Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Kynnir hugvíkkandi efni fyrir Íslendingum – Upplifði sjálfan sig sem Miklahvell

Kynnir hugvíkkandi efni fyrir Íslendingum – Upplifði sjálfan sig sem Miklahvell

Birgir Örn Sveins­son seg­ist hafa kynnst sjálfum sér upp á nýtt þegar hann var nærri fjóra sól­ar­hringa í algjöru myrkri án matar. Birgir, sem er nýjasti gest­ur­inn í podcasti Sölva Tryggva­sonar, segir stóran hluta vanda­mála nútíma­manns­ins stafa af allt of miklu áreiti á skyn­færin, sem ræni okkur því að geta slakað almenni­lega á:

„Ég eyddi nýlega fjórum nóttum og þremur dögum inni í her­bergi án nokk­urrar birtu. Svo­kallað „dark retr­eat“, þar sem þú ert í algjöru myrkri og veist ekki hvort það sé dagur eða nótt. Ég ákvað líka að fasta yfir þennan tíma til þess að úti­loka öll áreiti frá skyn­fær­unum. Þetta tók auð­vitað á, en það sem mér fannst merki­leg­ast var hvað mér byrj­aði að líða vel yfir því að vera laus við allt þetta áreiti sem dynur á okkur. Ég sat bara eða lá og á ein­hverjum punkti átt­aði ég mig á því að það eina sem ég þyrfti að gera væri að slaka almenni­lega á og mæta sjálfum mér. Það getur gerst að lík­am­inn fram­leiði svo mikið melatónín að hann fer á end­anum að brjóta það niður í DMT, sem er hug­víkk­andi efni sem lík­am­inn getur fram­leitt sjálfur. Ég var ekki að gera þetta til þess að ná fram þessum áhrifum, heldur meira bara til að mæta sjálfum mér og skoða hvað er á bak­við allt áreitið og skil­yrð­ing­arnar. Við erum flest upp­full af spennu og kvíða, en þegar þú nærð að slaka alveg á ger­ast magn­aðir hlutir. Það fer ekki saman að vera ótta­sleg­inn og alveg slakur. Í slak­anum ferðu inn í þakk­læti og kær­leika og sérð hvað þessi ótti okkar er í raun órök­réttur.“

Birgir hefur upp­lifað margt í gegnum tíð­ina, en segir að eitt það magn­að­asta hafi verið þegar ver­und hans fór úr lík­am­anum og hann breytt­ist í vit­und sem upp­götv­aði svo sjálfa sig:

„Ég er nokkuð sam­færður um að Mikli­hvellur sé að ger­ast marg­sinnis á sek­úndu og þetta sé allt að ger­ast ennþá. Ég var fyrir sér­stakri reynslu fyrir ein­hverjum árum sem sat með mér. Þá hljóp ver­und mín út úr lík­am­anum og inn í rými sem ég gæti kallað „singula­rity“ eða eitt­hvað tóm. Ég var ekki ég og upp­lifði ekki mig, heldur bara ein­hvers konar vit­und. Svo þegar vit­undin upp­götvar sjálfa sig og segir „ég er“ þá sprakk hún í Mikla­hvelli og ég horfði á ver­öld­ina byggj­ast upp frá þessum hvelli og svo varð ég allt í einu maður og svo varð ég Biggi. Þessi lífs­reynsla tók um 45 mín­útur, en ég sá hana hægt og það fór allt tíma­skyn. Ég hef alltaf haft áhuga á Eðl­is­fræði og ef að Mikli­hvellur gerð­ist, þá þýðir það vænt­an­lega að þú sért þessi hvellur að ger­ast núna. Alheim­ur­inn er enn að þenj­ast út,“ segir Birgir og heldur áfram:

„Ég hef alltaf haft áhuga á eðl­is­fræði og mikið velt því fyrir mér hvernig alheim­ur­inn varð til. Það bendir margt til að fyrst hafi það verið þetta frum­hljóð „om“, sem síðan fellur niður í ljós og ljósið tvístr­ast í þessar bylgju­lengdir og þannig verða hlut­irnir til. Öll sköpun er ein­hvers konar tak­mörkun. Ég er að vinna við að gera tón­list og þegar ég sest niður við tölv­una eru allir mögu­leikar heims­ins opnir. En svo byrjar maður að tak­marka hljóðin og þannig verður sköp­unin til. Því meira sem maður tak­markar, því sér­hæfð­ari er sköp­unin. En í grunn­inn trúi ég á ein­ingu og að í grunn­inn séum við öll eitt og á ein­hvern hátt öll tengd. Það er bara erfitt að ná utan um það og finna það í raun og veru í dag­legum veru­leika.“

Birgir var einn sá fyrsti til þess að kynna hug­víkk­andi efnið Ayahuasca fyrir Íslend­ingum, eftir að hafa búið um tíma í Perú, þar sem hann lærði undir hand­leiðslu lækn­inga­manna í Amazon frum­skóg­inum:

„Ég fékk bara mjög skýr skila­boð um að ég ætti að fara og kynna þetta efni fyrir fólk­inu mínu á Íslandi. Það var verk­efni sem mér var ætlað og ég skil­aði því af mér, en hef tals­vert mikið stigið út úr þessum heimi á und­an­förnum árum. Ég hélt lengi athafnir þar sem mikið af fólki kom til mín og ég veit að það fólk hefur síðan tekið sína veg­ferð lengra og er að vinna með þessi efni. En ég kláraði mitt verk­efni þegar kemur að hug­víkk­andi efnum og hef ekki fundið mikla þörf fyrir að vinna með þetta á und­an­förum árum,“ segir Biggi, sem hefur sem fyrr segir upp­lifað mjög mikið og á veg­ferð sinni hefur hann sann­færst um það að við séum fjölvídd­ar­verur:

„Ég ætla að bjóða þér inn í nýja heims­mynd. Hvað ef við erum fjölvídd­ar­verur? Við vitum að það er miklu meira þarna úti en við sjáum og nemum. Það er vitað að skyn­færi okkar geta bara numið brot af þeirri tíðni sem er til. En ef við tengj­umst kjarna okkar nógu sterkt getum við farið að sjá og upp­lifa meira. Mín til­gáta er að við séum fjölvídd­ar­verur sem eru tengdar inn í marga veru­leika í einu. Egóið okkar aftengir okkur frá því að tengj­ast öllu og við þurfum ákveð­inn aðskilnað bara til þess að geta náð utan um til­ver­una. Hvar erum við stödd þegar okkur dreymir? Hvaðan koma til­finn­ing­arnar? Hvaðan koma hugs­an­irnar? Ég upp­lifi hlut­ina svo­lítið þannig að því meira sem ég veit, því sann­færð­ari verð ég um hvað við vitum rosa­lega lítið. Alheim­ur­inn er stór og vegir hans eru órann­sak­an­legir.“

Hægt er að nálg­ast við­talið við Birgi og öll við­töl og pod­köst Sölva Tryggva­sonar inni á sol­vi­tryggva.is

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Menning

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Nýtt bóka­for­lag vill efla íslensku­lestur meðal fólks af erlendum upp­runa

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar

Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu

Myndband
Menning

Luthers­son frum­sýnir blóð­uga ást­ar­sögu í eyði­mörk Kali­forníu