Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

400 grunnskólanemar festust í Vík í Mýrdal – Gengu heim í dag

400 grunnskólanemar festust í Vík í Mýrdal – Gengu heim í dag
Dugn­að­ar­krakkar! Mynd: Aðsend

Um fjögur hund­ruð nem­endur í Varm­ár­skóla luku í dag hring­ferð sinni um Ísland, þegar gengið var sem svarar fjar­lægð­inni milli Víkur í Mýrdal og Mos­fells­bæjar. Megnið af hring­veg­inum var hlaupið í gær þegar nem­endur skól­ans hlupu sam­an­lagt vel yfir eitt þús­und kíló­metra vega­lengd.

Hlaupið var í til­efni af evr­ópskri íþrótta­viku en að þessu sinni var ákveðið að setja það mark­mið að ná að hlaupa sem nemur öllum hring­veg­inum, Þjóðvegi 1, en það eru 1.321 kíló­metri.

„Það ein­fald­lega kvikn­aði sú hug­mynd að við gætum sett okkur sam­eig­in­legt mark­mið, ekki bara fyrir nem­endur, heldur starfs­menn líka,“ segir Jóhanna Jóns­dóttir íþrótta­kenn­ari við Varm­ár­skóla.

„Okkur finnst mik­il­vægt hér í skól­anum að skil­greina mark­miðin sem við viljum ná og vinna svo að því í sam­ein­ingu að ná þeim. Þetta varð að veru­leika í dag,“ segir Jóhanna. Allir hafi lagst á eitt við að ná mark­mið­inu. Ljóst hafi verið eftir gær­dag­inn að þrátt fyrir að bæði börn og starfs­fólk hefðu lagt mikið á sig, og farið þreyttir og glaðir heim, hefði ekki tek­ist að ná mark­mið­inu.

„Við náðum um þús­und kíló­metrum í gær. Það er eins og við hefðum náð til Víkur í Mýrdal, hefðum við farið norður fyrir. Þannig að það má segja að krakk­arnir hafi stoppað í Vík yfir nótt, en síðan náð að ganga heim í dag,“ segir Jóhanna hlæj­andi, en bætir síðan við: „Krakk­arnir gáfust ekki upp. Við kláruðum ekki hring­veg­inn í gær, en í dag voru allir til­búnir til þess að ljúka ætl­un­ar­verk­inu, ná mark­mið­inu. Við getum verið stolt af okkur í dag.“

Þetta fór þannig fram að nem­endur og starfs­fólk hlupu ákveð­inn hring á skóla­svæð­inu, svo­kall­aðan Hlé­garðs­hring, 450 metra leið. Hver hlaup­ari fékk punkt á hand­ar­bak fyrir hvern hring sem hlaup­inn var. Svo var vega­lengdin lögð saman. Nemendur hlupu mis langt, en þeir sem lengst fóru, hlupu tæpa 8 kíló­metra. Glaðir og þreyttir nem­endur fengu síðan frost­p­inna eftir langt hlaup.

Um 400 nem­endur í 1.-6. bekk eru í Varm­ár­skóla. Þetta eru krakkar á aldr­inum 6-11 ára.  

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Menning

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Nýtt bóka­for­lag vill efla íslensku­lestur meðal fólks af erlendum upp­runa

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar

Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu

Myndband
Menning

Luthers­son frum­sýnir blóð­uga ást­ar­sögu í eyði­mörk Kali­forníu