Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Kvíðinn minn fór alveg upp á hæstu hæðir“ – Krummi með plötu á næsta ári og berst við eyrnasuð

„Kvíðinn minn fór alveg upp á hæstu hæðir“ – Krummi með plötu á næsta ári og berst við eyrnasuð

Tón­list­ar­mað­ur­inn Krummi Björg­vins­son var fyrsti við­mæl­andi drengj­anna í Hvössum Brúnum hér á Mannlífi og tjáði sig um tón­list­ina og erf­ið­leik­ana sem hann hefur þurft að kjálst við í að verða ár

„Countryið er ást lífs míns ásamt kon­unni minni, það má ekki gleyma því að nefna hana. Ég fær­ist yfir í countryið með tím­anum; þegar ég var að eld­ast. Ég var í kringum gam­al­dags músík heima­við frá blautu barns­beini eins og country, blús, rhyt­hmn and blues, gospel og gam­alt rock and roll. Þetta var fyrsta mús­íkin sem ég varð hrif­inn af.

Ég byrj­aði að taka þessu alvar­lega um alda­mótin en þá stofn­aði ég hljóm­sveit­ina Moody Company með Franz Gunn­ars­syni sem var svona countryband. Og við spil­uðum mikið niðri í bæ ásamt hljóm­sveitum eins og Tenderfoot og fleiri trú­badorum. Við vorum að spila frum­samið efni og úr varð smá sena og sam­held­inn hópur. Ekkert svaka­lega stór sena en mjög góð­menn og vel sótt af fólki sem fíl­aði sin­ger-songwriter tón­list.

Svo kynn­ist ég Daníel Ágústi Har­alds­syni úr GusGus og Nýdönsk og þá stofna ég aðra country-rokk­hljóm­sveit sem heitir Esja, árið 2007. Við gáfum út plötu sem seld­ist vel, fékk frá­bæra gagn­rýni og svo spil­uðum við um allar trissur.“

Spurður út í sól­ó­verk­efnið hans sagði hann: „Ímínu sól­ó­verk­efni í dag eru með mér Bjarni, sem var með mér í Mínus á gítar, Erik Quick á trommur, Óttar Sæmund­sen á bassa, Gaukur Dav­íðs­son spilar á pedalsteel og svo Birgir Ísleifur Gunn­ars­son sem spilar á Wurlitzer og píanó.

Annars er þetta sól­ó­efnið mitt. Ég sem mús­ík­ina og svo hitti ég Bjarna, hann finnur ein­hverja gít­ara og við vinnum þetta saman. Svo fer ég á æfingar og púsla þessu saman. Ég er með þetta útsett í hausnum á mér en ég leyfi strák­unum að setja sitt bragð á þetta. Þetta er nú samt svona hljóm­sveit þar sem ég ræð. Það er alveg lýð­ræði í gangi, þannig, en samt er alveg svo­lítið ein­ræði líka. Það er erfitt að vera í hljóm­sveit þegar maður er orð­inn þetta gam­all þá getur þetta orðið svo­lítið erfitt ef það er mikið egó eða drama.

Þetta er lögin mín og ég vil hafa þau eins og ég vil hafa þau en heppi­lega finnst með­limum hljóm­sveit­ar­innar minnar þessi lög frá­bær.

Fyrsta platan mín sem sólólista­maður er langt komin og kemur út á næsta ári en ég ætla að gefa út tvö lög á þessu ári, áður en platan kemur út, sem eru til­búin.“

Krummi hefur þurft að kljást við það að lifa með alvar­legu til­felli af tinnitus. „Ég fékk fyrst eyrna­suð fyrir um 16 árum síðan þegar við í Mínus vorum að túra nán­ast stans­laust í 7 ár. Það var ekk­ert sér­stak­lega hátt, svona hálf sef­andi. Ég aðlag­að­ist því nokkuð fljótt og svo bara gleymi ég þessu. Held áfram að vera hljóð­maður og vera í háværum hljóm­sveitum og hélt að þetta myndi ekk­ert versna en svo einn dag í októ­ber í fyrra vakn­aði ég og þá var þetta búið að versna alveg hrika­lega. Svo slæmt að þetta var komið í bæði eyrun, mörg hljóð og rosa­lega hátt; ég heyrði þetta þegar ég var í sturtu. Alls­konar raf­magns­hljóð, ýl, fiss og púlser­andi hljóð sem mynd­aði kakó­fóníu“.

„Ég hélt að þetta myndi fara en það gerð­ist ekki þannig að ég lagð­ist bara í kvíða og þung­lyndi, von­leysi og gafst upp á líf­inu. Ég var kvíða­sjúk­lingur fyrir og var með rosa­lega slæma þrá­hyggjuröskun sem ég hef verið með síðan ég var krakki sem ég hef ekki byrjað að kljást við fyrr en eig­in­lega núna. Ég var bara ein­hvern­vegin á hnef­anum í öll þessi ár og self medicate-aði, sem ég geri nátt­úru­lega ekki lengur, en þetta versnar bara. Með þessu þró­aði ég með mér hljóð­ó­þol þannig að ég þoli illa ágeng hljóð þannig að ég gat eig­in­lega bara ekki gert neitt.

Þetta er það erf­ið­asta sem ég hef gengið í gegnum og ég er ennþá í skot­gröf­unum. Ég er ekki ennþá kom­inn hinum megin við brúna. Þetta tekur rosa­lega á sál­ar­lífið því manni finnst maður muni alltaf þjást með þetta. Þetta er nefni­lega ekki eyrun, þetta er haus­inn sem þarf að venj­ast hljóð­inu.

Ég er mikið betri en ég var fyrst. Það sem er verst er hvernig þetta hefur áhrif á kvíð­ann. Kvíðinn minn fór alveg upp á hæstu hæðir. Ég var slæmur kvíða­sjúk­lingur fyrir en ég hafði aldrei uplifað þetta svona sterkt. Þetta var annað stig af kvíða. Depurðin og von­leysið. Ég hélt bara sem tón­list­ar­maður að líf mitt væri búið. En ég hef getað haldið áfram og hef frekar verið kræfur en hitt því maður verður bara að rífa sig upp.

Ég er á kvíða­lyfjum við þessu og það er ekk­ert tabú við það að leita sér hjálpar. Svo getur maður hætt á þessum lyfjum þegar maður verður betri. Þetta er til þess að hjálpa manni að kom­ast út úr húsi og hjálpa sjálfum þér. Sumir nota hreyf­ingu og þurfa ekki lyf en ég reyndi það allt en það er ekki nóg. Ég hreyfi mig, labba, stunda jóga, hug­leiði, hleyp og syndi en ég þurfti bara gjössovel að leita mér meiri hjálpar. Ég sinni útvarps­þætt­inum mínum, Krummi Krúnkar Úti á Rás 2, spila tón­list, umkringi mig góðu fólki, er í kringum fjöl­skyld­una og van­met ekki alla þessa litlu hluti í líf­inu. Þetta hefur allt hjálpað mér að vinna mig upp úr þess­ari djúpu holu sem ég var í og er að nálg­ast topp­inn svo­lítið. Ég fæ ennþá slæma daga og ég fæ ennþá kvíða­köst og þau munu alltaf vera með mér en ég þarf bara að venj­ast þeim.

Það er fullt af fólki sem fær svona suð og hristir það bara af sér. Það er svo slæmt þegar fólk með kvíða og þung­lyndi fær þetta því það tekur það aðeins lengri tíma til að venj­ast þessu.

En það ger­ist, það er óum­flýj­an­legt.

Maður þarf bara að lifa líf­inu og leyfa heil­anum að vinna úr þessu. Ég er bjart­sýnn á þetta núna en ég var það ekki fyrst. Það var dimmt yfir mér og algert von­leysi en svo fór ég að sjá ljós og fyllt­ist bjart­sýni.“

Og þetta hefur áhrif á tón­list­ina ,,kvíð­inn, dep­urðin og þrá­hyggj­urnar mínar; þetta fer allt inn í tón­list­ina mína. Það er mikið um þetta á plöt­unni. Til­finngar og erfið mál í bland við ást­ar­lög. Ef ég sest niður með gít­ar­inn þá get ég ekki kom­ist hjá því að setja þetta inn í laga­smíðar hjá mér.

Þú þarft eig­in­lega að hafa þetta til þess að tón­listin þín verði ein­læg, sann­fær­andi og spiluð af inn­lifun.

Þú verður að hafa gengið í gegnum ein­hvern sárs­auka.“

Hér má svo heyra lagið Stories To Tell eftir Krumma frá árinu 2019.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Menning

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Nýtt bóka­for­lag vill efla íslensku­lestur meðal fólks af erlendum upp­runa

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar

Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu

Myndband
Menning

Luthers­son frum­sýnir blóð­uga ást­ar­sögu í eyði­mörk Kali­forníu