Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Valur Gunnarsson hélt útgáfuteiti í bókabúð Sölku með þýsku þema: LJÓSMYNDIR

Valur Gunnarsson hélt útgáfuteiti í bókabúð Sölku með þýsku þema: LJÓSMYNDIR
Valur, Anna Lea og Dögg. Mynd: Björgvin Gunnarsson

Valur Gunn­ars­son hélt útgáfu­teiti í bóka­búð Sölku á Hverf­is­göt­unni á föstu­dag­inn en smekk­fullt var út að dyrum. Hófið var með þýskt þema enda heitir bókin Berlín­ar­bjarmar – Langamma, David Bowie og ég. Mannlíf mætti á svæðið með lélega mynda­vél úr ann­ars ágætum Samsung-síma.

Valur les úr bók sinni.

Margt var um mann­inn í bráð­skemmti­legri bóka­búð útgáfu­fyr­ir­tæk­is­ins Sölku á Hverf­is­götu síð­ast­liðið föstu­dags­eft­ir­mið­degi, þegar rit­höf­und­ur­inn Valur Gunn­ars­son hélt hóf vegna útgáfu nýj­ustu bókar hans. Þær Dögg Hjalta­lín og Anna Lea Frið­riks­dóttir, sem reka búð­ina voru klæddar í bavaríska kjóla og buðu upp á bjór og salt­kringlur að hætti Þjóð­verja, sem setti skemmti­legan brag á teitið. Valur las brot úr bók­inni af sinni alkunnu snilld og gladdi aðdá­endur sína með hnyttnum en hug­vekj­andi stíl sínum.

Gestir gæddu sér á bjór og salt­kringlum.

Mannlíf spurði Val út í bók­ina, um hvað er hún?

„Bókin er í þrem hlutum. Sá fyrsti snýst um langömmu mína sem fædd­ist í Danzig við upp­haf 20. aldar. Hún varð vitni að fyrri heims­styrj­öld og efna­hags­hrun­inu sem fylgdi í kjöl­farið en gift­ist Íslend­ing og flutti í Mos­fells­bæ­inn. Sum systk­ina hennar lét­ust í seinni heims­styrj­öld en undir lok stríðs gat hún komið fær­andi hendi frá gósen­land­inu Íslandi. Þetta gefur svo tæki­færi til að skoða stóru mynd­ina í sögu Þýska­lands.

Annar hluti fjallar um Bowie í Berlín, sem aftur gefur tæki­færi til að skoða kalda stríðið og þau miklu áhrif sem rokktón­list hafði, ekki síst á fall múrs­ins. Þriðji hluti fjallar síðan um mínar upp­lif­anir eftir lok kalda stríðs­ins sem nemi í Humboldt og blaða­maður á Berliner Zeitung. Ofan á allt er hug­mynda­saga Þýska­lands skoðuð og hin miklu átök á milli skyn­semi og róm­an­tíkur sem ein­kenna landið.“

Gestir voru dug­legir að næla sér í bók­ina.

Talsvert er komið inn á skyn­sem­ina í bók Vals og hversu mikið hún á undir högg að sækja í heim­inum í dag. En á hún sér von?

Valur: „Skyn­semin virð­ist eiga undir högg að sækja þessa dag­ana. Til­finn­ingar trompa allt og þær verstu, svo sem reiði og hatur, virð­ast við það að tor­tíma heim­inum. En skyn­semin og systur hennar vís­indin eru eina leiðin til að takast á við vanda­mál okkar tíma og sem og allra tíma. Hún getur bundið enda á stríð og leyst lofts­lags­vand­ann ef við leyfum henni það. Ef við eigum að trúa á eitt­hvað væri skyn­sam­leg­ast að trúa á skyn­sem­ina.“

Hér koma nokkrar mis­góðar ljós­myndir til við­bótar en fyrir neðan þær má svo lesa stór­góðan úrdrátt úr bók­inni.

Þessar blómarósir mættu á útgáfu­teitið.
Valur ræður við gesti.
Valur og Anna Lea.
Meira að segja snúr­urnar voru í lag­inu eins og salt­kringla.

Hér má lesa úrdrátt úr bók­inni:

Föstu­dags­kvöldið sátum við á bakka Spree með bjór í hönd. Einhver var að spila nýju David Bowie-plöt­una í bak­grunn­inum, þessa þar sem hann snýr aftur til Berlínar. Stund þessi var ágæt en gæti varla staðið enda­laust. Við fengum okkur næst flammekueche við Lini­en­strasse þar sem yfir­völd voru að und­ir­búa sig undir að henda síð­asta hús­töku­fólki mið­bæj­ar­ins út. Að mál­tíð lok­inni kysst­umst við í sóf­anum í horn­inu þar til að afgreiðslu­fólkið ræskti sig og rétti okkur reikn­ing­inn. Við héldum í átt að S-bahn-stöð­inni og kysst­umst áfram.

Lest­irnar biðu sitt hvorum megin palls­ins, önnur myndi leiða hana heim til mín, hin á brott. Engin hald­bær rök fund­ust til að fram­lengja kvöldið og Olga hélt heim að sofa. Ég lagði á ráðin og hringdi dag­inn eftir. Helgin var ekki liðin. Enn var von. En Olgu virt­ist hafa snú­ist hugur. Allt gekk of hratt fyrir sig, sagði hún. Hún þurfti meiri tíma.

Mánu­dagur lagð­ist yfir austur-þýskar blokkir Alexanderplatz, enn grárri en vana­lega. Senni­lega var ég fastur á vina­svæð­inu. Hvað um það, við ákváðum að hitt­ast þetta mánu­dags­kvöld. Líkt og vinir gera. „En það verður að vera ein­hvers staðar á lest­ar­hringnum,“ sagði hún. Ég benti henni á að ég byggi einmitt við lest­ar­hring­inn. Hún stakk upp á að við hitt­umst þar. Ég var hættur að skilja nokkurn skap­aðan hlut.

Ég beið eftir henni á Treptower Park-stöð­inni. Hún kom. Lítið var sagt á meðan við gengum heim til mín í íbúð­ina á Bouchéstrasse í Treptow-hverfi, ekki ýkja langt frá sov­ésku stytt­unni. Treptow er mitt á milli hverf­anna Neukölln og Friedrichshain og er stytta af þremur  mólekúl mönnum að renna inn í hvern annan þar sem hverfin þrjú mæt­ast. Treptow hefur þó aldrei náð að vera eins svalt og hin tvö hverfin en ekki er öll von úti enn. Þegar hér er komið sögu er það að mestu byggt öldruðum Austur-Þjóð­verjum sem eru hægt og rólega að deyja út og lista­menn að flytja inn í stað­inn. Sagt er að í hverri götu sé bæði útfar­ar­stofa og gall­erí.

Vorið var komið til Berlínar og við sett­umst út á svalir með rauð­vín og ólífur og osta. Olga tal­aði ekki aðeins rúss­nesku og þýsku og ensku heldur frönsku líka þar sem hún hafði búið í París um stund. Hún skrif­aði masters­rit­gerð um Nabokov sem flúði frá Rúss­landi eftir bylt­ingu og flutti til Berlínar og svo Parísar og loks Banda­ríkj­anna sem hann var alla tíð ósáttur við. Sjálf var hún ekki viss um hvað kæmi næst. Sá sem yfir­gefur heima­landið á æsku­ár­unum á aldrei fylli­lega heima neins staðar.

„Stundum finnst mér eins og ég sé að gliðna í sundur,“ sagði hún.

„Er það ekki þess vegna sem fólk kemur til Berlínar,“ sagði ég, „til þess að verða heilt?“

Við færðum okkar af svöl­unum í sófann og frá sóf­anum yfir í svefn­her­bergið. Allt fór eins og best verður á kosið þetta mánu­dags­kvöld. Samt vildi hún ekki gista að því búnu. Ég klæddi mig aftur í og fylgdi henni á lest­ar­stöð­ina og fór svo aftur í rúmið. Ég svaf og svaf og svaf og svaf og vakn­aði svo inn í nýja ver­öld.

Múrinn var horf­inn. Hinn klofni him­inn var orð­inn heill.

Bókina má nálg­ast á öllum helstu bóka­búðum á land­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Menning

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Nýtt bóka­for­lag vill efla íslensku­lestur meðal fólks af erlendum upp­runa

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar

Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu

Myndband
Menning

Luthers­son frum­sýnir blóð­uga ást­ar­sögu í eyði­mörk Kali­forníu