Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Steinunn Ólína orti tækifærisgaldur gegn laxeldi fyrir norðan: „Ratið út villusauðir!“

Steinunn Ólína orti tækifærisgaldur gegn laxeldi fyrir norðan: „Ratið út villusauðir!“
Steinunn Ólína Þor­steins­dóttir Mynd: Facebook

Steinunn Ólína Þor­steins­dóttir orti tæki­fær­is­galdur gegn áformum um upp­setn­ingu eld­is­stöðva á Norð­ur­landi, og birti á Facebook.

Leik­konan og fyrr­ver­andi for­seta­fram­bjóð­and­inn Steinunn Ólína Þor­steins­dóttir birti í morgun magn­þrungna vísu eða tæki­fær­is­galdur eins og hún orðað það. Þar mót­mælir hún eld­is­stöðvum sem setja á upp víða á Norð­ur­landi með til­heyr­andi mengun og raski.

Hefst færsla hennar á eft­ir­far­andi hátt:

„Nú er horfið Norð­ur­land

Það á að breyta Siglu­firði, Ólafs­firði, Héð­ins­firði og Eyja­firði í eld­is­stöð fyrir 20 þús­und tonn af laxi. Þar á að fram­leiða næstum eitt pró­sent af öllum laxi sem er étinn í heim­inum. Fylla Siglu­fjörð, Ólafs­fjörð, Héð­ins­fjörð og Eyjaförð af úrgangi úr hund­rað­asta hverjum laxi sem fæð­ist á jörð­inni. Hundrað og þrí­tug­asta hverjum, ef við viljum vera nákvæm. Norð­lend­ingar eign­ast 0,7% af öllum laxa­skít á jörð­inni.“

Steinunn Ólína fer því næst í útreikn­inga og sýnir hversu lít­ill ágóð­inn er fyrir íbúa á svæð­inu:

„Í stað­inn er íbúum á svæð­inu lofað 10,1% af öllum arð­greiðslum af lax­eld­inu í sam­eig­in­lega sjóði til að mennta börnin, hýsa gam­al­mennin, reka menn­ing­ar­mið­stöðvar, stofur og setur. Ef allt gengur að óskum þýðir þetta að 30.000 íbúar fá um 200 millj­ónir á ári í sinn hlut á hverju ári upp úr 2030. Það eru 6500 krónur á mann. Einn bröns á Cafe Berlín á Akureyri, þrjú korter hjá grunn­skóla­kenn­ara eða ein bleik Smiley World Cheerful Moments skóla­taska fyrir leik­skóla­barn. 6500 krónur á mann.

Í þessu ljósi orti ég tæki­fær­is­galdra til hvers­dags­brúks fyrir landa mína.

Best er að mæla þá af munni fram með hægð að morgni dags.“

Og hér svo lesa gald­ur­inn:

Hættið, hlustið,

helgar meyjar,

hetjur allar,

vættir, vinir,

um ver­öld alla.

Heyrast látið hávær köll

svo hlíðar muni skjálfa,

heitið svo á hellatröll

að hirta þessa bjálfa.

Nú kalla ég á lóm­inn!

Litlu kær­leiks­blómin!

Bölvaður heimsósóm­inn!

Tófur allar takið þá

bítið þá og bergið á.

Hjarnið kalt,

veðrið svalt

ull­ar­lagður vakir á vír.

vís er dauð­inn dýr,

vís er dauð­inn dýr.

Enginn það tekur

sem lífið vekur,

nema fíflið og fán­inn,

kján­inn og bján­inn.

Með borða um hjartað bittu það!

blíðan mín góð.

Fóstraðir fiskar

falskir um fljúga

firð­irnir fúlna

farið þá allt.

Ætt­kvíslir skar­ast

fyrn­ast, far­ast

allt er í heimi hallt

horfið allt.

Ræfl­arnir rupla,

gírugir greiða,

sveit­unga svíkja,

und­ir­menn strýkja,

berj­ast munu bræður

bónd­inn engu ræður

Megi þeir víkja

Megi þeir víkja

Engir munu elska þá sem Íslands­börnin svíkja

Sjúkir vilja selja roðið

svöngum er til veislu boðið

hel­sjúkt, marið, svellt og pínt

fyrir glópa­gullið fínt

Megi þeir víkja

Megi þeir víkja

Engir munu elska þá sem Íslands­börnin svíkja

Birtist ekki landið

Í blóð­inu þínu?

Sérðu ekki sál­ina

í sand­korni fínu?

Hvernig læk­ur­inn rennur,

árnar sig belgja,

vor­mó­inn syngur,

fold­ar­skart brennur.

Aldan rís

aldan hnígur

sólin rís

sólin sígur.

Hvert dag­mál er bæn!

um líf, um líf!

Norð­ur­landið nap­urt

nakta Vanadís!

Mikið er það dap­urt

með­tak ei þennan prís!

Barið er þitt blíða

bros og gullið tár

gylli­boðin bíða

blóðs í þús­und ár!

Lifandi eða dauðir!

Ratið út villu­sauðir!

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Menning

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Nýtt bóka­for­lag vill efla íslensku­lestur meðal fólks af erlendum upp­runa

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar

Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu

Myndband
Menning

Luthers­son frum­sýnir blóð­uga ást­ar­sögu í eyði­mörk Kali­forníu