Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Hjólakóngurinn Hafsteinn Ægir:„Af hverju geta læknar ekki skrifað upp á hreyfingu fyrir sjúklinga?“

Hjólakóngurinn Hafsteinn Ægir:„Af hverju geta læknar ekki skrifað upp á hreyfingu fyrir sjúklinga?“
Haf­steinn Ægir kemur í mark. Mynd: Aðsend

Nýjast gestur þeirra Arnórs og Gunnars í Alkast­inu er Haf­steinn Ægir Geirsson. Haf­steinn hefur um ára­bil verið einn af fremstu hjól­reiða­köppum Íslands þar sem fer­ils­skrá hans sam­anstendur af fjöl­mörgum Ísland­meist­aratitlum í ólíkum greinum hjól­reiða; götu­hjól­reiðum, fjalla­hjólum og mal­ar­hjólum (e. gra­vel) svo eitt­hvað sé nefnt.

Spjallið hóst samt á sigl­ingum. Áður en Haf­steinn varð afreks­maður í hjól­reiðum var hann nefni­lega fremsti sigl­inga­kappi lands­ins og fór í tvígang fyrir Íslands hönd á Ólymp­íu­leik­ana í þeirri grein. Hann hefur sjó­manns­blóð í æðum og hefur aldrei fundið fyrir sjó­veiki eða ótta við það að vera úti á sjó. Þrátt fyrir að hafa ekki komið nálægt bátum í meira en ára­tug fékk Haf­steinn tæki­færi til þess að rifja upp gömlu hand­brögðin fyrir nokkrum árum. Þegar til kast­anna kom leið honum eins og hann hefði engu gleymt; lík­am­inn ein­fald­lega geymdi þessa þekk­ingu og kall­aði hana fram þegar til þurfti. Þarna lum­aði Gunnar líka á óvæntu útspili úr for­tíð­inni þegar hann við­ur­kenndi að hafa tekið skips­stjórn­ar­rétt­indi og punga­próf á sínum tíma til þess að stýra segl­báti sem hann átti. Segl­bát­ur­inn hvarf hins vegar við hálf dul­ar­fullar og fremur sorg­legar kring­um­stæður. Hlust­endur geta smellt á hlekkin hér fyrir neðan til þess að fá smá­at­riðin á hreint.

Í tengslum við fæðu­bót og nær­ingu velti Haf­steinn upp þeirri ágætu spurn­ingu: „Af hverju geta læknar ekki skrifað upp á hreyf­ingu fyrir sjúk­linga?“ Hann benti á að mikið af vanda­málum og van­líðan sem plaga nútíma­mann­inn væri sjálf­sagt hægt að upp­ræta með ein­faldri lík­ams­rækt og hreyf­ingu. Hins vegar virð­ist slag­síðan í dag vera lyfja­iðn­að­inum í hag þar sem sjúk­dómsvæð­ing og skyndi­lausnir sem hægt er að gleypa eiga mun frekar upp á pall­borðið en göngutúr eða sund­sprettur. Að sjálf­sögðu eru lyfja­lausnir nauð­syn­legar við ákveðnar aðstæður, en þegar 40 pró­sent af þýð­inu er orðið áskrif­endur af lyf­seðlum eru meiri lyf mögu­lega ekki rétta lausnin.

Eitt af því sem hjóla­í­þróttin hefur fengið mikla athygli fyrir í gegnum tíð­ina eru lyfja­mis­ferli. Sem iðk­andi og kepp­andi hefur Haf­steinn fengið sinn skerf af lyfja­prófum, sem hann hefur stað­ist full­kom­leg í hvert ein­asta skipti. Hins vegar mætti velta því upp hvort karl­menn sem komnir eru í seinni hálf­leik lífs síns og langar að auka lífs­gæði sín með því að vera virk­ari í lík­ams­rækt og hreyf­ingu, en eru mögu­lega þjak­aðir af bak­verkjum, búð­ings­hætti eða almennu getu­leysi, ættu að geta farið til læknis og fengið upp­á­skrifað testó­sterón. Reynsla og rann­sóknar sýna og sanna að inn­gjöf af testó­sterón getur haft gríð­ar­lega jákvæð áhrif á lífs­gæði mið­aldra manna (sam­þykktu allir mið­aldra karl­menn­irnir í stúd­íói Þvotta­húss­ins…).

Hjól­reiðar sem keppn­is­í­þrótt er frekar ungt sport á Íslandi og má segja að Haf­steinn hafi veið með alveg frá upp­hafi. Hann deili með okkur skemmti­legu aðferðum sem beita má á fleygi ferð í hóp af fólki við kasta af sér vatni á ferð. Nákvæmar lýs­ingar á því má heyra í við­tal­inu. Haf­steinn hefur líka flakkað aðeins á milli hjóla­fram­leið­anda og þrátt fyrir ítrek­aðar og útúr­snúnar spurn­ingar var ómögu­legt að fá Hafstein til þess að tala illa um neinn. Und­an­farin ár hefur hann verið TREK maður og í sein­ustu viku var hann svo lán­samur að fá í hend­urnar dýasta (og sumir segja flottasta) hjól lands­ins. Haf­steinn vann á tíma­bili hjá Lauf og þegar þeir ákváðu að gera inn­reið sína á götu­hjóla­mark­að­inn sá Haf­steinn sæng sína útbreidda og skipti alveg um gír; hann hopp­aði yfir til Toyota.

Ef þú vilt vita meira og allar helstu töl­urnar hjá einum besta hjólara Íslands­sög­unnar (VO2Max, max púls, FTP) þá er bara að smella á hlekk­inn hér fyrir neðan eða hlusta á við­talið í ein­hverri af þinni upp­á­halds steym­isveitu. Svo er um að gera að fylgja Þvotta­hús­inu á sam­fé­lags­miðlum og fá skila­boð um leið og nýtt við­tal er gefið út.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Menning

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Nýtt bóka­for­lag vill efla íslensku­lestur meðal fólks af erlendum upp­runa

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar

Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu

Myndband
Menning

Luthers­son frum­sýnir blóð­uga ást­ar­sögu í eyði­mörk Kali­forníu