Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Viðbrögðin við nýjustu bók Elísabetar frábær: „Fólk segir að hún hitti beint í hjartastað“

Viðbrögðin við nýjustu bók Elísabetar frábær: „Fólk segir að hún hitti beint í hjartastað“
Elísabet Jök­uls­dóttir Mynd: Facebook

Jóla­bóka­flóðið stendur nú sem hæst á Íslandi og kepp­ast nú sölu­að­ilar við að selja les­þyrstum kaup­endum bækur. Eins og oft áður er úrvalið ansi fjöl­breytt. Hægt er að finna fjöldan allan af spennu­sögum, ljóða­bókum og ævi­sögum en ein af bók­unum sem standa svo­lítið upp úr í flóð­inu er bókin Límonaði frá Díafani eftir þjóð­ar­ger­sem­ina Elísa­beti Jök­uls­dóttur.

„Mig lang­aði að segja þessa merki­legu sögu um ferð barns­ins til útlanda og hvernig allt  breytt­ist, lykt og matur, ávextir, hun­ang. Svo eru tveir kaflar í bók­inni sem ég vildi koma til skila, um and­lega vakn­ingu og lokin á bók­inni þegar hún kemur aftur sem full­orðin kona.“ Þetta segir Elísabet Kristín Jök­uls­dóttir í sam­tali við Mannlíf um nýj­ustu bók hennar, Límonaði frá Díafani, sem JPV gefur út.

En er sagan sem Elísabet segir sönn?

Elísabet: „Aðalega sann­sögu­leg en skáld­skapur í bland, ég man ótrú­lega mikið 8 ára gömul eða ég var 8 ára þegar ég fór í ferð­ina.“

Hvernig hafa við­brögðin við bók­inni verið

Elísabet: „Alveg glimr­andi, fólk segir að hún sé ljúf og elsku­leg og hitti beint í hjarta­stað.“

Og hvernig er það, er ekki mikið að gera í jóla­törn­inni?

Elísabet: „Jú það er brjálað að gera og ég orðin pínu þreytt líka út af nýr­anu en ég fæ beiðni um upp­lestur á hverjum degi, stundum tvisvar frá ólíkum hópum.“

Elísabet flutti fyrir nokkru til Hvera­gerðis en Mannlíf vildi vita hvernig henni lit­ist á bæinn.

Elísabet: „Hvera­gerði er alveg príma, ég á fal­legt heim­ili og góða vini hér, elska guf­urnar í fjall­inu og skóg­inn í fjall­inu.“

En Elísabet er ekk­ert hætt að skrifa, síður en svo en hún vinnur nú að næstu bók sinni. En um hvað er hún?

Elísabet: „Ég er að skrifa nýja sögu um konu sem lok­ast inni í Hvera­gerði, mér sýn­ist fólk mjög spennt fyrir henni, vona hún komi út á næsta ári, ann­ars er hún bæði erfið og skrítin.“

Hvernig þá?

Elísabet: „Hún glímir við kvíða og leið­indi og kemst ekki út úr hús­inu og ekki út úr höfð­inu á sér, hún fer að rann­saka fyrri inni­lok­anir sem hún hefur glímt við alla ævi.“

Elísabet áritar bók­ina í Pennanum Eymunds­son í Aust­ur­stræti á milli 17:00 og 18:00 í dag.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Menning

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Nýtt bóka­for­lag vill efla íslensku­lestur meðal fólks af erlendum upp­runa

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar

Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu

Myndband
Menning

Luthers­son frum­sýnir blóð­uga ást­ar­sögu í eyði­mörk Kali­forníu