Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Ómar vill gráta

Ómar vill gráta
Ómar R. Valdi­mars­son Mynd: Þór Ægisson

Lög­mað­ur­inn Ómar Valdi­mars­son er í miklum vanda. Mál á hendur honum hrann­ast upp hjá Úrskurð­ar­nefnd Lög­manna­fé­lags­ins og hann gæti misst rétt­indi sín til að stunda lög­manns­störf. Hann hefur verið úrskurð­aður sekur um brot í starfi og einnig verið dæmdur fyrir að hafa fé af skjól­stæð­ingi sínum, konu sem slas­að­ist. Seinna var hann sak­felldur af Neyt­enda­stofu fyrir að hlunn­fara flug­far­þega sem fyr­ir­tæki hans ætl­aði að sækja bætur fyrir.

Ómar stóð í stríði við Sigríði Hjaltse­sted dóm­ara vegna málsvarna­launa sinna í máli sem kennt er við Banka­stræti club þar sem hann var verj­andi Alex­and­ers Mána Björns­sonar, sem dæmdur var í sex ára fang­elsi fyrir til­raunir til mann­dráps. Sigríður hér­aðs­dóm­ari taldi að 7,8 millj­ónir til handa Ómari væru hæfi­leg málsvarn­ar­laun en Ómar hafði kraf­ist þess að fá um 11 millj­ónir króna fyrir við­vik sín í þágu Alex­and­ers. Ómar hegð­aði sér dólgs­lega í fram­haldi úrskurð­ar­ins. Þessu til við­bótar krafð­ist Ómar þess í óþökk skjól­stæð­ings að málið færi fyrir Hæsta­rétt.

Ómar birti í gær grein á Vísi þar sem hann setti sig í hlut­verk fórn­ar­lambs og kvaðst vera við það að fara að gráta. Hann úthúð­aði Úrskurð­ar­nefnd lög­manna og upp­nefndi nefnd­ina Úrskurð­ar­graut lög­manna og seg­ist eiga von á einni, tveimur eða jafn­vel þremur áminn­ingum frá nefnd­inni. Van­still­ing Ómars var aug­ljós. Pistl­inum var eytt af Vísi en blaða­menn DV höfðu haldið grein­inni til haga og birtu valda kafla.

Ómar segir áminn­ing­arnar sem hann hefur fengið orðnar fleiri en hann geti talið og fyrir „ýmis­konar mis­al­var­leg brot gegn lögum um fínilög­menn eða siða­reglum fínilög­manna.“

„Mér til varnar er ég bara ósköp venju­legur götu­strákur úr Kópa­vog­inum í jakka­fötum, nokk­urs konar götu­lög­maður, sem nennir ekki að þykj­ast vera neitt annað en hann er,“ skrif­aði Ómar.

DV vitnar í Ómar sem segir að svo virð­ist sem það sé orðið mark­mið hjá úrskurð­ar­nefnd­inni að tugta hann aðeins til „svo tryggt sé að ég sé ekki að hía á fínilög­menn­ina eða benda almúg­anum á það að keis­ar­inn er ekki í fötum“.

Hermt að að gaura­gang­ur­inn í Ómari sé eins­konar nauð­vörn vegna þess að hann sé á barmi þess að missa rétt­indi sín vegna afglapa og alvar­lega brota gagn­vart skjól­stæð­ingum.

Á end­anum kann svo að fara að hann eigi sér þá einu vörn að sækja sér lækn­is­vott­orð og lýsa því yfir að hann hafi ekki verið með sjálfum sér þegar hann framdi brotin …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Slúður