Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Þrjár árásir fyrir tvítugt mörkuðu Olgu lengi: „Ef Pútin væri kona þá væri ekki stríð“

Þrjár árásir fyrir tvítugt mörkuðu Olgu lengi: „Ef Pútin væri kona þá væri ekki stríð“
Olga Björt Þórð­ar­dóttir. Mynd: Aðsend

Hér er brot úr nýjasta við­tali Wiium bræðra í hlað­varps­þætt­inum Þvotta­húsið en fyrir nokkru hófst sam­starf milli Mannlífs og Þvotta­húss­ins.

Nýjasti gestur bræðr­anna Gunnars og Davíðs Wiium í hlað­varps­þætt­inum Þvotta­húsið er engin önnur en blaða­konan, rit­stýran, kenn­ar­inn og fem­inist­inn Olga Björt Þórð­ar­dóttir.

Olga Björt Þórð­ar­dóttir

Þemi við­tals­ins var meetoo bylt­ingin og almennt sam­skipti kynj­ana frá vinkli ger­anda og þol­anda. Gunnar rak augun í grein sem Olga skrif­aði í lok Janúar, grein þar sem Olga fór yfir atburði sem hún varð fyrir sem barn. Í grein­inni lýsti hún atburðum sem ollu henni mikla áfallastreitu og hefur leitt til þess á vissan hátt átt, að hún hefur átt erfitt með að treysta karl­mönnum síðan.

Þrír atburðir sem skyldu eftir ör

Atburð­irnir sem hún lýsti áttu sér stað á mis­mun­andi ald­urs­skeiði Olgu og voru mis alvar­legir. Það fyrsta sem hún nefndi í þessu sam­hengi var þegar tveir drengir á leik­skóla lokk­uðu hana bak­við skúr fjög­urra ára gamla og börðu hana. Annað dæmið var er Olga var tíu ára og vinir hennar reyndu með valdi að kom­ast undir pilsið á henni sem svo reyndar ekki tókst því hún varð­ist með kjafti og klóm. Átján ára gömul lendir hún í því í partýi að það ráð­ast að henni drengir á svip­uðu reki. Á meðan tveir drengir héldu henni fastri, klippti einn af henni tals­vert af hári. Sama ár var henni svo nauðgað. Þessi nauðgun var aldrei kærð því í þá daga hafði það lítið upp á sig sagði Olga.

„Þarna er ég bara að leika mér á leik­skól­anum og það koma tveir strákar að mér, einn jafn gam­all mér og annar ári eldri og þeir kalla á mig á að koma bak­við kofa því þeir ætla að gefa mér nammi, ég fer á bak­við kof­ann og þar bara lemja þeir mig,“ segir Olga er hún talar um fyrsta áfallið.

„Í annað skiptið sem ég verð óör­ugg þegar ég hélt að ég ætti að vera örugg, þá var ég bara að leika við bróður minn og nokkra vini mína bara heima, örugg­lega 8 eða 9 ára og ég var í svona pilsi og allt í einu dettur einum í hug að skoða undir pilsið hjá mér, sjá hvað var í gangi þar. Bróðir minn tók ekki þátt í þessu en hinir fóru alveg mark­visst í að sjá hvað var undir pils­inu hjá mér. Ég náði að berj­ast eins og ljón á móti þannig að þeir komust ekki upp með þetta.“

Olga tal­aði einnig um það þegar hún var stödd í partýi 18 ára gömul og nokkrir strákar á hennar aldri ráð­ast á hana. „Allt í einu segir einn, „klippum hárið af Olgu“, allir halda að hann sé að grín­ast en svo tekur hann upp sauma­skærin og hleypur á eftir mér, tveir með honum og þeir halda mér niðri á ein­hverjum bedda meðan að hann klippir af mér hárið, ég var með sítt hár. Þarna voru þrír strákar á móti mér einni í aðstæðum þar sem ég hélt ég væri örugg í, ég var bara að fara í partý.“ Olga bætti svo við að hún hafi átt erf­ið­ast með að fyr­ir­gefa „djamm-Olgunni.“ „Ég átti erf­ið­ast að fyr­ir­gefa djamm-Olgunni þó að hún hafi verið bara 16 ára og fram til 25 ára.“ Gunnar spyr hvort að henni hafi fund­ist hún ábyrgð­ar­laus og Olga svarar. „Já, þó að þetta hafi ekk­ert verið mér að kenna þá var ég bara ekk­ert búin að gera upp þessa skrítnu for­tíð. Mér finnst ekki að neinn eigi að þurfa að forð­ast neinar aðstæður, sér­stak­lega ekki á Íslandi. En við vitum aldrei hvar fólk veldur öðru fólki skaða en djam­mið er nátt­úru­lega eins og þú segir áhættu­svæði en ég vil ekki beint tala um stríðs­svæði því þolendur eru ekki beint í stríð­inu.“

Svart­hvít Olga

Þessi atvik hafa að hennar sögn markað hana og hennar tauga­kerfi og í því sam­hengi nefnir hún í grein­inni sem hún skrif­aði, hve var um sig hún getur verið í aðstæðum sem eðli­leg­ast þætti að ganga frjáls um. Þessi þrjú atvik sem hún fer yfir í grein­inni hafa fram­kallað í henni vissar teng­ingar sem fá hana til að stífna upp eða nán­ast lam­ast af ótta við að verða fyrir ofbeldi í ákveðnum aðstæðum, aðstæðum sem fólk, undir venju­legum kringu­stæðum, myndi ekk­ert endi­lega upp­lifa sem hættu­legar.

„Þetta með byrl­anir per se er nátt­úru­lega bara ein­beittur brota­vilji, þú kaupir þetta bara ekk­ert á N1 eða á barnum, þú tekur það með á djam­mið og þegar þú ert búinn að byrla á djamm­inu og tekur döm­una eða kall­inn með í leigu­bíl og ferð með hann eða hana heim. Þetta er bara eins og far­aldur og búið að vera þannig í ára­tugi,“ segir Olga og bætir við: „Karl­kynið er nátt­úru­lega ekk­ert eina kynið sem beitir ofbeldi, við vitum alveg að ofbeldi er alls­konar.“

Ofbeldi gegn konum, rót­gróið sögu Íslands

Í kjöl­farið á nýlegum aðstæðum sem hún upp­lifði, þar henni fannst sem hún væru í hættu án nokk­urra greini­legra merkja um að svo væri, lagð­ist hún sem for­vit­inn blaða­maður og grúsk­ari í að kynna sér sögu ofbeldis gegn konum á Íslandi frá land­námi, sam­hliða kven­rétt­inda­bar­átt­unni. Hún leit­aði einnig álits sér­fræð­inga, m.a. í íslenskum fræðum og bók­menntum, til að hafa sem réttastar upp­lýs­ingar í með­fylgj­andi grafi og búa þannig til mögu­legt mark­vert sam­hengi. Það hvarfl­aði nefni­lega að henni að fyrst áföll erf­ast þá geti menn­ing og for­rétt­indi sann­ar­lega gert það líka.

Grafið ma sjá hér:

Það var einmitt þessi grein Olgu sem vakti áhuga Gunnars um að taka þetta spjall og um mál­efni sem hann sjálfur fús­lega við­ur­kenndi að hrein­lega olli honum oft á tíðum kviða, mót­þróa og ónoti. Hann sagð­ist vita að spjallið og ávarpið um Meetoo hefði alltaf legið í loft­inu en núna hefði hann fyrst verið til­bú­inn að taka það.

Gunnari vakti mikil for­vitni á að heyra þessa sögu sem Olga hafði grafið upp sem lýsir í raun hvernig sam­skiptum kynj­ana hefur verið háttað frá bók­staf­lega örófi alda og til ald­mót­anna 1900 þar sem ein­hver hreyf­ing fór af stað fyrir til­stilli kven­skör­unga sem fóru þá að hrófla við því sem oft er skil­greint sem feðra­veldið. Nefnir hún í því sam­hengi hvernig konur fengu full­trúa á Alþingi sem þar með mark­aði upp­haf á vissri upp­ræt­ingu á því sem hún kallar menn­ing­ar­legt ofbeldi, þar með talið kyn­ferð­is­of­beldi. 

„Það er nátt­úru­lega svo mis­jafnt hvort að við séum föst í skil­grein­ingum eða hvort við erum bara föst í til­finn­ing­unum fyrir ástand­inu. Við þurfum ekki alltaf að vera að skil­greina allt, maður veit þetta alveg, ofbeldi er ofbeldi. Margir eru svekktir yfir því að orðið feðra­veldi sé notað í þessu sam­hengi, að það sé faðir í orð­inu en orðið móð­ur­sýki hefur verið mikið notað í gegnum ald­irnar og ekki hefur sagt mikið við því,“ sagði Olga við Gunnar.

Metoo

Þessi sveifla hefur fært okkur til dags­ins í dag þar sem Meetoo bylt­ingin sem hefst fyrir fjórum árum með því að þolendur í raun af öllum kynjum fara að segja hlut­ina upp­hátt. Gunnar spurði Olgu hvernig sýn hún hefði á svoköll­uðum „dóm­stóli göt­unnar.“ Þá hvort þessi aðferð sé komin til að vera og hvort hún sé hér af nauð­syn út frá ger­enda­vænu dóms og lög­gæslu­kerfi. Olga benti Gunnari á það að þessi svo­kall­aði dóms­stóll göt­unnar væri nú í raun fyrir til­stilli múgsins, þá meint að við­brögð fólks á sam­fé­lags og frétta­miðlum við frá­sögn þol­anda væri aldrei á ábyrgð þol­and­ans. Þetta fannst Gunnari mjög áhuga­verður og mik­il­vægur punktur því í raun er þol­and­inn aðeins að nýta sér tján­ing­ar­frelsi og lýsa atburði eða atviki þar sem mörk við­kom­andi hafi verið brotin og að það sé á allan hátt óásætt­an­legt. Hver við­brögðin séu svo í kjöl­farið er svo algjör­lega í höndum múgsins.

Olga Björt

„Við þekkjum öll þolendur og ger­endur, hvort sem séu meintir ger­endur eða dæmdir ger­endur eða hvað sem er, þannig á svona litlu landi er þetta rosa­lega oft mjög erfitt. Þegar Meetoo byrj­aði 2017, var lögð áheyrsla á vinnu­staði en bylgjan núna er að leggja miklu meiri áheyrslu á kyn­ferð­is­of­beldi í nánum sam­böndum, af hendi þeim sem fólk treystir,“ sagði Olga og hélt áfram: „Þolendur stíga fram yfir­leitt með nafn­lausar sögur, nöfnum er jú ein­hvers­staðar hvíslað en það eru fjöl­miðlar sem að nefna eða ger­endur sjálfir. Það er ekk­ert meira vald í höndum þolenda heldur en það. Svo tekur bara sam­fé­lagið við sem er nátt­úru­lega bara kommenta­ferkið, fyr­ir­tækin, sponsorar. Dóms­kerfið virkar bara ekki betur, þol­and­inn getur ekki borið ábyrgð á því hvað sam­fé­lagið gerir í fram­hald­inu.“

Þau fóru í við­tal­inu, sem einna helst minnti á ein­hvers­konar vina­sam­tal, yfir hin og þessi hug­tök tengt Meetoo. Hugtök og nýyrði sem hafa sprottið upp út frá akademískum öngum kynja­fræðis einna fremst. Gunnar vildi meina að mót­staða margra karl­manna í kringum hann gagn­vart þess­ari orð­ræðu, mark­að­ist oft hrein­lega af því að margir menn skilja ein­fald­lega ekki orðin og hug­tökin. Að það sé ein­fald­lega orð­ræða í gangi þarna úti sem í raun sé alls ekki á „streetlevel“ og því ein­fald­lega of flókin fyrir marga. Olga var ekk­ert endi­lega sam­mála Gunnari um það en bæði voru þau sam­mála um að tím­arnir væru að breyt­ast og með því þurfa hug­tökin og þá sér­stak­lega hleðslan innan hug­tak­ana að fá að sökkva inn ef við eigum að getað breyst sem mann­eskjur í sam­neyti við aðrar mann­eskjur. 

„Það er ekki út af konum sem karlar ótt­ast að opna sig, þeir eru hræddir við hvað öðrum körlum finnst um það. Það að karlar þora ekki að stíga fram og segja hvernig þeim líður, veldur bara svo miklum sjálfs­vígum,” segir Olga og bætir svo við: Þetta er eitt af því sem fem­in­ism­inn vill breyta því við erum fyrstar til að stíga fram og trúa þolendum af öllum kynjum.Við erum í raun­inni bara fem­inistar og við erum í raun­inni bara að berj­ast fyrir betri heimi, það er svo gott fyrir öll kyn. Ef Pútin væri kona þá væri ekki stríð. Ég vil alveg meina það, það er engin kona sem hefur stýrt stríði í heim­inum.“

Þau fóru inn á í sam­tali sínu hvernig sátt­ar­með­ferð eða ferli gæti verið háttað. Gunnar vildi meina að oft á tíðum væri fólki bara ein­fald­lega ekki kennt að gang­ast við brotum sínum, taka sjálfan sig og hegðun sína með nógu miklum fyr­ir­vara svo að mað­ur­inn sjái flís­ina í eigin auga. Olga benti á að klár­lega væri vöntun á eins­konar hand­riti í þessum efnum, eins­konar við­bragðs­á­ætlun fyrir meinta ger­endur. Hvernig það hand­rit gæti mögu­lega litið út vissi hún ekki en í þessu sam­hengi sam­sinnt­ust þau Olga og Gunnar að svo­kallað níunda spor innan tólf spora kerfis gæti klár­lega virkað áhrifa­ríkt ef útfærslan á spor­inu væri eftir bók­inni og fram­kvæmd af algjörri auð­mýkt og í vilja til betrum­bóta. 

„Förum aðeins framar, þegar Ólafur Skúlason biskup var ásak­aður, við munum öll eftir við­brögð­unum þá. Þetta var árið 1994-5, þá var bara hugs­unin bara sú að biskup gat ekki gert svona hluti, það var ekki séns og þær voru útmáðar. Sigrún Pálína bara flúði land. Guðrún steig nú fam í mögn­uðu við­tali og sagði sína sögu en samt er fólk að rengja hana. Þetta er dálítið erfitt við­fangs­efni núna í þess­ari bylgju vegna þess að þetta eru bara góðir gaurar að stað­aldri, vin­sælir, virtir og alls­konar og fólk á bara erfitt með að trúa upp á þá eitt­hvað slæmt, alveg eins og fólk átti erfitt með að trúa að bisk­upinn myndi gera eitt­hvað á sínum tíma. Það eru ekki mann­rétt­indi að fá að vera opin­ber per­sóna, alls ekki og fá að vera fyrir augum þolenda sífellt. Það er ekk­ert æðru­leysi eða auð­mýkt falin í því að segja bara að ég biðst afsök­unar á öllu sem ég hef gert í feis­búkk­færslu.“

Fyr­ir­gefn­ing synd­anna

Gunnar bar fram spurn­ingu úr sal. Hún var svohljóð­andi:

Hefur fyr­ir­gefn­ing synd­anna verið canceluð?

Olga vildi klár­lega ekki meina að svo væri. Hún vildi meina að aftur værum við komin á þann stað að ger­and­inn verði á ein­hvern hátt að geta sýnt raun­veru­lega iðrun og einmitt sýnt vilja í verki hvað varðar það að vera raun­veru­lega til­bú­inn að bæta fyrir brot sín og þá alltaf á for­sendun þol­and­ans. Gunnar benti þó á að þetta gæti oft verið erfitt í sumum málum þar sem frá­sögn og upp­lifun raun­veru­lega bæri hrein­lega ekki saman. Að upp­lifun eins sé ein­fald­lega oft á tíðum ekki í sam­ræmi við upp­lifun hins. 

Olga Björt

Gunnar spurði Olgu einnig út í and­legt ofbeldi. Hann spurði Olgu hvort að hún héldi að konur beitti karl­menn meira af and­legu ofbeldi en öfugt. Olga sagði klár­lega halda að svo væri, hún sagði að konur beiti einnig aðrar konur and­legu ofbeldi. Í þessu sam­hengi sagði Gunnar henni sögu af rifr­ildi tveggja drengja sem hann varð vitni að fyrir nokkru. Annar dreng­ur­inn bjó klár­lega yfir visku og orðum og þeim beitti hann óspart í áras á hinn dreng­inn i formi and­legs ofbeldis. Viðbrögð hins ein­kennd­ust af því að hann bjó yfir lík­am­legum styrk í stað orða og var því lík­am­legu ofbeldi beitt í ein­hvers­konar sjálfs­vörn gegn því ofbeldi sem hann fannst hann sitja undir. Gunnar vildi meina að þetta hafi verið svo skýrt dæmi um að í raun er um sama afl að ræða þó að áverkar lík­ams­legs ofbeldis eru þó sjá­an­legir á meðan áverkar and­legs ofbeldis eru það ekki og geta því fengið að við­gang­ast lengur og án nokkura úrbóta eða úrlausnar. 

„Ég held ég get alveg tekið undir það að konur beita örugg­lega meira and­legu ofbeldi en karlar yfir­leitt, gagn­vart konum og körlum af því þær eru meira í mentally dót­inu en lík­am­legu, þær eru ekki að slást og klára málin, þær eru lang­dregn­ari og þú veist, þær eru bakta­landi og þessi pakki.“

Klámnotkun og samskipti kynjanna

Í lok við­tals velti Gunnar upp spurn­ingum sem snéru að klám­notkun. Þá hvort að notkun og aðgengi að klámi geti haft áhrif á sam­skipti í þessum efnum. Olga vildi klár­lega meina að svo væri og tók dæmi úr eigin lífi. Hún sem sagt var búin að vera í sam­skiptum við mann á Tinder í ein­hvern tíma þegar að hún bauð honum í heim­sókn. Þau fóru að kela og end­aði það í svefn­her­bergi Olgu. Þegar fór að hitna í kol­unum henti mað­ur­inn Olgu í rúmið með valdi og tók hana kyrk­ingstaki. Olgu nátt­úr­lega kross­brá og í stað þess að ein­fald­lega frjósa eins og oft ger­ist brást hún skjót við með lærðum Kung Fu töktum og mann­inum var ein­fald­ega rúllað út án mögu­leika á útskýr­ingum. Hún vildi meina að þarna greini­lega mætti sjá afleið­ingar grófs kláms á kyn­lífs­hegðun manns.

„Þetta var fyrir honum bara eðli­legt kyn­líf, fyrsta sem hann gerir er bara að henda mér og taka mig háls­taki,“ sagði Olga. 

Gunnar opn­aði sig um sína reynslu á klámi í kjöl­farið og lýsti því hvernig klám hefði spilað gríð­ar­lega stórt hlut­verk í hans líf í um 35 ár. Hann tal­aði um hvernig felu­leik­ur­inn hafi í raun haf­ist með klámi, því tengd­ist skömm og tvö­falt líf­erni sem svo átti eftir að fylgja honum fram í full­orð­ins­árin. Hann hafi þó tekið ákvörðun fyrir um ári síðan að stöðva þessa klám­notkun því það sem hann fann í hvert skipti sem hann not­aði klám voru til­finn­ing­ar­legir timb­ur­menn. Það var svo eitt­hvað allt annað upp á ten­ingnum þegar hann svo stund­aði sjálf­fróun án kláms, þá reyndi á ímynd­un­ar­aflið og sköpun hófst innan frá í stað þess að verða mat­aður með upp­lýs­ingum utan frá með til­heyr­andi ósjálf­bærn­is­fram­leiðslu á dópamíni. 

Það var farið yfir víðan völl í þessu nær tveggja klukku­tíma við­tali. Viðtalið eins og sagt hefur verið varð að sam­tali og með þann ásetn­ingi að læra hvort af öðru, við­ur­kenna, til­einka sér og upp­ljóm­ast á þessum sviðum sem svo gerir okkur mennsk óháð kyni og öðrum yfir­borðs­kenndum und­ir­flokkum.

Viðtalið má hlusta á í heild sinni hér að neðan sem og á öllum helstu streym­isveitum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Menning

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Nýtt bóka­for­lag vill efla íslensku­lestur meðal fólks af erlendum upp­runa

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar

Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu

Myndband
Menning

Luthers­son frum­sýnir blóð­uga ást­ar­sögu í eyði­mörk Kali­forníu