Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Orðhákurinn Davíð

Orðhákurinn Davíð
Ólafur Ragnar Grímsson, fyrr­ver­andi for­seti Íslands.

Ólafur Ragnar Grímsson, fyrr­ver­andi for­seti Íslands, steig stórt og umdeilt skref þegar hann opin­ber­aði dag­bækur sínar og þanka­gang sinn í kringum bæði fjöl­miðla­frum­varpið og Icesave. For­set­inn steig í báðum málum þau stóru skref að vísa við­kvæmum málum til þjóð­ar­innar. Sumir telja að for­set­inn hefði átt að láta dag­bæk­urnar liggja í þagn­ar­gildi en aðrir fagna þeirri afhjúpun sem þar er að finna.

Með fjöl­miðla­mál­inu kall­aði Ólafur Ragnar yfir sig ofsareiði Davíðs Odds­sonar, þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra og núveradi rit­stjóra Moggans, sem hafði sniðið frum­varpið að óvinum sínum og vildi í krafti ein­ræð­istil­burða stöðva þá kump­ána Jón Ólafsson og Jón Ásgeir Jóhann­es­son sem réðu stórum hluta fjöl­miðlaflór­unnar á Íslandi.

Svo fór að Davíð forð­að­ist þjóð­ina með því að draga frum­varpið til baka og engin varð þjóð­ar­at­kvæða­greiðslan. Ólafur Ragnar lýsir í dag­bókum sínum yfir­gangi Davíðs og fagnar því að hann hafði ekki yfir her að ráða. Þá segir hann frá ofsóknum Davíðs sem hafi látið njósna um eig­in­konu sína, Dorrit Moussaieff. Nafn Davíðs kemur rúm­lega 50 sinnum fyrir í bók­inni og er for­set­anum aldna greini­lega hug­leikið.

Margir telja nauð­syn­legt að Dav­íðs­tím­inn í sögu lýð­veld­is­ins verði gerður upp með ollu því ofríki sem átti sér stað gagn­vart ein­stak­lingum og fyr­ir­tækjum. Greini­legt er að Davíð og Guðbjörg Matthís­as­dóttir, auð­kona og aðal­eig­andi Moggans og hýs­ill hans, eru á öðru máli. Orð­hák­ur­inn þegir og Mogginn heldur sig við að fjalla um orlofs­mál Dags B. Egg­erts­sonar í stað þess að fara í sögu­legt upp­gjör …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Slúður