Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Hamingjustund í Bæjarbíói á þriðjudaginn: „Einmanaleiki er eins og COVID-faraldur“

Hamingjustund í Bæjarbíói á þriðjudaginn: „Einmanaleiki er eins og COVID-faraldur“
Bæjarbíó

Ham­ingju­stund í Bæj­ar­bíói verður haldin á Ham­ingju­dögum í Hafn­ar­firði 17. sept­em­ber kl. 20:00.

„Ein­mana­leiki er eins og COVID-far­aldur, hann breið­ist hratt út og eykst svaka­lega,“ segir Linda Bald­vins­dóttir, sam­skipta­ráð­gjafi og mark­þjálfi. Talið sé að um fimmt­ungur Íslend­inga eldri en 67 ára upp­lifi sig oft eða stundum ein­mana. Linda segir að hún finni í ráð­gjöf sinni  mikið ójafn­vægi í nútíma­lífi fólks á öllum aldri. „Það er bara svo mikið að gera hjá fólki.“

Linda ætlar að sporna fótum við á ham­ingju­kvöldi í Bæj­ar­bíói 17. sept­em­ber. Und­ir­tónn­inn er alvar­legur, ein­mana­leik­inn en ham­ingjan verður í fyr­ir­rúmi á Ham­ingju­dögum í Hafn­ar­firði.

„Við ætlum að finna leið­ina að ham­ingj­unni. Tengsl, leiðir út úr ein­mana­leika og ræktun sjálf­skær­leika verða við­fangs­efnin,“ segir hún en við­burð­ur­inn hefst klukkan 20:00. 

Aðal­björg Stefanía Helga­dóttir, hjúkr­un­ar­fræð­ingur og höf­undur bók­ar­innar Einmana, fer yfir leiðir út úr ein­mana­leik­anum. Theodór Francis Birg­is­son, ráð­gjafi og viku­legur gestur í Bítinu á Bylgj­unni, talar um tengsl á léttum nótum. Sigga Kling, rit­höf­undur og fyr­ir­les­ari, gefur okkur leið­ina að ham­ingj­unni. Rósa Guð­bjarts­dóttir bæj­ar­stjóri opnar og Guðrún Árný söng­kona rammar kvöldið inn með því að stýra sam­söng og gleði. Sjálf talar Linda um sjálfs­ást.

„Við horfum í átt­ina að heil­brigði. Horfum raun­sætt á það að nútím­inn elur af sér kvíða og ein­mana­leika og gefum upp leið­ina að ham­ingju­rík­ara lífi,“ segir Linda.

Ham­ingju­dagar í Hafn­ar­firði standa yfir í sept­em­ber. Þeir eru nú haldnir í annað sinn en hug­myndin kvikn­aði í fyrra til að bregð­ast við ákveðnum vís­bend­ingum um að ham­ingju­stuð­ull lands­manna fari dvín­andi. Heilsu­bær­inn Hafn­ar­fjörður stendur fyrir fjöl­breyttum við­burðum til að efla jákvætt við­horf og stuðla að betri and­legri og lík­am­legri líðan – auka ham­ingj­una, að því er fram kemur í frétta­til­kynn­ingu.

Linda nefnir hvernig breytt fjöl­skyldu­gerð og tengsla­leysi sé afleið­ing nútíma­lífs­stíls. „Við erum öll svo upp­tekin. Það er alltaf svo brjálað að gera,“ segir hún og finnur það á eigin skinni. 

„Maður þarf að bjóða heim með góðum fyr­ir­vara. Ömmur og afar eru líka upp­tekin. Börnin koma ekki heim eftir skóla. Þau borða ekki með full­orðnum því íþrótta­iðkunin er jafn­vel á mat­ar­tíma,“ segir hún og horfir til breyttrar fjöl­skyldu­menn­ingar.

„Ég horfi til ungra kvenna í dag. Þær þora ekki segja frá því að þær séu búnar á því,“ segir hún um þá mörgu bolta sem þær þurfi að halda á lofti. Nú þurfi að staldra við, end­ur­skipu­leggja fjöl­skyldur, jafn­vel horfa til þess sem vel var gert hér áður.

„Ráðin mín eru: aft­ur­hvarf til for­tíðar þannig að það mynd­ist tími fyrir ein­ingu og tengsl. Þar sem við lærum að meta okkur sjálf út frá því sem við erum, ekki hvað við gerum,“ segir Linda og bætir við: „Við þurfum að elska okkur sjálf, læra að mynda tengsl og vera hluti af sam­fé­lagi þar sem við leysum vanda saman.“ 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Menning

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Nýtt bóka­for­lag vill efla íslensku­lestur meðal fólks af erlendum upp­runa

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar

Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu

Myndband
Menning

Luthers­son frum­sýnir blóð­uga ást­ar­sögu í eyði­mörk Kali­forníu