Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Ragga kallar ekki allt ömmu sína: „Þá kemur óhjákvæmilega á einhverjum tímapunkti herra Fokkit“

Ragga kallar ekki allt ömmu sína: „Þá kemur óhjákvæmilega á einhverjum tímapunkti herra Fokkit“

Nýjasti gestur bræðr­anna Gunnars og Davíðs Wiium í hlað­varps­þætt­inum Þvotta­húsið er engin annar en sál­fræð­ing­ur­inn, pistla­höf­und­ur­inn, einka­þjálf­ar­inn og hlað­varpar­inn Ragn­hildur Þórð­ar­dóttir, betur þekkt sem Ragga Nagli. 

Ragga nagli er kona sem hefur alltaf haft nóg fyrir stafni, mörg járn í eld­inum á sama tíma. Hún talar um sig sem mann­eskju sem er full af krafti en með athygl­is­brest sem lýsir sér þannig að hún á erfitt með að ein­beita sér að einum hlut í einu. Hún kann best við sig í aðstæðum þar sem hún multita­skar með marga glugga opna á browsernum eins og hún orðar það.

Ragga Nagli

Með „urlandi“ athyglisbrest

„Ég er með urlandi athygl­is­brest, ég loka aldrei skápum á eftir mér, ég loka engum hurðum, loka engu, ég fer bara úr fötum og þau eru bara á gólf­inu, ég er bara drasl­ari, ég er með 17 glugga opna í tölv­unni minni, 18 word skjöl og það má ekki loka neinu því ég er að vinna í þessu öllu, svo já ég er með athygl­is­brest,“ segir Ragga á fyrstu mínutu við­tals­ins. 

„Ég meina, við komum inn á bið­stofu hjá lækni og hvað gerum við, sím­inn. Sitjum í strætó, sím­inn. Heilinn er aldrei í pásu.Það er ekk­ert sem róar hjá okkur streitu­kerfið jafn hratt og þessi rólega útöndun.“

Ragga tal­aði um það hvernig var að alast upp á níunda ára­tugnum.

„Nú ólumst við upp í átt­unni, þar var engin far­sími, það var engin tölva. Pabbi minn kom bara heim úr vinn­unni hjá Lands­virkjun kl. fimm og þá var ekk­ert hægt að ná í hann.“ Segir Ragga og bætir svo við, „Þá var hann bara búin að stimpla sig út og þá fór hann bara að leika við stelp­urnar sínar, borða og svo bara tala við mömmu og svo eitt­hvað horft á sjón­varp og svo bara farið að sofa, hann var með ró eftir kl. fjögur, fimm á dag­inn.“

Fitness fór illa í hana

Ragga á sér langan feril innan heilsu og hreyf­ingar fór yfir með bræðr­unum hvernig maður getur nálg­ast hinar ýmsu stefnur innan bæði nær­ingar og hreyf­ingar.

Ragga vildi meina að þunn lína væri oft á milli þess að lifa heil­brigðum lífstíl og að detta í algjöra þrá­hyggju í þessum efnum. Í því sam­hengi minnt­ist hún þess að þegar hún tók þátt í fit­ness hefði hún í raun dansað á jaðr­inum hvað varðar átröskun. Hún sagði bræðr­unum sögu af því þegar hún missti skífu á fót­inn á sér rétt eftir fit­ness mót og braut á sér stórutá. Hún þurfti í kjöl­farið að bíða heila átta tíma á bráða­mótöku áður en hún komst að og fékk sína með­höndlun. Hún fór að finna til hung­urs og spurði í afgreiðsl­unni hvort ekki væri hægt að fá ein­hvern mat. Afgreiðslu­konan bauð henni ban­ana sem Ragga afþakk­aði því í nið­ur­skurð­inum fyrir mót eru ban­anar skil­greindir fit­andi. Hún sagð­ist hafa verið svo veik í raun­inni að tábrot­inn upp á spít­ala hefði hún frekar sleppt því að borða en að láta ofan í sig ban­ana.

Ragga við æfingar

„2006/7 keppti ég í Fitness og það var ekki gott fyrir haus­inn á mér. Það var ein svona öfga stefna, það var telj­andi á fingrum ann­arar hvað maður mátti borða.“

„Hvað ger­ist þegar við erum í streytu, blóð­þryst­ing­ur­inn fer upp, blóð­syk­ur­inn fer upp. Lifrin losar glúkósa, allt blóðið fer úr mag­anum út í vöðvana því við erum að fara berj­ast. Þannig að ef við erum stöðugt í þessu kerfi þá getum við ímyndað okkur, það kemur háþrýst­ingur, allt of há blóð­fita, alltof hár blóð­sykur, við förum að fá syk­ur­sýki tvö, við fáum lang­vinna sjúk­dóma,“ segir hún enn­fremur.

Hinar og þessar matarvenjur

Talið barst að hinum og þessum mat­ar­venjum, ketó, vegan og carnivore svo eitt­hvað sé nefnt. Ragga sagð­ist oft heyra af fólki sem snýst til þess­arar öfga­kenndu mat­ar­venja í hálf­gerðri örvænt­ingu og þá yfir­leitt sem hluti af eins­konar breyt­ingar á útliti lík­am­ans. Fólk snýst í ein­hverja átt þar sem ein­hver annar leggur regl­urnar um hvað má og hvað má ekki, fólk helst við í ein­hvern tíma en svo bankar herra fokk it upp á og allt fer í fokk. Fólk springur á limm­inu og er allt í einu farið að borða út fyrir til­tekna mat­ar­venju og þá í skömm og sekt yfir að hafa svikið mál­stað­inn eða þessa ákvörðun. Allar ákvarð­anir hvað varðar hinar og þessar mat­ar­venjur verða að vera á heið­ar­legan hátt teknar eigin for­sendum og rúmt til veggja verður að vera í þeim efnum vil Ragga meina. 

„Um leið og við sleppum kol­vetn­unum sem binda vökva í lík­am­anum pissum við út mik­illi þyngd og við höldum að við erum að grenn­ast en í raun­inni erum við að missa mikla vatns­þyngd. Svo bætum við þessu á okkur aftur þegar kol­vetnin koma aftur inn,“ segir Ragga varð­andi Ketó og bætir við að karl­mönnum gangi vel á Ketó. „En karlar til dæmis, þeir fún­kera rosa vel á Ketó, þetta er bara steik og bernese og eru bara ógeðs­lega sáttir.“

Ragga vill meina að það skipti máli hver ásetn­ing­ur­inn sé þegar fólk er að breyta mat­ar­ræð­inu.

„Hver er ásetn­ing­ur­inn? Er hann útlits­mið­aður, er hann frammi­stöðu­mið­aður, þetta skiptir máli. Flestir, örugg­lega 90% af þeim sem til­einka sér ein­hvers­konar mat­væla­stefnu eru að gera það í leit af ein­hverju öðru útliti.“

„Það sem að ger­ist óhjá­kvæmi­lega er að það kemur alltaf ein­hver rebelismi eða resistance í okkur, ég er ekki sjálf að taka ákvarð­anir, mér finnst þessi matur ekki góður, þessi matur er ekki að næra sál­ina í mér og það er ein­hver annar sem stýrir mér og þá kemur óhjá­kvæmi­lega á ein­hverjum tíma­punkti herra Fokkit,“ segir Ragga og er þá að tala um hinar og þessar mat­ar­venjur sem kannski gætu flokk­ast sem öfgar í ein­hverja átt.

Manneskja í yfirþyngd getur verið heilbrigð

Sama gildir með hennar reynslu af hreyf­ingu, hún hafi oft í gegnum tíð­ina ofþjálfað sig en náð að pönk­ast í gegnum það á þrjósk­unni en sé farin að eiga mun erf­ið­aðra með það í dag, hún seg­ist ein­fald­lega ekki komst upp með það í dag. Þetta jafn­vægi sem hún segir að sé nauð­syn­legt að finna hvað varðar hreyf­ingar og nær­ingu sé oft erfitt. Vegurinn sé mjór og það stutt á milli öfga að það sé nán­ast eins og að báðir heimar skarist oft á tíðum. Hver og einn verði að hlusta á lík­amann og verði að gefa efn­inu rými til að hvíla í. Það að æfa mikið og reglu­lega segir hún að sé ekk­ert endi­lega nei­kvætt og þrá­hyggju­tengt, allt fari þetta eftir ásetn­ing og for­sendum og því mik­il­vægt að hver og einn sé algjör­lega heið­ar­leg/ur við sjálfan sig í þessum efnum.

Gunnar spurði hana hvort feit mann­eskja, og á þá við mann­eskju sem skil­greind er mann­eskja í yfir­þyngd út frá ein­hverjum stöðlum, geti verið í heil­brigðri heilsu­hegðun. Ragga sagði svo 100% vera, þessir staðlar séu alls ekki til að taka mikið mark á hvað það varðar. Greip þá Davíð inn og benti á að fólk geti verið alls­konar og mis­þungt í þeim pundið, og sagð­ist vera nálægt 100 kg og einmitt einn af þeim sem myndi flok­ast sem þungur miðað við hæð. 

„Ef að mann­eskja sem er í yfir­þyngd getur labbað upp stig­ann án þess að standa á önd­inni, hún tekur kannski 3 poka og krakk­ann og labbar upp stig­ann og bara ekk­ert mál, þá er hún jafn­vel í betra formi en sá sem er búin að koma sér í oft mjög mikla und­ir­þyngd til þess að geta litið út á ein­hvern ákveð­inn hátt„ sagði Ragna.

Djammið orðin mikil vinna fyrir konur

Gunnar hafði áhuga á að fara aðeins í mál sem snúa að meetoo með henni Röggu. Ragga skrif­aði fyrir um ári síðan pistil vegna morðs­ins á Söru Everard þar sem hún var­aði konur við hinu og þessu og skrif­aði um hvernig konur virð­ast eiga það sam­eig­in­legt að grípa til alls­konar aðferða sem snúa að mögu­legri sjálfs­vörn gegn mögu­legri árás sem þær geta átt í hættu að verða fyrir. Nefndi hún í því sam­hengi að ganga með lykil sem hálf­gert hnúa­járn, ekki vera með báða head­phon­ana á sér á göngu, ferð­ast aðeins um undir ljósastaurum, þykj­ast vera í sím­anum og svo fram­vegis. Hún tal­aði einnig um nauð­syn þess að konur ættu að forð­ast hinar og þessar aðstæður sem og hina og þessa staði. Í því sam­hengi vildi Gunnar vita hvað henni fynd­ist um þær aðstæður sem skap­ast innan um fólk sem er að sljóvga dóm­greind og færa mörk hað varðar hvatir og lang­anir með áfengi og eit­ur­lyjum. Hann vildi vita hvort djam­mið myndi þá ekki flokk­ast sem einn af þessum hættu­legu stöðum sem konur ættu að forð­ast. Ekki vildi nú Ragga meina það og sagði það vera mann­rétt­indi að konur ættu að getað ferð­ast hvert sem er og gert hvað sem er án þess að eiga það í hættu að lenda í áras.

„Passaðu glasið þitt, haltu yfir, vertu með nagla­lakk sem breytir um lit er þú dýfir í glasið, drekktu úr flösku, pass­aðu að eng­inn kom­ist nálægt drykknum þínum. Þetta er orðin svo mikil vinna fyrir okkur,“ segir Ragga. Davíð spyr hana hvað við getum gert og hún svarar að við getum byrjað á strák­unum. „Þeir eru nátt­úru­lega 99% ger­end­urnir en sem betur fer er 99% af strákum sem að haga sér vel gagn­vart konum, bara kunna mörk og eru ekki að berja, nauðga og byrla.“ Hún bætir svo við: „Við þurfum kannski bara að koma með fræðslu inn í skól­ana, byrja miklu, miklu fyrr, förum inn á leik­skól­ana, förum í meiri for­vörn.”

Talið barst því næst að úræðum sem snúa að heilun fórn­ar­lamba þeirra sem verða fyrir þessum brotum. Hvort það að ger­and­inn sé ein­fald­lega bara „outaður” eða „slauf­aður” sé nóg. Gunnar spyr hvaða máli það skipti ef ger­andi bara segi upp vinn­unni sinni og hverfi af sjón­ar­svið­inu. Er það bara nóg spyr hann Röggu eða þarf að eiga sér stað ein­hvers­konar sátta­miðlun milli ger­and­ans og þol­and­ans og þá alltaf á for­sendum þol­and­ans? Ragga sam­sinnir því og segir að nauð­syn­legt sé að hennar mati að ger­and­inn raun­veru­lega sýni iðrun og gang­ist við sínu broti ef það hafi átt sér stað. Hún segir einnig að brotið sé aldrei hægt að rétt­læta með neinum hætti en hleðsl­unni í grunn­inn sé hægt að breyta því í raun snú­ist allt um ein­hvers­konar fyr­ir­gefn­ingu, standi hún til boða. Einnig að vald­efl­ing eigi sér stað í rústum þess ofbeldis sem hefur átt sér stað og skömminni skilað þangað sem hún í raun á heima.

„En þetta er erfitt og við viljum auð­vitað ekki taka þessa drengi sem eru 99% af hópnum og ein­hvern­veg­inn að blammera þá heldur frekar bara að vald­efla þá og segja bara að svona gerum við. Það þarf að að útskýra fyrir þeim hverjar afleið­ing­arnar fyrir konu ef þú nauðgar henni eða ræðst á hana, áreitir hana kyn­ferð­is­lega. Hverjar afleið­ing­arnar eru fyrir hana. Ég sé bara þessar konur sem eru að stíga fram, sem eru ungar og ger­end­urnir oft bara mun eldri menn eins og nýleg dæmi sýna. En þessar konur og við snúum okkar aftur að snjall­sím­anum, þær alast upp með þennan platt­form aðgengi­legan og þær þekkja hann og kunna á hann. Segja hlut­ina upp­hátt og þetta, ég hef minn eigin miðil til að koma því á fram­færi. Áður fyrr þurfti maður að hringja í útvarp eða dag­blað og biðja um að eitt­hvað yrði birt, við höfðum ekki þennan aðgang.”

Hún bætir svo við. „Og þær vita, ok hver eru mörkin? Og hvenær ferðu yfir þau? Og hvað er í lagi og hvað er ekki í lagi?”

Í þess­ari umræðu fór Gunnar á smá flug og sagð­ist halda að mik­il­vægt væri að hver og einn axli ábyrgð, sama hvort karl­maður myndi skil­grein­ast sem ger­andi eða ekki verður að hann að axla ábyrgð. Hann nefndi í því sam­hengi ábyrgð­ina sem hvílir á þeim sem lifir heil­brigða karl­mennsku og myndi kannski líta á sig sem út fyrir þessa ger­anda – þol­anda jöfnu. Ábyrgðin sem hvílir á hinum heil­brigða snúi að upp­lýs­ingu, fræðslu og stuðn­ing. Svo þar af leið­andi sé mik­il­vægt að taka sér skýra afstöðu gegn hvers­konar ofbeldi, kyn­bundnu eða ekki og með árvök­ulu auga vaka yfir sínu nán­asta umhverfi og vera til­bú­inn að bregð­ast við ef þörf er á. Þessu sam­sinnti Ragga Nagli enda kallar hún ekki allt ömmu sína.

„Þeir segja, „má ekk­ert lengur? Það hefur aldrei mátt, við erum bara að láta vita af því núna! Þetta er búið að vera mikið hita­mál í mörgum mat­ar­boðum, þar sem strák­arnir eru bara, „ég meina hvað eigum við eig­in­lega að gera? Og það er bara að taka fulla ábyrgð. Það þýðir ekk­ert að koma með ef-afsök­un­ar­beiðni. „Ég er rosa sorry EF ég hef sært ein­hvern.” Það er þol­and­ans að fyr­ir­gefa en það rétt­lætir ekki brotið, ég er ekki að segja að ég sam­þykki brotið eða segi að þetta sé í lagi en ég ákveð að fyr­ir­gefa þér fyrir mig, ekki fyrir þig sem ger­anda heldur fyrir mig af því að þá líður mér betra, af því að þá er ég í meiri hug­arró,” segir Ragga og það heyr­ist á henni að þetta er henni mjög hug­leikið.

„Við viljum sjá að strákar séu hug­rakk­ari inn í hópnum og segja , HEI GAUR, ÞETTA ER EKKI Í LAGI SKILIRÐU!”

Ekki má gleyma teygj­unum


Andlegur þroski snýst um fólki í kringum mann

Í lokin spyr Gunnar hana Röggu hvort hafi ein­hver loka­orð sem gætu lýst því hvernig hún ræktar sinn and­lega þroska.

„Mér finnst minn and­lega þroski alltaf snú­ast um hvaða fólk ég er með í kringum mig, að umkringja mig fólki sem að nærir mig, fólki sem búa yfir ein­hverjum eig­in­leikum sem mér finnst vera ákjós­an­legir og ég vil til­einka mér þá og reyna þannig ein­hvern­veg­inn að vaxa í sam­skiptum og búa til meira bil á milli áreytis og við­bragðs. Þú veist að velja við­brögð mín, í staðin fyrir að vera alltaf í þessu reaction þá frekar að vera response.”

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Menning

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Nýtt bóka­for­lag vill efla íslensku­lestur meðal fólks af erlendum upp­runa

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar

Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu

Myndband
Menning

Luthers­son frum­sýnir blóð­uga ást­ar­sögu í eyði­mörk Kali­forníu