Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Anna datt í það: „Ég hefði betur fengið mér væga svefnstund“

Anna datt í það: „Ég hefði betur fengið mér væga svefnstund“
Anna Krist­jáns­dóttir Mynd: Facebook

Anna Krist­jáns­dóttir fékk sér aðeins neðan í því þegar hún snéri til baka til Tenerife eftir jóla­ferð til Íslands.

Vél­stjór­inn og húmorist­inn Anna Krist­jáns­dóttir skrifar um síð­ustu klukku­stundir sínar á Íslandi en hér hefur hún notið jóla­há­tíð­ar­innar í fyrsta skipti í nokkur ár. Hún hefur verið dug­leg að segja frá ferð sinni til Íslands en hún hefur skrifað dag­bók­ar­færslur á hverjum degi frá því að hún flutti til Tenerife, 1973 dögum síðan.

Í nýj­ustu færslu sinni seg­ist hún hafa dottið í það en byrjar þó á því að segja frá síð­ustu stundum sínum á Íslandi.

„Dagur 1973 – Ég datt í það.

Gær­dag­ur­inn var ekki sá auð­veld­asti í líf­inu þótt að vissu­lega hefði ég notið hans til fulln­ustu. Ég vakn­aði eldsnemma, nánar til­tekið klukkan sex að morgni sunnu­dags og pakk­aði síð­ustu leif­unum af því sem ég vildi taka með mér suður á bóg­inn. Hannes vinur minn og fyrrum sam­starfs­fé­lagi hjá Veitum var mættur fyrir klukkan sjö að morgni og hann ók mér suður til Kefla­vík­ur­flug­vallar.Ég þakka kær­lega fyrir skut­lið, en hafa ber í huga að við eigum sam­eig­in­legt áhuga­mál sem eru kisur.“

Því næst segir Anna frá því hvað tók við þegar hún kom á flug­stöð­ina í Keflavík.

„Eftir að ég kvaddi Hannes fór ég inn í flug­stöð­ina, en þar sem ég var að ferð­ast á SagaClass, fór ég beint að við­kom­andi þjón­ustu­borði, en þar var engin til að afgreiða mig. Á borð­inu við hlið­ina var hins­vegar stúlka sem vildi allt fyrir mig gera, en bara á (útl)ensku. Ég reyndi að gera mig skilj­an­lega á íslensku og ein­hvern­veg­inn tókst okkur að velja tösk­unni minni réttan far­veg og ég hélt glöð í bragði upp að örygg­is­leit­inni, for­gangs­hlut­anum. Sem betur fer tal­aði fólkið þar íslensku. Ég tók fram bakka, setti í hann tölv­una mína og sím­ann minn, en auk þess eitt stykki Æfón ásamt öðrum og glæ­nýjum síma. Þetta reynd­ist of mikið fyrir örygg­is­leit­ina. Ég var rekin til baka með allt góssið, þurfti að raða öllu í tvo bakka, en að end­ingu komst ég í gegn með allt góssið, þar á meðal Æfón og far­síma til Tenerife.

Eftir þetta átti ég góða stund á Saga veit­inga­þjón­ust­unni (Saga lounge) þar sem íslenska er við­ur­kennd með góðum vinum áður en haldið var út í flug­vél sem kennd er við Ing­ólfs­höfða.“

Anna var fegin þegar hún komst loks­ins í „eðli­legt lofts­lag“:

„Ferðin heim gekk eins og í sögu. Það var fullt á SagaClass en fátt þar fyrir aftan og enn var ég blá­edrú eins og venju­lega í flugi. Flug­freyj­urnar voru flottar, kunnu sitt fag og ekk­ert við þær að sakast. Pétur og Ásta sóttu mig á flug­völl­inn, en mikið var þægi­legt að kom­ast í eðli­legt lofts­lag.“

Að lokum segir Anna frá því að hún hafi fengið sér að drekka um kvöldið með vinum en hefði betur lagt sig áður.

„Um kvöldið hitt­umst við nokkur á Sandy´s bar, enda hvert sæti skipað á Búkkanum. Þótt ég drykki ekki mikið, við­ur­kenni ég fús­lega að ég hefði betur fengið mér væga svefn­stund áður en haldið var til drykkju.En það er gott að vera komin heim.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Menning

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Nýtt bóka­for­lag vill efla íslensku­lestur meðal fólks af erlendum upp­runa

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar

Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu

Myndband
Menning

Luthers­son frum­sýnir blóð­uga ást­ar­sögu í eyði­mörk Kali­forníu