Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Ljósmyndarinn Geiri X skilar skömminni: „Hún nauðgaði mér hrottalega“

Ljósmyndarinn Geiri X skilar skömminni: „Hún nauðgaði mér hrottalega“
Geiri X

Nýjasti gestur bræðr­anna Gunnars og Davíðs Wiium í hlað­varps­þætt­inum Þvotta­húsið er Ásgeir Ásgeirs­son eða Geiri X eins og hann er gjarnan kall­aður. Geiri starf­aði sem  ljós­mynd­ari til fjölda ára en mynd­irnar hans birt­ust meðal ann­ars hjá Reuters frétta­stöð­inni. Í við­tal­inu fer Geiri yfir erf­iða atburði í lífi sínu og eru les­endir var­aði við graf­ískum lýs­ingum á nauðg­unum og pynt­ingum sem hann hefur orðið fyrir. Fyr­ir­vari. Lýs­ing­arnar eru afar gró­tískar og ljótar og alls ekki fyrir alla.

„Sjálfs­vígs­sjúk­dóm­ur­inn“

Ásgeir er öryrki eftir að hafa verið greindur með sjald­gæfa tauga­sjúk­dóm­inn CRPS sem stendur fyrir Complex reg­ional pain syndrome. Sjúk­dóm­ur­inn lýsir sér í ofvirkum tauga­boðum sem senda stans­laus verkja­skila­boð til heil­ans. CRPS er sagður valda mestum sárs­auka af öllum sjúk­dómum heims og er stundum nefndur „sjálfs­vígs­sjúk­dóm­ur­inn“ vegna þess hversu margir þeirra sem fá hann sjá sjálfs­víg sem einu leið­ina til að losna við stöðuga verk­ina – verki sem sagðir eru verri en þeir sem fylgja því að missa útlim eða fæða barn án deyf­ingar.

„Ég bar auð­vitað bara mjög vel á mér en kom heim org­andi af verkjum yfir­leitt eftir að hafa verið að mynda tón­leika eða kannski eitt­hvað niður á þingi,“ segir Geiri

Geiri X með mynda­vél­ina sína

Geir hefur með­höndlað verk­ina sem geta verið bók­staf­lega óbæri­legir með Oxycontin og CBD olíu. Er hann kynnt­ist fyrst Oxycontin lyfj­unum upp­lifði hann því­líkan létti en þeim fylgdu gríð­ar­legar auka­verk­anir. Mikið slen sem urðu til þess að hann nán­ast ekki komst úr rúm­inu í langan tíma. Nú er hann í gangi með að trappa sig niður af ópi­oda­lyf­inu Oxycontin og planið er þegar hann er búin að því að not­ast aðeins við lyfið í ýtr­ustu neyð og þá sam­hliða CBD sem hann seg­ist getað keypt ein­fald­lega út í Apóteki þessa dag­ana.  

Sjúk­dóm­ur­inn kom upp í kjöl­far árásar sem hann varð fyrir er hann vann sem dyra­vörður fyrir nokkrum árum. Á hann réð­ust 5 til 7 stera­boltar eins og hann orð­aði það og í árásinni fékk hann mikið högg ofar­lega á hrygg­inn með fyrr­nefndum afleið­ingum.  Hann seg­ist ekki vita hverjir voru að verki þar sem alltof langan tíma tók fyrir lög­reglu að koma á svæðið. 

Fjölkær og pankynhneigður

Ástæða þess að Þvotta­húsið hafði sam­band við Geira og bauð honum í við­tal voru pistlar sem hann skrif­aði nýlega á Facebook sem væg­ast sagt hristu upp í hans nán­asta umhverfi sem og víðar. Hann seg­ist sem sagt að í allri þess­ari umræðu um kyrk­ingar í kyn­lífi og kyn­fræðslu hafi hann ákveðið að koma opin­ber­lega fram með BDSM hneigð sína sem hann er búinn að burð­ast með í lok­uðum skáp í mörg ár. 

Geiri skil­greinir sig sem pankyn­hneigðan og fjöl­kæran og aðhyllist BDSM. Segir hann svo frá því að hann og kærastan hafi ákvað að prófa að fjölga í fjöl­skyld­unni með því að fá fleiri ein­stak­linga inn í sam­bandið en það fór ekki vel.  

„Við komumst bæði að því fyrir til­viljun að okkur lang­aði að fjölga og við náðum að fjölga í fjöl­skyld­unni í heilar þrjár vikur en okkur var dömpað því við stóð­umst ekki undir vænt­ingum,“ Segir Geiri hlæj­andi og bætir svo við. „Það voru vissu­lega von­brigði en það er samt ekki furða því ég kannski ekki í neinu lík­am­legu ástandi til að vera að leika í ein­hverjum BDSM leikjum.“

Óblíðar móttökur Stígamóta

Í færslum sínum hefur Geiri einnig sagt frá hrylli­legum atburðum sem hafa markað hann alla tíð síðan en honum var þrisvar sinnum nauðgað á hrotta­legan hátt. Það sem vekur athygli er að í tveimur til­fellum eru ger­end­urnir kven­menn.
Fyrsta brotið átti sér stað er hann var aðeins 13 ára og var ger­and­inn kven­maður í nærum­hverfi hans. Hann vildi alls ekki fara nánar út í hvernig sú mis­notkun hafi farið fram eða af hverjum, sagði það mjög við­kvæmt mál og snerti fjöl­skyldu hans. Hann hins­vegar fór yfir hvernig við­brögð Stíga­móta voru þegar hann leit­aði til þeirra nokkrum árum síðar, í von um ein­hvers­konar hjálp. Þar sagð­ist hann hafa fengið að vita að það gæti nú varla verið að hann hafi verið mis­not­aður af konu því hann væri karl­maður og hann hefði bara átt að standa betur í lapp­irnar og draga sín eigin mörk. Þetta var árið 1991 og spurði Gunnar hvort hann teldi að við­horf eða við­leitni Stiga­móta hefði eitt­hvað breyst í þessum efnum en Geiri taldi svo ekki vera. 

„Þegar ég er þrettán er ég bara tölvunörd sitj­andi inni í her­bergi og ég veit að mér verður ekk­ert fyr­ir­gefið að segja frá því en það var kona í partý­inu, eldri kona sem kom inn og mis­not­aði mig, ég fraus bara.“

Þegar Geiri fann loks hug­rekki til að fara til Stíga­móta fékk hann óblíðar mót­tökur.

„Ég enda hjá konu inni í svona litlu rými, segi henni hvað hefði gerst og fékk bara augna­ráð til­baka og hún sagði bara, við getum ekki hjálpað þér, af því að þú ert karl­maður,“ segir Geiri um heim­sókn sína til Stiga­móta árið 1991 þar sem hann sagði frá þeirri mis­notkun sem hann varð fyrir þegar hann var þrettán ára gam­alt barn.

Þessa lífs­reynslu burð­að­ist Geir með sem og höfn­un­ina sem hann varð fyrir hjá Stíga­mótum þar til að hann kynnt­ist mann­eskjum innan BDSM sam­fé­lags­ins sem tóku við honum og hjálp­uðu honum að skilja, heila og fyr­ir­gefa. Hann komst áfram að eigin sögn úr hjólfar­inu sem hann ann­ars hefði spólað fastur í.

Geiri 13 ára, aðeins 2 mán­uðum eftir fyrstu nauðg­un­ina.

„Þar lærði eg upp á nýtt að díla við tif­inn­ing­arnar, því þær voru eig­in­lega ekki til staðar, allar í keng eða bara í hnút. Ég vissi ekki hvort ég væri hrif­inn eða ekki,“ segir Geiri um ástand sitt er hann kom inn í BDSM félagið, hann bætir svo við. „Svo kemst maður að því að flestir sem leita þarna hafa lent í ein­hverju og eru einmitt að leita að þessu öryggi og trausti.“

Talið berst að tali um kyrk­ingar sem hefur verið áber­andi und­an­farið í fjöl­miðlum.

„Þetta er eins og var talað um í sjón­varp­inu, talað um kyrk­ingar, Sigga Dögg að kenna kyrk­ingar, þetta er bara ekk­ert leyft í BDSM, fólk verður að gera sér grein fyrir því að BDSM snýst ekk­ert um svo­leiðis.“

Lenti í frægum barnaníðingi

Þegar Geiri er 19 ára lendir hann í því að honum er byrlað eitri á Kringlu­kránni. Hann rankar við sér mörgum klukku­stundum síðar á stræt­is­vagna­stoppi­stöð með blóð­ugan rass og illa far­inn. Minn­ingin um ger­andan kom seinna í formi end­ur­upp­lif­ana og hann sá hver hefði verið að verki. Maðurinn sem um ræðir var Ágúst Magn­ús­son, hinn alræmdi barn­a­níð­ingur. Þessi hrylli­lega nauðgun lá lengi á sál­inni á Geira og ótt­að­ist hann að verða hafnað, fólk myndi ekki túra honum eða taka mark á.

Geiri segir svo frá nauðg­un­inni:

„Ég fer á Kringlu­kránna með vinum og vin­konu” Einhver setti eitt­hvað í glas hjá mér og það næsta sem ég man var að það var ein­hver ungur strákur að draga mig út í bíl. Ég man voða lítið annað en ég man að ég labb­aði upp ein­hvern stiga í ein­hverju húsi, sá gamla Hagkaup út um gluggan.“

Geiri um 18 ára að taka við­tal við Pál Óskar Hjálmtýrs­son.

Geiri heldur áfram. „Það eru svona flas­h­bökkin sem ég hef fengið, en svo fékk ég stóra flas­hbakkið þegar Kastjós eða Kompás fjall­aði um barn­a­níð­ing, þá kveikti ég á and­lit­inu, það var Ágúst,“ segir Geiri og vísar í þekktan níð­ing að nafni Ágúst Magn­ús­son og bætir svo við: „Ég rank­aði eitt­hvað við mér því hann hafði rekið mig í eitt­hvað, ég sá bara glottið þegar hann var að toga bux­urnar af mér á ein­hverju svona ein­breiðu IKEA rúmi. Ég vakn­aði bara í strætó­skýli fyrir framan Kringl­una nær­buxna­laus í galla­buxum, bekk­ur­inn blóð­ugur undir mér, ég fer með hend­ina niður og finn að það foss­blæðir úr rass­inum á mér.“

„Ég veit ekki og ég þori ekki að tjékka,” svarar Geiri þegar Gunnar spyr hann hvort að Ágúst sé enn á lífi.“

Hrotta­legar pynt­ingar

Síðasta mis­notk­unin var sú allra hrika­leg­asta en Geiri átti svo erfitt með að segja frá henni að hann brast í grát og stöðv­aði upp­tök­urnar, hann þurfti break. Sagði hann sagði að um leið og hann byrj­aði að rifja upp atvikið sæi hann fyrir sér kon­una, reiða. En það sem gerð­ist var að Geiri kynnt­ist konu á stefnu­móta­vef þegar hann var 24 ára gam­all. Ákveða þau að hitt­ast og stunda svokölluð BDSM skyndikynni. Hlut­verkin voru ákveðin fyr­ir­fram, mörk og leik­reglur. Geiri sagð­ist hafa af ein­hverri ástæðu læst veski sitt og skil­ríki í hanska­hólf­inu á bílnum áður en hann fór inn. Var bygg­ingin í Bolholti en fljót­lega eftir að Geiri mætir á svæðið snú­ast hjólin hratt og hann sem átti að vera dóminer­andi aðil­inn í þessum leik varð allt í einu ólaður fastur af þess­ari konu sem var miklu sterk­ari en hann og greini­lega með þaul­skipu­lögð áform. Hún ólaði hann niður og við tók margra klukku­tíma nauðgun og pynt­ingar sem fólu í sér limpumpu, alls­konar klemmur, munn­kefli og vöðva­slak­andi kyn­lífslyf. Geiri sagð­ist oft hafa misst með­vit­und á meðan þessu stóð af sárs­auka. Þegar þessi 180 cm háa kona sem hann hefur aldrei séð eftir þetta, hafði lokið sér af henti hún honum út alblóð­ugum og stórslös­uðum. Hann sagð­ist ekki hafa gengið í heilu viku á eftir og það eina sem í raun hafi komið upp í huga hans á þessum tíma var bara sjálfs­morð sem hann svo hafði ekki hug­rekki til að fram­kvæma.

„Ég verð heimskur og fer á pri­vat.is sem var stefnu­móta­vefur og sé þar þar konu á fer­tugs­aldri sem vill BDSM skyndikynni. Við vorum búin að spjalla um allt á net­spjall­inu, þar átti ég bara að binda hana niður og flengja, það voru bara þau mörk, hún vildi verða flengd og nið­ur­lægð. Hún var 180 og ég er 174, hún var stærri en ég, hún hefði haft mig í slag sko, hún var það mössuð. Næsta sem ég veit er að hún er búin að festa hend­urnar með svona ólum með frönskum rennilásum, stekkur niður og festir fæt­urnar líka og færir þær í sundur, svona fær­an­legt á bekknum, svo setur hún munn­kefli upp í mig með smá gati, risa­stórt alveg, þannig að öskrin í mér urðu eig­in­lega sko eins og svona ýlfur. Ég skal bara orða þetta svona, hún nauðg­aði mér hrotta­lega, það hrotta­lega að ég gat varla gengið í viku. Hún setti geir­vörtuklemmur á mig og festi við munn­keflið á mér það fast á ef ég hreyfði á mér haus­inn að þá blæddi. Það leið yfir mig, ég veit ekki hvað oft af sárs­auka. Hún var meira að segja með popper sem hún setti yfir nefið á mér þannig að þegar ég fór að öskra sem mest að þá þagn­aði ég niður,” segir Geiri um þennan hræði­lega atburð. Popper er notað við enda­þarms­mök en það slakar á vöðvum í lík­am­anum. Það er ólög­legt hér á landi en hægt er að kaupa það í Bret­landi til dæmis, í næstu kyn­lífs­búð.

Þetta brot varð aldrei kært, það var aldrei gerð nein áverka­skýrsla á meiðslin sem hann hlaut af þessum ólýs­an­legu pynt­ingum. Hann sagð­ist ein­fald­ega ekki hafa haft það í sér sökum þess að hann skamm­að­ist sín of mikið og gerir enn. Hann sagð­ist varla getað sagt bræðr­unum í Þvotta­hús­inu frá þessu og horft í augun á þeim því hann skamm­að­ist sín svo mikið. Fyrir tæp­lega tveimur vikum kom vinur Ásgeirs, sem hefur tengsl við und­ir­heim­ana, í heim­sókn og sagði honum að þetta atvinnu­hús­næði hafi á sínum tíma verið notað til að fjár­kúga karl­menn. Þar var þeim nauðgað og það tekið upp með földum mynda­vélum, veski þeirra tekið og skil­ríki og fé svo kúgað út úr þeim með hót­unum um mynd­bands­birt­ingar af nauðg­un­unum. Taldi vin­ur­inn lík­legt að upp­taka væri til af nauðgun hans en vegna þess að Geiri tók ekki veskið með sér inn, hafi ekki verið hægt að kúga fé úr honum og þess vegna hafi konan orðið svona reið. Vinur hans þorði ekki að segja hverjir hefðu staðið fyrir þessu af ótta við þá en þeir eru úr und­ir­heimum Reykja­víkur.

Ömurleg viðbrögð á samfélagsmiðlum

Við­brögðin eftir að hann kom út með þessar frá­sagnir á þekktum femínista­grúppum voru slá­andi og urðu til þess að hann fékk hálf­gert tauga­á­fall og þurfti að kalla til sál­fræð­ing sem kom heim til hans. Vinkona hans sendi honum skjá­skot af vegg­skila­boðum þar sem yfir­lýstir femínistar rengdu frá­sögn hans og sögðu meira að segja að hann væri með þessu lík­lega bara að reyna að fría sjálfan sig gegn mögu­legri nauðg­un­ar­kæru eða ásök­unum á höndum hans sjálfs. 

„Á föstu­dag og dag­ana á undan voru vin­konur mínar að senda mér skjá­skot úr fem­inískum grúppum, eða svona hópum, þar sem var gert grín að þessu. Karl­mönnum er ekki nauðgað, honum hlýtur að hafa þótt það gott, hvað er hann að væla og ein vin­kona mín sendir mér skjá­skot úr nokkuð stórri grúppu þar sem er gert lítið úr mér. En á föstu­dag sendir mér ein á feis­búkk messen­ger frá grúppu sem hún vildi ekki segja mér hver væri en þar stóð að ég hljóti að vera að birta þetta því ég eigi von á ákæru fyrir nauðgun eða eitt­hvað. Ég hefði bara vilja sleppa við það að það væru til mann­eskjur sem trúa því ekki að það sé hægt að nauðga karl­mönnum. Mér finnst það óeðli­leg hugsun hjá nokk­urri manneksju að halda því fram að karl­mönnum geti ekki verið nauðgað, það hlítur að vera eitt­hvað alvar­legt að hjá þeim aðila.“

Hann steig fram með sögu sína og seg­ist hafa fengið sama og engin stuðn­ings­við­brögð nema frá örfáum. Hann hafi fengið mikið af alls­konar dóna­skap og ofbeldi í einka­skila­boðum sem honum þyki ótrú­lega leið­in­legt og sárt því það eina sem hann seg­ist vera að reyna að gera er að segja hlut­ina upp­hátt, skila skömminni, því hans mesti ótti er að deyja úr sjúk­dómnum sem hann þjá­ist svo illa af alla daga og taka með sér þessi leynd­ar­mál ósögð. Einnig seg­ist hann vona að fleiri karl­menn með svip­aða reynslu öðlist hug­rekki til að stíga fram og tala opin­ber­lega um sinn sárs­auka í stað þess að bera hann í hljóði í ótta við einmitt að verða ekki tekin trú­ar­legur, látið njóta vafans eins og hinir svoköll­uðu fem­inistar hafa und­ir­strikað svo mikið sem hinu einu réttu leið í allri þess­ari metoo bylt­ingu, að fórna­lamb­inu sé alltaf leyft að njóta vafans.

„Ég skamm­ast mín fyrir þetta dags­dag­lega, ég get ekk­ert gert við skömm­ina, ég sagði ekk­ert, ég kærði ekk­ert, ég gerði ekk­ert.“

Gunnar spurði Geira hvort hann finndi fyrir reiði í garð fem­insta. „Á föstu­dag hefði ég sagt já en í dag segi ég nei, ég vor­kenni þeim,” segir Geiri og und­ir­strik­aði í við­tal­inu að hann hefði ekki fengið neinn stuðn­ing nema frá einni mann­eskju, fem­inista í kjöl­far þess­ara færslna sem hann birti. „Ég er ekk­ert fúll út í fem­inista, ég er bara sár útaf því að það er alltaf sagt að eigi að sýna þolendum stuðn­ing, en hvar var stuðn­ing­ur­inn þegar ég kom fram, var útaf því að ég er með typpi en ekki píku?“ Segir Geiri í lokin og bætir við: „Karl­mönnum er líka nauðgað segir Geiri og þeir, eins og öll fórn­ar­lömb ofbeld­is­verka eiga þann rétt að einmitt njóta vafans og vera tekin alvar­lega, óhað kyni, kyn­hneigð, aldri og sam­fé­lags­stöðu.“

Hér fyrir neðan má hlusta á þetta átaka­lega við­tal í heild sinni:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Menning

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Nýtt bóka­for­lag vill efla íslensku­lestur meðal fólks af erlendum upp­runa

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar

Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu

Myndband
Menning

Luthers­son frum­sýnir blóð­uga ást­ar­sögu í eyði­mörk Kali­forníu