Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Dagur stuðar skrímslin

Dagur stuðar skrímslin
Dagur nýtur dags­ins. Mynd: Facebook

Sjálf­stæð­is­menn eru með böggum hildar vegna vel­gengni Sam­fylk­ingar í skoð­ana­könn­unum. Storm­sveit flokks­ins sem gjarnan er kennd við skrímsli hefur fundið þann eina högg­stað á Sam­fylk­ingu að Dagur B. Egg­erts­son fram­bjóð­andi sé sið­laust fól. Mogginn hefur lengi haft horn í síðu Dags og kallað hann orlofs­s­ugu fyrir að hafa farið að for­dæmi Davíðs Odds­sonar, for­vera síns á borg­ar­stjóra­stóli, og safnað upp orlofs­dögum í áranna rás.

Kristrún Frosta­dóttir, for­maður Sam­fylk­ingar, hefur ráð­lagt kjós­endum að strika yfir fram­bjóð­endur fremur en að snúa baki við flokknum. Hún sagði í einka­skila­boðum að Dagur væri auka­leik­ari en ekki ráð­herra­efni. Sjálfur hefur fram­bjóð­and­inn grín­ast með hlut­verk sitt og yfir­strik­anir. Hann lagði til í athuga­semd á Facebook að sjálf­stæð­is­menn tækju sig saman um að strika sig út. Skrímsla­deild Sjálf­stæð­is­flokks­ins ofbýður hvernig fram­bjóð­and­inn hagar sér og telur Dag hafa brotið lög og að ákæra kunni að bíða handan við hornið.

Andrés Magn­ús­son, yfir­maður minn­ing­ar­greina Moggans, skrifar um málið frétt þar sem hann bendir á það hve slótt­ugur Dagur er og að hann sé að leggja til skemmd­ar­verk í kosn­ingum þar sem kjós­andi ógildi kjör­seðil með því að strika út ein­hvern af lista sem hann ekki kýs. Andrés eyðir nokkru púðri í að benda á laga­greinar sem banni slíka eyði­legg­ing­ar­starf­semi og ýjar að þeim mögu­leika að Dagur verði dæmdur í fang­elsi.

„Kjósandi má aðeins breyta þeim lista sem hann kýs. Samkvæmt 136. grein kosn­inga­laga eru vill­andi kosn­inga­upp­lýs­ingar saka­mál og varða sektum,“ skrifar Andrés með grát­staf­inn í lykla­borð­inu.

Hann bætir svo enn betur í glæp­inn og segir athuga­semd Dags jafn­vel vera brot á 103. grein hegn­ing­ar­laga sem segir að verði maður valdur að því með svik­sam­legum hætti að atkvæði ann­ars manns ónýt­ist þá varði það fang­elsi allt að tveimur árum. Skrímsla­deildin hefur borið málið undir lög­menn sem telja þetta vera alvöru­mál og sekt væri sjálf­gefin ef til kæru komi.

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hefur í fylg­is­hruni sínu verið að mæl­ast með allt að 12 pró­senta fylgi og dag­ljóst að flokk­ur­inn verður að halda fast utan um hvert atkvæði og tryggja að ekk­ert fari til spillis á laug­ar­dag­inn þegar kjós­endur munda stíl­vopnin …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Slúður