Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Hjördís Leifsdóttir á Brúnastöðum: ,,Það eru gríðarlega erfiðir tímar fyrir sauðfjárbændur.“

Hjördís Leifsdóttir á Brúnastöðum: ,,Það eru gríðarlega erfiðir tímar fyrir sauðfjárbændur.“

Gestur Guðna Ágústs­sonar að þessu sinni, stór­bónd­inn, félags- og mann­fræð­ing­ur­inn Hjördís Leifs­dóttir á Brúna­stöðum í Fljótum, hefur áhyggjur af afkomu sauð­fjár­bænda.

„Það eru gríð­ar­lega erf­iðir tímar fyrir sauð­fjár­bændur. Ég hef miklar áhyggjur af hvað verður. Ég held að núna þessa dag­ana sé fólk að taka afdrifa­ríkar ákvarð­anir um sína fram­tíð því fólk er að panta og kaupa áburð og það er bara stærri biti en margir ráða við þannig að ég held að fólks sé að velta fyrir sér hvað verður með fram­tíð­ina því að það er ekki bara þannig að þetta sé að skella á núna heldur hafa und­an­gengin ár verið svo erfið og fólk er búið að ganga svo á bæði fjár­magn og þol því það hefur alltaf kannski trúað því að eitt­hvað betra sé framundan en maður sér það ekki alveg í hendi sér að svo sé. Það er ekki bara áburð­ur­inn sem mun hækka heldur öll aðföng og þó ég viti núna að staða birgða sé góð þá held ég ekki að það muni duga til. Það mun þurfa að verða mikil hækkun [afurða­verðs] ef endar eiga að ná saman, það er bara svo­leiðis.
Það er svo auð­velt að vera með orð­ræðu sem gengur í fólk að mat­væla­verð sé allt of hátt og það sé miklu lægra ann­ars­staðar en málið er að ef við hugsum um það þá kostar að fram­leiða mat ef við ætlum að borga fólki mann­sæm­andi laun, hafa aðbúnað eins og við sættum okkur við við skepn­urnar þá kstar að fram­leiða þessa vöru og ef hún kostar ekki mikið þá er ein­hvers­staðar pottur brot­inn, það segir sig sjálft.“

Ær, kýr og fósturbörn

Hún telur að þegar komi að inn­fluttum afurðum þurfi að skoða aðbúnað skepn­anna, hvaða lyf þau hafi fengið og gera þurfi sömu kröfur til inn­lendra og inn­fluttra afurða.

Hjónin Hjördís Leifs­dóttir og Jóhannes Rík­harðs­son fluttu að Brúna­stöðum árið 2000 og reka þar fjöl­breytt bú. Þau halda þar 750 ær og með um 2000 kindur í afrétti, Anguskýr, geitur, eru skóg­ar­bændur, reka lít­inn hús­dýra­garð auk þess að eiga í sam­starfi við græn­lenskan land­bún­að­ar­há­skóla og taka að sér fóst­ur­börn.

Ostaframleiðsla

Í vinnslu þeirra fram­leiða þau bæði kjör­af­urðir sínar en leggja jafn­framt mik­inn metnað í fram­leiðslu geita­osts.

„Allt umhverfi smá­fram­leiðslu er orðið okkur svo vin­sam­legt. Við byrj­uðum á að taka nám­skeið um beint frá býli þar sem við fengum svo mikla hand­leiðslu varð­andi hvaða reglu­gerðir gilda og hvernig maður á að leita sér aðstoðar og sækja styrki en þetta er svo nauð­syn­legt þegar maður ætlar að hella sér út í [fram­leiðslu] því þetta kostar svo mikla pen­inga. Við létum slag standa og gerðum þessa vinnslu sem þýðir að við erum ekki bara að búa til osta heldur getum við með­hndlað allar okkar afurðir; kjöt og annað. Nú erum við búin að vera í þess­ari ota­fram­leiðslu í rúmt ár og það hefur gengið ótrú­lega vel. Okkar heppni eða skyn­semi var að fá með okkur í lið gott teymi. Við fengum frá­bæran osta­gerð­ar­mann með okkur, Guðna Hannes, en það er algert skil­yrði að fólk viti hvað það er að gera og geri það vel. Jóhannes er alger snill­ingur í ræktun og þú þarft að kunna að umgang­ast skepn­urnar til að fá frá þeim afurðir. Svo er ég í sölu­málum og krakk­arnir sjá um tækni­málin. Þetta er flókið og dýrt ferli því maður pakkar ekki bara vör­unni upp í bíl og keyrir á ein­hverja afurða­stöð og ein­hver tekur við kefl­inu þar.“

það eru heilu sveit­irnar komnar í eyði

Hjördís lítur svo á að nauð­syn­legt sé að þétta byggð á lands­byggð­inni til að koma til móts við ferða­þjón­ust­una þegar hún mun fær­ast aftur í vöxt „Það er bara ein­hvern veg­inn þannig að þurfa allir hvor á öðrum að halda og það er orðið stjrál­býlt víða nú þegar, mjög. Maður keyrir um landið, sér­stak­lega aust­ur­fyrir, og það eru heilu sveit­irnar komnar í eyði. Þetta er svo sorg­legt að sjá því hurð­inni hefur verið lokað á bæj­unum og það eru ekki ljós. Það eru engir ríkir aðilar að kaupa þetta til að nýta sem sum­ar­hús og á þessum strjál­býlu svæðum sem eru ekki vin­sæl til ferða­þjón­ustu, það er ekki einusinni mark­aður fyrir jarð­irnar og folk virð­ist ganga út eigna­laust. Þetta er ótrú­lega sorg­legt. Viljum við að landið sé svona? Að folk keyri um landið og það séu heilu sveit­irnar í eyði. Viljum við að fólk upp­lifi það?“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Menning

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Nýtt bóka­for­lag vill efla íslensku­lestur meðal fólks af erlendum upp­runa

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar

Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu

Myndband
Menning

Luthers­son frum­sýnir blóð­uga ást­ar­sögu í eyði­mörk Kali­forníu