mið­aðri umræðu. Mér finnst ég
skynja aukna skautun í sam­fé­lag­inu. Mér finnst hópar vera að drag­ast frá
hvorum öðrum frekar en hitt og tel það mjög var­huga­verða þróun. Mín eina
ósk væri því að þjóð­fé­lags­um­ræða færð­ist í jákvæð­ari bún­ing sem yrði svo
til þess fleiri tæki þátt í umræðum um sam­fé­lags­mál. Lyk­ill­inn að góðum
lausnum á flóknum málum sem eru á sveimi í dag og munu koma upp í
fram­tíð­inni er aðkoma sem allra flesta að slíkum lausnum. Jákvæðni og
lausn­ar­miðuð umræða er þannig algjört lyk­il­at­riði og eitt­hvað sem
for­set­inn getur og á að beita sér fyrir.

Að þínu mati, hvert er helsta hlutverk forseta Íslands?

Helsta hlut­verk for­seta er að veita stjórn­völdum aðhald, t.d. við myndun
rík­is­stjórna. Þess vegna má for­seti aldrei verða með­virkur með öðrum
vald­höfum í land­inu. Forseti er eini þjóð­kjörni full­trúi þjóð­ar­innar og
er því eini emb­ætt­is­mað­ur­inn sem er í beinu og milli­liða­lausu sam­bandi
við þjóð­ina.

Hann þarf alltaf að vera til­bú­inn til þess að taka í neyð­ar­hem­il­inn ef
Alþingi eða fram­kvæmda­valdið fer fram úr sér í sínum störfum.

Borðarðu þorramat?

Já. Ég borða mjög mik­inn þorra­mat.

Ertu rómantísk/ur?

Já. Mér finnst ég hafa staðið mig býsna vel í því í gegnum árin. Hvort
að mér hafi raun­veru­lega tek­ist það eða að Felix taki bara vilj­ann fyrir
verkið, því verður Felix auð­vitað að svara. En jú, mér finnst það og mér
finnst það mik­il­vægt.

Í stuttu máli; hvers vegna ætti að kjósa þig til emb­ættis for­seta
Íslands?

Því ég vil standa vörð um lýð­ræðið, mann­rétt­indi allra í sam­fé­lag­inu,
menn­ingu okkar og sam­heldni með því að tryggja að landið sé og verði
alltaf ein heild. Það gerum við með því að draga það fram sem sam­einar
okkar frekar en það sem sundrar. Þá finnst mér mik­il­vægt að for­seti sé
aldrei með­virkur með ráð­andi öflum í land­inu og að allar hans ákvarð­anir
séu teknar með hag heild­ar­innar í huga.

Mannlíf lagði spurn­inga­lista fyrir for­seta­fram­bjóð­endur, svo þjóðin fái að kynn­ast þeim betur. Nú á aðeins einn fram­bjóð­andi eftir að svara spurn­inga­list­anum en það er ísdrottn­ingin sjálf, Ásdís Rán Gunn­ars­dóttir. Kjósi hún að svara mun Mannlíf birta svörin á næstu dögum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Forsetakosningar 2024

InnlentForsetakosningar 2024

Arnar Þór skuldar starfs­mönnum for­seta­fram­boðs­ins laun: „Ég vil fá skýr­ingar á því hvað þetta var“

Arnar Þór Jónsson, hæsta­rétt­ar­lög­maður og stofn­andi Lýð­ræð­is­flokks­ins hefur enn ekki greitt laun nokk­urra aðila sem störf­uðu við for­seta­fram­boð hans á þessu ári. Samkvæmt heim­ildum Mannlífs skuldar Arnar Þór Jónsson laun nokk­urra ein­stak­linga sem unnu við for­seta­fram­boð hans fyrr á árinu. Um er að ræða umtals­verðar upp­hæðir sam­kvæmt heim­ild­unum en Arnar Þór segir í sam­tali við Mannlíf eiga aðeins eftir að...
InnlentForsetakosningar 2024

Ástþór þög­ull um fjár­mögnun á fram­boði Ásdísar: „Ég er lang­flott­asti for­set­inn“

Ástþór Magn­ús­son, sexfaldur fram­bjóð­andi til for­seta Íslands, vill ekki upp­lýsa strax hvort hann muni fjár­magna vænt­an­leg for­seta­fram­boð Ásdísar Ránar Gunn­ars­dóttur en hún lýsti því yfir kosn­inga­vöku sinni fyrr á þessu ári. „Ég er offisjalí búin að taka að mér frið­ar­málin, þannig að þið megið búast við mér á 4-8 ára fresti næstu 30 árin,“ sagði for­seta­fram­bjóð­and­inn og fyr­ir­sætan einnig. „Ég...

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Menning

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Nýtt bóka­for­lag vill efla íslensku­lestur meðal fólks af erlendum upp­runa

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar

Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu

Myndband
Menning

Luthers­son frum­sýnir blóð­uga ást­ar­sögu í eyði­mörk Kali­forníu