Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Auður Jónsdóttir: „Ég stakk upp á því að við giftum okkur, þá gæfu allir okkur sígarettur og kaffi“

Auður Jónsdóttir: „Ég stakk upp á því að við giftum okkur, þá gæfu allir okkur sígarettur og kaffi“

Kvik­myndin Skjálfti er byggð á bók Auðar Jóns­dóttur Stóra skjálfta. Myndin er um floga­veika konu og sjálf fékk Auður floga­köst um ára­bil. Í við­tali við Reyni Trausta­son í Mann­líf­inu talar hún meðal ann­ars um þennan tíma í lífi sínu, ömmu og afa á Gljúfra­steini og hún talar um tím­ann á Flateyri þar sem hún bjó um tíma meðal ann­ars í ver­búð og gift­ist svo beitn­ing­ar­for­mann­inum sem var um 20 árum eldri og hvarf jafn­vel í tvo daga þegar hann datt í það. Svo fór hún til Sví­þjóðar og hún segir að þar í sól­inni hafi hún gleymt að hún væri gift. Auður skildi og gift­ist svo aftur. Hún býr í dag í Vest­ur­bænum með syni sínum og er ný bók á leið­inni.

Hún vann í frysti­hús­inu, en svo fór hún að vinna í beitn­ing­ar­skúr. Fór að beita.

Hún talar um hve dimmt hafi verið í frysti­hús­inu. „Þá byrj­aði vinnslan alltaf fimm á morgn­ana. Þá kom maður inn í myrkri og um vet­ur­inn var þessi blá­leita birta í hádeg­inu og svo var orðið dimmt þegar maður kom út aftur. Þannig að ég fór að vinna í beitn­ing­unni hluta úr degi til að fá ein­hverja dags­birtu.“

Þetta var leitin að birt­unni.

„Ég man að það var rosa­flott mynd af Pamelu Anderson á glugg­anum; maður sá snjó­inn úti og svo var hún í sund­bol og brjóstin upp úr.“

Hvað var hún lengi með balann?

„Ég var frekar hæg, held ég.“

Þarna kynnt­ist Auður beitn­ing­ar­for­mann­inum. „Ég fór heim með honum eftir ball á gamlárs­kvöld og end­aði með að gift­ast honum.“

Peningaleysi og brúðkaup

Beitn­ing­ar­for­mað­ur­inn var Þor­steinn Arnberg Jónsson. Ald­urs­mun­ur­inn á honum og Auði tæp 20 ár.

„Þetta var kannski ekki ást. Hann drakk mjög hressi­lega. Og ég var með­virkur ung­lingur.“ Hún var þó þarna orðin rúm­lega tví­tug. „En það var skemmti­legra að hanga með honum en í ver­búð­inni. Hann var líka mjög flinkur teikn­ari. Allt í einu var ég farin að gista frekar hjá honum en í ver­búð­inni. Svo vant­aði okkur einu sinni pen­ing þannig að ég stakk upp á því að við giftum okkur, þá gæfu allir okkur sígar­ettur og kaffi; þetta var morgun  sem við vökn­uðum rosa­blönk. Svo ég hringdi í Ólaf, sýslu­mann á Ísafirði, og spurði hvort hann gæti gift mig. Hann spurði hvenær ég vildi gifta mig. Ég sagð­ist vilja gera það þann dag­inn. Þetta var af því að mig vant­aði svo pen­ing; ef ég til­kynnti fólki að ég væri að gifta mig þá gæfu allir mér eitt­hvað og gerðu eitt­hvað fyrir mig.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Menning

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Nýtt bóka­for­lag vill efla íslensku­lestur meðal fólks af erlendum upp­runa

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar

Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu

Myndband
Menning

Luthers­son frum­sýnir blóð­uga ást­ar­sögu í eyði­mörk Kali­forníu