Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Þórunn rýnir í íslenska fyndni í nýrri bók: „Sögurnar eru lyklar að horfnum hugsunarhætti“

Þórunn rýnir í íslenska fyndni í nýrri bók: „Sögurnar eru lyklar að horfnum hugsunarhætti“
Þórunn Jarla Valdi­mars­dóttir. Mynd: Róbert Reynisson.

Þórunn Valdi­mars­dóttir stendur fyrir tvö­földu útgáfu­teiti í Iðnó á morgun, sunnu­dag.

Einn fjöl­hæf­asti rit­höf­undur Íslands, Þórunn Valdi­mars­dóttir gaf út á dög­unum hvorki meira né minna en tvær bækur og það af sitt­hvoru tag­inu. Um er að ræða ann­ars vegar ljóða­bók­ina Fag­ur­boðar og hins vegar bókin Spegill íslenskrar fyndni – glettnin greind og skoðuð en í þeirri bók skoðar hún rit Gunnars Sig­urðs­sonar frá Selalæk, Íslenzk fyndi sem hann gaf út á fyrri hluta síð­ustu aldar, við miklar vin­sældir. Mannlíf ræddi stutt­lega við hinn dug­lega rit­höf­und.

Þú varst að gefa út bók ekki satt? Hvað get­urðu sagt mér um hana?

Þórunn: „Já, hún heitir „Spegill íslenskrar fyndni – glettnin greind og skoðuð“. Kjarni máls­ins er sá að mér leidd­ist að sjá eina fín­ustu grein íslenskrar menn­ingar liggja óbætta hjá garði.“

Hvernig datt þér í hug að fjalla um þetta efni?

„Þannig var að ég erfði öll bindi „Íslenskrar fyndni“ í útgáfu Gunnars frá Selalæk eftir eig­in­mann minn, Eggert Þór Bern­harðs­son sagn­fræð­ing. Þau voru nær lesin upp til agna, sem segir sitt um það hví­líkt nammi þetta þótti á sinni tíð. Ég var svo heppin að hljóta styrk frá Hagþenki og vatt mér þá í það að flokka og greina fyrstu tvö bindin, og vinna til end­ur­út­gáfu, með skýr­ingum. Hef sjaldan skemmt mér betur. Sögurnar eru lyklar að horfnum hugs­un­ar­hætti.“

Eru Íslend­ingar fyndin þjóð? Var hún það í gamla daga?

„Hverjum þykir sinn fugl fynd­inn. Sögurnar urðu geysi­lega vin­sælar, sem segir sitt um hve fyndnar þær þóttu. Svo gufaði gamla sveita­sam­fé­lagið upp og menn skömm­uð­ust sín eilítið fyrir hve frum­stætt það hefði verið. Það orð komst á að þessar bækur væru svo leið­in­legar að það væri í sjálfu sér fyndið. Ég skelli­hlæ af sumum sög­unum, kannski vegna þess að ég á sterkan kven­legg í Reykja­vík og gamla sam­fé­lagið heillar mig. Mér finnst sveita­lykt góð.“

En þetta er ekki eina bókin sem þú varst að gefa út, hvað get­urðu sagt mér um ljóða­bók­ina?

„Já ég er í skýj­unum yfir því að „Fag­ur­boðar“ hafa verið efstir á met­sölu­lista Eymunds­son yfir ljóð. Vonandi ekki bara af því að ég hef verið dug­leg að kaupa og gefa í kringum mig, hehe. Það var alls ekki hugsað þannig, sko … Ég hóa til útgáfu­teitis í Iðnó á morgun, sunnu­dag­inn 25. ágúst klukkan þrjú. Bækurnar verða þar til sölu á góðu verði. Öll inni­lega vel­komin sem nenna. Hljóm­sveitin Stálfaxi leikur fyrir dansi. Annars munu bæk­urnar fást í öllum helstu bóka­búðum lands­ins.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Menning

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Nýtt bóka­for­lag vill efla íslensku­lestur meðal fólks af erlendum upp­runa

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar

Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu

Myndband
Menning

Luthers­son frum­sýnir blóð­uga ást­ar­sögu í eyði­mörk Kali­forníu