Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Brynjar þjáist af minnisleysi: „Líklega blanda af sljóleika og almennum sauðshætti“

Brynjar þjáist af minnisleysi: „Líklega blanda af sljóleika og almennum sauðshætti“
Brynjar Níelsson.

Brynjar Níelsson þjá­ist af minnis­leysi og vill að hin nýja rík­is­stjórn geri eitt­hvað í málum minn­is­lausra.

„Minni mitt er afar bág­borið og á það bæði við um lang­tíma- og skamm­tíma­minni. Sér­fræð­ingar eru á einu máli að þetta sé ekki heila­bilun því ég hef alltaf verið svona. Líklega ein­hvers konar athygl­is­brestur eða blanda af sljó­leika og almennum sauðs­hætti.“ Þannig hefst Facebook-færsla Brynjars Níels­sonar lög­manns og fyrr­ver­andi þing­manns Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Í skond­inni færslu sinni seg­ist Brynjar varla muna eftir æsku­árum sínum: 

„Ég man lítið sem ekk­ert eftir æsku­ár­unum. Ef mér eru sýndar myndir af mér frá þeim árum kann­ast ég ekki einu sinni við sjálfan mig. Bekk­ur­inn minn í barna­skóla ákvað end­ur­fund 15 árum efir barna­skóla­prófið og þar mætti mik­ill fjöldi manna sem ég minnt­ist ekki að hafa séð áður. Sama var uppi á ten­ingnum í end­ur­fundum frá gagn­fræða­skóla og mennta­skóla. Nú er svo komið að hætt er að bjóða mér á þessa end­ur­fundi eða reunion eins og það heitir á góðri íslensku.“

Brynjar segir enn­fremur að minnis­leysið hafi haft áhrif á hjóna­bandið:

„Þetta minnis­leysi eða sauðs­háttur, eins og Soffía kallar þetta, hefur einnig tekið á í hjóna­band­inu, eins og gefur að skilja. Þegar Soffía er að segja frá ferðum okkar innan- og utan­lands í góðra vina hópi  kann­ast ég gjarnan ekk­ert við að hafa komið á þessa staði og ég gef mig ekk­ert í þeim deilum fyrr en Soffía dregur fram mynda­albúm máli sínu til stuðn­ings. Öll fyr­ir­mæli Soffíu, sem eru all­mörg, gleym­ast nema þau sem á að sinna strax. Sama má segja um öll lof­orð mín. Svo pirrar það Soffíu óend­an­lega mikið þegar við hittum fólk, sem við þekkjum, en kannski ekki séð í nokkur ár, og ég kann­ast skyndi­lega ekk­ert við það.“

Að lokum biðlar hann til rík­is­stjórn­ar­innar um að gera eitt­hvað í þessum mála­flokki, það þýði ekki að koma öllu minn­is­lausa fólk­inu fyrir á Alþingi:

„Þessi færsla er ekki til að fá ykkur til að dást af sjúk­dómsinn­sæi mínu heldur ákall til nýrrar rík­is­stjórnar og kerf­is­ins að gera eitt­hvað í málum okkar sem svona er komið fyrir. Það dugar ekki að koma okkur öllum fyrir á Alþingi, sem er í raun afleitt með­ferð­ar­úr­ræði.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Menning

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Nýtt bóka­for­lag vill efla íslensku­lestur meðal fólks af erlendum upp­runa

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar

Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu

Myndband
Menning

Luthers­son frum­sýnir blóð­uga ást­ar­sögu í eyði­mörk Kali­forníu