Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Leynifundur Bjarna

Leynifundur Bjarna
Bjarni Bene­dikts­son

Skyndi­fundur þing­flokks Sjálf­stæð­is­flokks­ins í gær er ein­kenni um mikla tauga­veiklun for­ystu flokks­ins sem leitar útgöngu­leiðar úr rík­is­stjórn sem aug­ljós­lega er stefnu­laus og hver höndin upp á móti annarri.

Hermt er að Bjarni Bene­dikts­son hafi með skyndi­fund­inum viljað tryggja bak­land sitt til að gera gripið til þeirra aðgerða sem þarf gagn­vart Vinstri-grænum sem eru í and­ar­slitr­unum og hvorki vilja né geta látið frekar undan Sjálf­stæð­is­flokknum í málum sem hefðu átt að vera þeim heilög.

Almennt við­horf er að flokk­arnir þrír hangi saman vegna fjár­hags­legra hags­muna. Minnki fylgi þeirra á þessu ári lækka fram­lögin hlut­falls­lega. And­rúms­loftið er þó svo ban­eitrað að jafn­vel pen­ingar færa sjálf­stæð­is­mönnum ekki ró.

Fátt heyr­ist af leyni­fund­inum í gær annað en það að engar ákvarð­anir hafi verið teknar. Sú staða að tefla Bjarna fram í kosn­ingum þykir mörgum afleit. Hann er óvin­sæl­asti ráða­maður Íslands frá upp­hafi og stýrir rík­is­stjórn sem hefur minnsta fylgi sem mælt hefur verið.

Einn mögu­leik­inn er sá að Bjarni rjúfi þing og segi svo af sér sem for­maður og afhendi Þórdísi Kolbrúnu Reyk­fjörð Gylfa­dóttur vara­for­manni keflið. Vandinn er sá að Þórdís á ekki upp á pall­borðið hjá flokks­mönnum eftir mis­tök á borð við lokun sendi­ráðs Íslands í Moskvu.

Bjarni er í örvænt­ingu að reyna að skapa sér stöðu til þess að sann­færa fólk um að hann geti sjálfur lág­markað fylgistjón flokks­ins og jafn­vel náð að verða aftur for­sæt­is­ráð­herra. Leyni­fund­ur­inn var til þess að sann­færa fólk svo hann geti fyr­ir­vara­lítið rofið þing og efnt til kosn­inga …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Slúður