Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Ljótt af Einari

Ljótt af Einari
Guð­mundur Andri Thorsson rit­höf­undur.

Einar Kárason, rit­höf­undur og álits­gjafi, lætur sjaldn­ast neinn eiga inni hjá sér. Guð­mundur Andri Thorsson, félagi hans í stétt rit­höf­unda, gerði grín að Einari eftir að sá síð­ar­nefndi hafði kvartað opin­berl­kega  undan því að hafa ekki fengið dúsu frá rík­inu í formi rit­höf­unda­launa. Þá kom á dag­inn að Einar hafði ekki klárað umsókn sína með því að senda tölvu­póst með bæna­skjal­inu góða. Guð­mundur Andri rifj­aði upp í athuga­semd á Facebook að Einar gleymdi að ýta á send.

Einar brást ókvæða við þessu í færslu á Facebook og taldi Guðmund Andra hafa verið hina mesti lið­leskju þegar hann sat á þingi fyrir Sam­fylk­ing­una. Skilja má á Einari að Guð­mundur Andri hafi ekki efni á slíku gríni. Að vísu sé þó rétt að umsóknin hafi verið ófull­nægj­andi.

„Andri gerir grín að þessu, en sjálfur var hann þá allt árið með tæpar tvær millj­ónir á mán­uði fyrir þægi­lega þing­setu, svo að honum var eðli­lega léttur hlátur í huga yfir þeim félögum sem fengu ekki einu sinni þessa þrjá, eða sex, þrjú­hund­ruð­þús­und­kalla sem menn betla eftir með flóknu umsókn­ar­ferli. Andri var að vísu, eins og allir vita, að mestu verk­laus í þing­inu, en gefum honum þó að hann klikk­aði örugg­lega aldrei á að „ýta á send“ er hann sótt­ist eftir greiðslum,“ skrifar Einar.

Nokkrar athuga­semdir eru við romsu Einars um Guðmund Andra og blöskrar flestum hve harka­lega er farið að grey­inu. Ljótt af Einari var ein ein­kunnin. Meðal þeirra sem skamma orð­hák­inn Einar er sjálfur Jón Viðar Jónsson leik­hús­fræð­ingur sem þó kallar ekki allt ömmu sína.

„Þessi færsla er fyrir neðan þina virð­ingu, Einar. Hvet þig til að eyða henni og þá gleym­ist hún von­andi fljótt,“ skrifar Jón Viðar …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Slúður