Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Ragnar Sigurðsson fer yfir ferilinn: „Það braust út algjört brjálæði þegar við unnum“

Ragnar Sigurðsson fer yfir ferilinn: „Það braust út algjört brjálæði þegar við unnum“

Ragnar Sig­urðs­son seg­ist alltaf hafa upp­lifað ofur­at­hygli þegar hann var inni á vell­inum í stórum leikjum sem fót­bolta­maður. Ragnar, sem er nýjasti gest­ur­inn í podcasti Sölva Tryggva­sonar, er greindur með ADHD, en segir að það hafi aldrei háð sér þegar kom að stóru augna­blik­unum:

„Ég var alltaf þannig að ég gat verið með ofur­at­hygli þegar ég var inni á vell­inum, þó að ég sé með athygl­is­brest og hafi átt erfitt með að ein­beita mér fyrir utan völl­inn. Inni á vell­inum náði ég ein­hvern vegin yfir­leitt alltaf „laser-focus“ og gleymdi öllu öðru. Það er bara svo gaman að vera undir pressu og ég virka best í þeim aðstæðum. Ég held að athygl­is­brest­ur­inn birt­ist stundum þannig að manni leið­ist bara mjög mikið og nær þess vegna ekki að halda athygli og dettur bara út. Þegar ég fann fyrir leiki að ég væri stress­aður fannst mér það alltaf gott af því að þá vissi ég að ég væri til­bú­inn,“ segir Raggi, sem er greindur með ADHD og hefur tekið lyf við því í gegnum tíð­ina:

„Maður fær bara und­an­þágu til að taka lyfin. Ef þú ert greindur með Athygl­is­brest færðu leyfi til að nota þessi lyf, sem þú ann­ars mættir ekki nota. Kannski eru ennþá ein­hver lið eða lönd með for­dóma gagn­vart þessu og ég þurfti til dæmis að hætta að nota lyfin þegar ég var að spila í Rúss­landi. Það skipti engu þó að ég segði að mér liði betur af lyfj­unum og ég hætti bara að taka þau. Það þýddi bara að ég var aðeins steikt­ari en vana­lega!“

Í þætt­inum ræða Sölvi og Raggi um það hve stóran þátt sjálfs­traust og hug­ar­far spila í fót­bolta og Raggi segir að rétt hug­ar­far, trú og vilji sé algjört lyk­il­at­riði:

„Það mik­il­væg­asta í fót­bolt­anum er „attitude“, trú og vilji. Þú getur ekki unnið neitt ef þú trúir því ekki og lætur hug­ar­farið taka þig þangað. Auðvitað verður þú að geta eitt­hvað, en til þess að ná upp stemmn­ingu og sjálfs­trausti verður við­horfið að vera í lagi. Það var þetta sem heppn­að­ist full­kom­lega í lands­lið­inu þegar okkur gekk sem best. Jafnvel þó að það væri ein­hver sem var ekki besti vinur þinn utan vallar, þá bárum við svo mikla virð­ingu fyrir því að við værum í stríði saman og það voru allir 100%. Við vorum til­búnir að gera allt fyrir hvorn annan inn á vell­inum. Ég vildi að þeim sem voru að spila í kringum mig liði þannig að ef þeir stigu feil­spor, þá væri ég mættur til að redda því í allar áttir. Ég spil­aði alltaf minn besta leik þegar ég var algjör­lega að spila fyrir liðið. Við vorum til­búnir að fara í stríð með hvor öðrum. Hlaupa út um allt og vera til staðar ef ein­hver var að gera mis­tök,“ segir Raggi, sem talar í þætt­inum um dag­inn sem Ísland sló út England og hann var val­inn maður leiks­ins:

„Þetta var stærsti leikur okkar allra á ferl­inum. Trúin fór aldrei neitt, en ég man þegar við löbbuðum inn göngin fyrir leik hvað mér fannst þeir allir stórir. Ég hafði aldrei hugsað svona áður fyrir neinn leik á ferl­inum, en þegar við stóðum þarna við hlið­ina á þeim hugs­aði ég: ,,Shit hvað þeir eru allir stórir”. Svo byrjar leik­ur­inn og við fáum strax á okkur víti sem þeir skora úr og ég gjör­sam­lega brjál­að­ist. Akkurat á þessu augna­bliki hugs­aði ég að það væri ekki fræði­legur mögu­leiki á að við myndum tapa leiknum á ein­hverju svona dæmi. Ég hef aldrei horft aftur á leik­inn, en ef ég man rétt, þá tókum við miðj­una og negldum fram og fengum inn­kastið sem ég svo skor­aði úr. Þetta gerð­ist eins og það væri í „Slow motion“. Ég sá að þeir settu Wayne Rooney á Kára Árna, sem var algjört rugl og sá sem var að dekka mig (Kyle Walker) missti ein­beit­ing­una. Ég er ekki fljót­ari en hann og ekki sterk­ari en hann, en ég náði að losa mig og skora. Svo man ég bara að það braust út algjört brjál­æði þegar við unnum leik­inn og það er engin leið að lýsa því.“

Í þætt­inum talar Ragnar um hlut­verk varn­ar­manns­ins sem hann segir á ákveð­inn hátt auð­veld­ara en hlut­verk þeirra sem þurfa að búa til færi og mörk:

„Það er auð­veld­ara að vera varn­ar­maður en að vera framar á vell­inum, af því að hlut­verkið þitt er að eyði­leggja sóknir. Að vera skap­andi er miklu erf­ið­ara en að skemma. Það er auð­veld­ara að byggja hús en að skemma það og það er auð­veld­ara að eyði­leggja sam­bönd en að byggja upp góð sam­bönd. Ég held að það sé svo­lítið þannig í líf­inu almennt. En þó að það sé auð­veld­ara að vera varn­ar­maður af þessarri ástæðu, þá er að sama skapi meiri ábyrgð af því að mis­tökin eru sýni­legri. Ef mark­maður gerir mis­tök sjá það allir og það kostar mark. En því framar sem þú ert á vell­inum, því fleiri geta reddað þér ef þú gerir mis­tök.“

Ragnar hefur spilað í fjöl­mörgum löndum og það vakti til dæmis athygli þegar hann fór til Rúss­lands á hápunkti fer­ils­ins. Hann segir áfanga­stað­inn skipta máli þegar fót­bolta­menn skipta um lið og hann hafi til dæmis valið út frá áfanga­staðnum þegar hann skipti um lið eftir EM 2016:

„Það spilar alveg þó nokkurn þátt í ákvörð­un­inni þegar maður er að skipta um lið í hvaða borg maður er að fara. Ég tók á mig tölu­verða launa­lækkun til að fara til Fulham af því að mig lang­aði að vera í London. Ég hefði lík­lega ekki gert það ef þetta hefði verið önnur borg en London. En þegar þú lendir í því að liðið sem þú ert hjá vill losa sig við þig verður þú eig­in­lega að fara. Ef þú ert búinn að vera að spila illa ert þú kannski ekki með marga mögu­leika og þá er oft ekki mikið af mögu­leikum í stöð­unni. En ég held að fólk átti sig ekki alveg á því hvernig þetta gengur fyrir sig. En stundum sér maður eftir á að maður var kannski smeykur við að fara eitt­hvað af því að maður hafði for­dóma fyrir land­inu. Ég man til dæmis þegar ég fékk til­boð frá Maccabi Haifa í Ísrael. Það virk­aði allt mjög spenn­andi, en ég var bara hræddur við að fara til Ísraels út af öllum umfjöll­un­unum um stríð og það varð ekk­ert af því. En eftir því sem ég hef orðið eldri sé ég að maður getur ekki lifað lífi sínu hræddur og oft voru bestu ákvarð­an­irnar eitt­hvað sem maður ótt­að­ist fyrst.“

Hægt er að nálg­ast við­talið við Ragnar og öll við­töl og pod­köst Sölva Tryggva­sonar inni á sol­vi­tryggva.is

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Menning

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Nýtt bóka­for­lag vill efla íslensku­lestur meðal fólks af erlendum upp­runa

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar

Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu

Myndband
Menning

Luthers­son frum­sýnir blóð­uga ást­ar­sögu í eyði­mörk Kali­forníu