Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Hundrað börn gefa út Spírur, ungar raddir í umhverfismálum: „Markmiðið að opna umræðurnar“

Hundrað börn gefa út Spírur, ungar raddir í umhverfismálum: „Markmiðið að opna umræðurnar“
100 börn og ung­lingar tóku þátt í rit­list­ar­keppni Ungra umhverf­is­sinna, hér má sjá hluta höf­unda þeirra 30 sagna sem UU gáfu út undir titl­inum “Spírur, ungar raddir í umhverf­is­málum”. Mynd: Ungir umhverfissinnar/Glo Chitwood.

Fullt var út úr dyrum í hátíð­ar­sal Safna­húss­ins við Hverf­is­götu um helg­ina, þar sem Ungir umhverf­is­sinnar verð­laun­uðu rit­höf­unda fram­tíð­ar­innar með útgáfu bók­ar­innar Spírur, ungar raddir í umhverf­is­málum. Bókin hefur að geyma 30 sögur af þeim 100 sem bár­ust í keppn­ina „Ungir rit­höf­undar fyrir umhverfið“ sem UU héldu á haust­mán­uðum. Krakkar, for­eldrar, frænd­fólk og kenn­arar komu alls staðar að af land­inu til þess að fagna ungu rit­höf­und­unum sem not­uðu rödd sína í þeirri von að bæta gæði fram­tíð­ar­innar. 

Fullt út úr húsi og bækur til sölu.

Á haust­mán­uðum stóð fræðslu­nefnd Ungra umhverf­is­sinna fyrir rit­list­ar­keppni þar sem börnum á grunn­skóla­aldri um allt land var boðið að skrifa sögur, ljóð, mynda­sögur eða annað skap­andi efni sem hafði umhverf­is­mál, nátt­úr­una og/eða lofts­lags­mál að leið­ar­ljósi. Mark­miðið með verk­efn­inu var að koma röddum barna varð­andi umhverfis- og nátt­úru­vernd á fram­færi og auka þátt­töku þeirra í mála­flokknum. Eins og okkur öllum er kunn­ugt steðjar mikil ógn af lofts­lags­vánni nú sem og í náinni fram­tíð og er því mik­il­vægt að hug­myndir, áhyggjur og fram­tíð­ar­sýn barna fái að heyr­ast.

Verkefni dómnefndar krefjandi

Yfir 100 ljóð og sögur bár­ust hvaðanæva af land­inu, jafn fjöl­breyttar og þær voru margar, að því er fram kemur í frétta­til­kynn­ingu frá UU. Verkefni dóm­nefndar reynd­ist krefj­andi þar sem velja þurfti sig­ur­veg­ara í tveimur ald­urs­flokkum: 

Yngri flokkur / 5-10 ára:

1.sæti : Elín­björt Sara Ástu­dóttir, Húsa­skóla, 5 ára

2-3.sæti : Sóley Kára­dóttir, Vest­ur­bæj­ar­skóla,  10 ára

2-3.sæti : Katrín Halla Finns­dóttir, Grunn­skóla Drangs­ness, 10 ára

Eldri flokkur / 11-15 ára:

1.sæti : Eyþór Páll Ólafsson, Nausta­skóla, 13 ára

2-3.sæti : Kermit Madej, Landa­kots­skóla, 14 ára

2-3.sæti : Krishika Pedd­is­hetti, Landa­kots­skóla, 11 ára

Sig­ur­veg­ar­arnir í yngri og eldri flokki. Sú hlut­skarpasta í yngri flokki var jafn­framt yngsti þátt­tak­and­inn. Sá eldri kom alla leið frá Akureyri til að taka á móti verð­launum.

Dómnefnd valdi að lokum 30 verk til þess að setja saman í bók­verk sem gefið var út í Safna­hús­inu um helg­ina og verður dreift í bóka­söfn grunn­skóla lands­ins. Þá voru allar 100 sög­urnar til sýnis í Safna­hús­inu um helg­ina en í frétta­til­kynn­ing­unni óska Ungir umhverf­is­sinnar höf­undum þeirra allra inni­lega til ham­ingju.

Yngsti rit­höf­und­ur­inn les “Ruslið sem tal­aði við annað rusl”, Ragn­hildur Katla aðstoðar.

Verk­efnið var eitt fjölda stór­glæsi­legra verk­efna sem hlutu styrk úr Lofts­lags­sjóði ungs fólks í Reykja­vík, yfir­lit verk­efna má sjá hér.

Örvar samtalið

„Með verk­efn­inu vildum við örva sam­tal um umhverf­is­mál meðal barna og veita þeim tæki­færi til að hafa áhrif á eigin fram­tíð og þróa með sér þá vit­und að við berum öll ábyrgð á því að vernda nátt­úr­una,“ segir Ragn­hildur Katla Jóns­dóttir, fræðslu­stýra UU og hug­mynda­smiður verk­efn­is­ins og heldur áfram: 

„Verk­efnið und­ir­strikar enn­fremur að umhverf­is­vernd þarf ekki að ein­blína á sem alvar­legt mál­efni til þess að tryggja örugga fram­tíð kom­andi kyn­slóða, heldur þarf einnig að tækla sem mik­il­vægt og spenn­andi við­fangs­efni sem getur kveikt áhuga á sköpun og sprottið fram á list­rænan máta.“

Þá segir Ragn­hildur Katla að stundum hafi umhverf­is­málin verið sett upp nokkuð alvar­leg og lítið spenn­andi.

„Umhverf­is­mál eru stundum sett upp svo­lítið alvar­leg og kannski ekki voða spenn­andi en krakk­arnir sem tóku þátt í þessu verk­efni hafa sýnt að sú þarf alls ekki að vera raunin. Við þurfum lista­fólkið og kláru ein­stak­ling­ana með frjóa ímynd­un­ar­aflið til þess að halda lífi í þessu mik­il­væga mál­efni.“

Að lokum segir Ragn­hildur Katla að mark­miðið með bók­inni sé að opna umræð­una hjá yngstu kyn­slóð­inni og sýna þeim að þau hafi rödd.

„Mark­miðið með bók­inni er að opna umræð­urnar meðal okkar yngstu kyn­slóðar og sýna þessu flotta, unga fólki að við höfum rödd sem við eigum að nota. Orð verða að sögu eins og hug­myndir verða að veru­leika. Röddin þín verður að rödd okkar, sem mun á end­anum hafa áhrif á fram­tíð­ina.“

Um Unga umhverfissinna

Ungir umhverf­is­sinnar eru frjáls félaga­sam­tök ungs fólks á Íslandi sem er annt um nátt­úru, lofts­lag og líf­ríki. Til­gangur félags­ins er að vera vett­vangur fyrir ungt fólk að nota rödd sína og láta gott af sér leiða í umhverf­is­málum. Verkefni félags­ins eru fjöl­breytt og skemmti­leg, öll til þess gerð að vekja umræður og stuðla að breyt­ingum til góðs.

Hægt er að fylg­kast með Ungum umhverf­issinnum á sam­fé­lags­miðl­unum instagram og tiktok @ungirumhverfissinnar eða á vef­síð­unni www.umhverfissinnar.is

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Menning

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Nýtt bóka­for­lag vill efla íslensku­lestur meðal fólks af erlendum upp­runa

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar

Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu

Myndband
Menning

Luthers­son frum­sýnir blóð­uga ást­ar­sögu í eyði­mörk Kali­forníu