Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fjarstýringablús Gísla Þórs í dögun stafrænnar menningar – Ný ljóðabók komin út

Fjarstýringablús Gísla Þórs í dögun stafrænnar menningar – Ný ljóðabók komin út

Út er komin ný ljóða­bók eftir Gísla Þór Ólafsson er ber heitið Fjar­stýr­inga­blús í dögun staf­rænnar menn­ingar.

Gísli Þór Ólafsson

Bókin gefur inn­sýn í heim þar sem iðn­að­ar­þoka og gervi­greind hafa náð yfir og feg­urðin ekki sjá­an­leg nema í skjá­hjálmum. Hún leyn­ist samt enn þarna bak­við þok­una þótt hálfur hnött­ur­inn sé orð­inn að batt­er­ís­geymslu.

Hér er sviðs­myndin smá­vegis svört, en alltaf stutt í húmor­inn, sem er eitt af ein­kennum höf­und­ar­ins.

Bókin er 9. ljóða­bók höf­undar, en hann hefur einnig gefið út 5 hljóm­plötur undir flytj­anda­nafn­inu Gillon sem inni­halda m.a. lög við ljóð Geir­laugs Magn­ús­sonar, Gyrðis Elí­as­sonar, Ingunnar Snædal og Jóns Óskars.

Árið 2017 kom út bókin Vél­menna­dans og fjall­aði hún um vél­menni sem var að fóta sig í heimi mann­eskj­unnar. Að vissu leyti má segja að nýja bókin sé „upp­færsla“ á þeirri bók, nema nú er gervi­greindin fyr­ir­ferða­meiri.

Titill bók­ar­innar á ættir að rekja til lestrar á ljóðum Ísaks Harð­ar­sonar, en í ljóð­inu „Hafinu verður ekki breytt í for­rit“ úr bók­inni Síðustu hug­myndir fiska um líf á þurru frá árinu 1989 spratt fram þessi hug­mynd að tunglið væri eina raun­veru­lega fjar­stýr­ingin á hafið.

AFBRIGÐI VIÐ LJÓÐ EFTIR ÍSAK HARÐARSON

Tunglið er hin eina raun­veru­lega fjar­stýr­ing á hafið dettur mér í hug
er ég les ljóð Ísaks Harð­ar­sonar „Hafinu verður ekki breytt í for­rit“

gervi­greindin gæti ekki fundið þetta upp

hvernig fer það svo þegar það á að einka­væða hafið?

Fleiri ljóð úr bók­inni:

ÁUNNIR KOSTIR GERVIGREINDAR EÐA AUKINNAR TÆKNI

Við­ur­kenni að ég varð dáldið stjörnu­lost­inn er ég hitti C-3PO
en svo reynd­ist hann allt öðru­vísi í raun­veru­leik­anum heldur en í mynd­unum
hroka­fyllri og „fjar­læg­ari“ ein­hvern­veg­inn

þetta voru viss von­brigði

hann bauð mér samt uppá popp og kók
sagð­ist vera hold­gerv­ingur kvik­mynd­anna

fram að þessu hafði ég haldið að hann væri maður í bún­ingi
en nú er ég ekki viss

HÚSIN VORU AÐ HRUNI KOMIN
-ÚTTEKT

Húsin voru að hruni komin
bygg­ing­ar­full­trú­arnir, brynj­aðir eins og C-3PO, með fætur á hjólum
merkja við í ipa­d­inum
gefa ýmist grænt ljós eða rautt og algjör­lega óháð ástandi bygg­ing­ar­innar

gamlir smiðir eru við það að gef­ast upp
-er þetta fram­tíðin hugsa þeir

HUGLEIÐING UM GERVIGREIND – I

Þeir, eða það sem hefur mótað okkur (mark­aðs­hyggjan og allt það)
munu þeir eitt­hvað ráða við gervi­greind­ina
þegar hún tekur yfir

Í BANKANUM

Vél­mennið tók á móti mér
laust við alla gæsa­húð

það stýrði mér í gegnum þetta
virt­ist skilja þetta allt

ég skildi ekki neitt

-ef það kemur stríð, sagði vél­mennið, þá ýtirðu bara hérna

mér fannst þetta mjög skrítið og hefur þetta setið í mér síðan


Hér fylgir með lag við ljóð Gyrðis Elí­as­sonar „Óttu­söngur“ tekið af plöt­unni Ýlfur (2014). Ljóðið er úr bók Gyrðis Tvö tungl sem kom út árið 1989.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Menning

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Nýtt bóka­for­lag vill efla íslensku­lestur meðal fólks af erlendum upp­runa

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar

Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu

Myndband
Menning

Luthers­son frum­sýnir blóð­uga ást­ar­sögu í eyði­mörk Kali­forníu