Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Rakel fór brotin út í lífið eftir stöðuga höfnun í skólakerfinu: „Vildi ekki lifa lengur“

Rakel fór brotin út í lífið eftir stöðuga höfnun í skólakerfinu: „Vildi ekki lifa lengur“
Rakel Hlyns­dóttir Mynd: Trausti Hafsteinsson

Rakel Hlyns­dóttir einka­þjálf­ari segir stöðuga höfnun í mennta­kerf­inu hafa litað æsku sína og að það hafi tekið mörg ár að vinda ofan af því. Rakel, sem er nýjasti gest­ur­inn í podcasti Sölva Tryggva­sonar, seg­ist aldrei hafa passað inn í kerfið og að hún hafi stöðugt upp­lifað að hún væri ekki nóg: 

„Ég fékk grein­ingu 10 ára gömul, þá með ADD, en síðar ADHD. Mamma mín, sem átti tvö börn fyrir barð­ist fyrir því. Hún sá strax að ég var tals­vert öðru­s­vísi og mjög aktív. Ég fór ekki á lyf fyrr en ég var 12 ára, en það tók langan tíma að ná ein­hverju jafn­vægi þar, af því að lyfin tóku mikið af per­sónu­leik­anum hjá mér og ég varð flöt af þeim. Ég pass­aði engan veg­inn inn í skóla­kerfið og vildi bara vera að hreyfa mig og skapa. En var bara skipað að setj­ast á stól og gera stær­fræði. Manni leið ein­hvern vegin alltaf illa í skól­anum og það var aldrei verið að vinna með manni. Mér finnst almennt eins og að við hljótum að geta mætt börnum betur inn í skóla­kerf­inu og vinna með styrk­leik­ana þeirra. Það er ekki lög­mál að allir þurfi að vera góðir í stærð­fræði og þér á ekki að líða illa ef það er eitt­hvað sem þú átt erfitt með að læra. Ég er mjög fegin að dóttir mín passar betur inn í kerfið en ég, af því að ég man enn eftir höfn­un­inni sem ég fékk alls staðar og fannst ég aldrei nóg. Ég veit að fólkið sem vinnur inn í kerf­inu er að gera sitt besta, en það er ekki gott að barn upp­lifi stans­lausa höfnun inni í mennta­kerf­inu,“ segir Rakel og heldur áfram:

„Mér líður stundum eins og ég hafi farið pínu brotin út í lífið af því að mér var stans­laust sagt að ég væri ekki nógu góð. Það tók mig mörg ár að átta mig á því að ég væri nóg á mjög mörgum sviðum þó að ég hafi ekki passað inn í eitt­hvað stíft kerfi. Ég trúði því í mörg ár að ég væri heimsk og ómögu­leg bara af því að ég var ekki góð í ákveðnum fögum í skól­anum. Það má eig­in­lega segja að íþrótt­irnar hafi bjargað lífi mínu. Þar fann ég mig og var góð og komst í úrtak í lands­liðið og fleira sem fékk mig til að fara að trúa á sjálfa mig.“

Rakel æfði hand­bolta í mörg ár og stund­aði alls kyns hreyf­ingu og á end­anum ákvað hún ákvað að mennta sig sem styrkt­ar­þjálf­ari. En veg­ferð hennar tengd ADHD og lyfjum var alls ekki komin á enda­stöð:

„Eftir að ég eign­að­ist stelpuna mína og ákvað að mennta mig í Keili fór ég aftur á lyf og þá fannst mér þau virka vel. En svo fattar maður að lyf eru aldrei nein töfra­lausn og ef maður tekur ekki á öðrum þáttum sam­hliða lendir maður í vand­ræðum. Til að gera langa sögu stutta enda ég á því að fara á of stóran skammt af ADHD lyfj­unum í sam­ráði við geð­lækni og þá fóru hlut­irnir mjög hratt niður á við. Allt í einu var mér farið að líða eins og ég vildi ekki lifa og ég gat ekki sofið og á 3 mán­uðum var ég bara komin á mjög slæman stað,“ segir Rakel og heldur áfram:

„Ég man þegar ég heyrði í vin­konu minni og sagði henni að ég vildi bara deyja. Ég var búin að vera með grímu út á við, en van­líð­anin var orðin gríð­ar­leg og svo gat ég bara ekki lengur haldið áfram. Vinkona mín fór með mig á á bráða­mótt­töku geð­deildar, þar sem ég lagði allar varnir niður og sagði þeim að ég gæti ekki meira. Þar var farið yfir lyfin hjá mér og þau sáu strax að ég hafði verið á of stórum skammti af ADHD lyfjum sem gerðu það að verkum að ég var bara hætt að sofa, víruð og í raun hætt að vera ég sjálf. Ég trúi því að heil­brigð­is­starfs­fólk sé alltaf að gera sitt besta og að lækn­ir­inn sem skrif­aði upp á lyfin fyrir mig hafi verið að gera sitt besta. En það er aug­ljóst að þessi risa­skammtur af lyfj­unum hafði haft mjög slæm áhrif. En eftir þetta hófst alvöru bati hjá mér. Ég komst inn hjá geðteym­inu á Selfossi og byrj­aði í end­ur­hæf­ingu og hægt og rólega fór ég að ná alvöru bata. Ég var í end­ur­hæf­ingu í meira en ár og það er í raun það besta sem hefur komið fyrir mig. Ég fékk tæki­færi til að stilla líf mitt upp á nýtt og end­ur­skipu­leggja marga hluti.“

Rakel starfar sem einka­þjálf­ari og styrkt­ar­þjálf­ari og vinnur líka með eldri borg­urum í Hvera­gerði. Hún segir fólk kunna að meta hrein­skilni og að upp til hópa hafi fólk ekki áhuga á að vera fórn­ar­lömb og vilji taka ábyrgð á lífi sínu:

„Þegar maður hefur upp­lifað alvöru þung­lyndi fær maður aðra sýn á til­ver­una og meiri sam­kennd með öðru fólki. En það er þunn lína á milli þess að vera í sjálf­skær­leika eða sjálfs­vorkun. Fólk sem fest­ist í þung­lyndi þarf stundum á því að halda að gleyma sér og fá heið­ar­lega end­ur­gjöf. Það sem gaf mér mest þegar lífið var sem erf­ið­ast var að gleyma sjálfri mér og jafn­vel vera til staðar fyrir aðra. Maður ber á end­anum fulla ábyrgð á sjálfum sér og ég er alltaf að læra það betur og betur að sjálfs­á­byrgð er lyk­il­at­riði í líf­inu, enda er það ekki gott til lengdar að fest­ast í að vera fórn­ar­lamb. Þegar ég vinn með fólki vinn ég með það að fólk taki fulla ábyrgð á sjálfu sér, án þess að rífa sig niður fyrir það sem mætti vera öðru­vísi. En þegar ég fer yfir veg­ferð­ina mína er ég þakk­lát fyrir allt sem ég hef upp­lifað og það hefur gert mig að stærri mann­eskju.“

Hægt er að nálg­ast við­talið við Rakel og öll við­töl og pod­köst Sölva Tryggva­sonar inni á sol­vi­tryggva.is

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Menning

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Nýtt bóka­for­lag vill efla íslensku­lestur meðal fólks af erlendum upp­runa

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar

Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu

Myndband
Menning

Luthers­son frum­sýnir blóð­uga ást­ar­sögu í eyði­mörk Kali­forníu