Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Helgi Héðinsson er gestur Guðna: Skynsamlegt að nýta landið okkar að hluta til í þágu loftslagsmála

Helgi Héðinsson er gestur Guðna: Skynsamlegt að nýta landið okkar að hluta til í þágu loftslagsmála

„Þetta sveit­ar­fé­lag sem verður form­lega til 29. maí verður stærsta sveit­ar­fé­lag á Íslandi; þekur rétt um 12.000 fer­kíló­metra eða um 12% Íslands,“ segir Helgi Héð­ins­son í við­tali við Guðna Ágústs­son.

Helgi er sveit­ar­stjóri Skútu­staða­hrepps, for­maður und­ir­bún­ings­stjórnar um sam­ein­ingu sveit­ar­fé­lag­anna Skútu­staða­hrepps og Þing­eyj­ar­sveitar og vara­þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins í Norð­aust­ur­kjör­dæmi. „Þetta eru sveit­ar­fé­lög sem hafa starfað náið saman og hafa átt í far­sælu og góðu sam­starfi. Við ákváðum að fara þessa veg­ferð en ekki að við þyrftum þess. Bæði sveit­ar­fé­lögin eru stöndug en okkar fram­tíð­ar­sýn er að til að sveit­ar­fé­lög standi undir þeim kröfum sem fólk gerir til starf­semi sveit­ar­fé­laga til dæmis á sviði félags­þjón­ustu, skóla­mála, og skipu­lags­mála þá verða ein­ing­arnar að verða sterk­ari.“

Viðskiptafræðin

Helgi er Þing­ey­ingur. Mývetn­ingur. Ólst upp á Geit­eyj­ar­strönd við Mývatn þar sem hann býr í dag. Starfar þar sem ferða­þjón­ustu­bóndi og veiði­maður í Mývatni og er með sauð­fjár­bú­skap sam­hliða því.

Hún er alltaf eins og ankerið mitt í til­ver­unni þegar vind­ur­inn er harður.

Hann var um 10 ára gam­all þegar hann flutti frá Mývatni til Selfoss en hann svo kom aftur á jörð­ina fyrir norðan þar sem ræt­urnar eru. Hann kláraði stúd­ent­inn frá Fjöl­brauta­skóla Suð­ur­lands og fór svo í Háskóla Íslands. Keypti sér á þessum árum gröfu og starf­aði meðal ann­ars við lagn­ingu ljós­leið­ara og fleira í sam­starfi við tengda­fjöl­skyldu sína en hann hafði á þessum tíma kynnst unn­ustu sinni, Rann­veigu Ólafs­dóttur. Hann segir hana vera af miklum kjúklinga­bændum; en þau kynnt­ust korn­ung – 16 og 17 ára – og eiga von á sínu öðru barni í sumar. „Það var mikið lán að kynn­ast þess­ari konu en hún er alltaf eins og ankerið mitt í til­ver­unni þegar vind­ur­inn er harður,“ segir Helgi um Rann­veigu sem er með meist­ara­próf í lög­fræði og við­skipta­fræði.

Helgi valdi að stúd­era við­skipta­fræði. „Það var aðal­lega vegna þess að ég var ekki viss um hvað ég vildi verða og valdi þess vegna eitt­hvað sem myndi gagn­ast mér hvert sem leiðin myndi liggja síðar meir. En það sem var áhuga­vert var að þetta var haustið 2008 og það gekk nú eitt og annað á það ár og árin á eftir.“

Ég fékk tæki­færi til að efla mig enn frekar með því að kenna við skól­ann.

Hann kláraði við­skipta­fræði­námið og fór svo í fram­halds­nám; fór í meist­ara­nám í mark­aðs­fræði og alþjóða­við­skiptum sem hann kláraði og síðar kláraði hann einnig meist­ara­próf í almennri við­skipta­fræði. „Ég fékk tæki­færi til að efla mig enn frekar með því að kenna við skól­ann en alltaf fór ég norður á sumrin; hélt í mínar rætur og veiði­skap­inn og ferða­þjón­ust­una og sinnti rekstr­inum allt árið þannig að þetta var ofboðs­lega gef­andi veg­ferð að fá tæki­færi til að reka okkar eigið fyr­ir­tæki.“

Efla svæðið og styrkja stoðirnar

Helgi seg­ist hafa staðið á sér­kenni­legum tíma­mótum árið 2014. „Þá voru ákveðin tíma­mót í búrekstr­inum og við þurftum að fara að ákveða hvernig við ætl­uðum að haga okkar málum. Hvort við ætl­uðum að leggja meiri þunga á að byggja upp ferða­þjón­ust­una á Geit­eyj­ar­strönd eða hvaða leiðir við höfðum. Þarna erum við með ger­semi í hönd­unum sem er þessi jörð, þessi stað­setn­ing, þessi nátt­úra og það sem við höfum upp á að bjóða en að sama skapi ger­ist ekk­ert af sjálfu sér. Systkini mín voru ekki fyrir norðan. Pabbi hefur ekki yngst í seinni tíð en ég var far­inn að skynja að hann var far­inn að þreyt­ast á þessum tíma og við tókum þá ákvörðun að flytja norður 2014 og þar byrj­uðu til­vilj­an­irnar að vinda upp á sig eða ekki til­vilj­anir; það fer eftir því hvernig á það er litið. Þá átt­aði ég mig á því að mig lang­aði til að gera breyt­ingu á sam­fé­lag­inu okkar. Mig lang­aði til að koma á jákvæðni, fá fleira ungt fólk til að koma heim, útskýra fyrir fólki kost­ina sem fel­ast í því að vera úti á landi og til þess þyrfti upp­bygg­ingu, til þess þyrfti fleira ungt fólk og meiri kraft í sam­fé­lagið. Við fórum strax í að setja saman fram­boð til sveit­ar­stjórnar vorið 2014. Og allar götur síðan er ég búinn að vera í þeirri veg­ferð að vinna fyrir sam­fé­lagið mitt og leita leiða til þess að efla svæðið og styrkja stoð­irnar bæði félags­lega og í öllu sem að því lítur.“

Helgi seg­ist hafa farið hægt í þetta. Byrjaði sem fyrsti vara­maður og síðan full­trúi frá 2016 og 2018. „Það var ein­róma nið­ur­staða sam­starfs­fólks míns að ég hefði alla burði til að leiða þetta sam­fé­lag og fékk mjög mik­inn stuðn­ing bæði innan úr mínum hópi og svo afger­andi sigur í kosn­ing­unum 2018. Það er búin að vera mjög lær­dóms­rík og skemmti­leg veg­ferð allar götur síðan.“

Mín kyn­slóð, fólk fætt upp úr 1980 og fram yfir 1990, kom mikið heim.

Helgi segir að á þessum árum hafi um 370 manns búið í Skútu­staða­hreppi eins og svæðið hét þangað til það sam­ein­ast Þing­eyj­ar­sveit núna um helg­ina. „Það voru um 370 manns þarna 2014 og við erum rétt um 500 núna. Við byggjum mikið á ferða­þjón­ust­unni og síð­ast­liðin tvö ár hafa verið strembin út af Covid en sam­fé­lagið hefur vaxið og það hefur dafnað og mín kyn­slóð, fólk fætt upp úr 1980 og fram yfir 1990, kom mikið heim.“

Ef það ferða­manna­iðn­að­ur­inn sem veldur því?

„Þetta skipt­ist í þrennt og þetta styður hvert annað. Þetta er auð­vitað land­bún­að­ur­inn sem allar sveitir lands­ins byggja á í grunn­inn en ferða­þjón­ustan kemur og þetta styrkir hvert annað því við bjóðum ferða­mönn­unum upp á okkar vörur og okkar menn­ingu og okkar sögu. Svo auð­vitað í bland við orku­vinnsl­una. Það er mikil orka á svæð­inu og virkj­anir meðal ann­ars í Kröflu og það er þetta sem helst í hendur. Svo er upp­bygg­ing í tengslum við ferða­þjón­ust­una kannski hvað mest áber­andi. En það er fleira sem telst þarna til og á síð­ustu árum og með nýjum tæki­færum sem fel­ast í óstað­bundnum störfum þá hefur fólk verið að koma vegna þess að það kýs að búa í Mývatns­sveit og starfa þar. Það er hægt að vinna í Reykja­vík, Seattle eða Hong Kong; núna skiptir þetta í stórum stíl engu máli sér í lagi þekk­ing­ar­starf­semi og í starf­semi á vett­vangi hins opin­bera og í þessu fel­ast mikil tæki­færi fyrir sveitir lands­ins; sér í lagi nú þegar kemur ljós­leið­ara­teng­ing á flesta bæi.“

Meiri áhersla á sjálfbærni

Hver er stærsta sýnin er Helgi horfir inn í fram­tíð­ina? Hvernig sér hann landið byggj­ast og á hverju eigum við að lifa?

„Ég sé fyrir mér að okkar stærsta áskorun sé þessi lýð­fræði­þróun sem birt­ist okkur í því að 86% lands­manna búa núna á milli Hvítánna. Sveitir lands­ins eiga undir högg að sækja og þetta er þróun sem verður mikil áskorun að snúa til baka en er að ein­hverju leyti að ger­ast nú þegar sem er mjög ánægju­legt. Þetta byggir allt á því að það sé sú þjón­usta sem fólk þarf sé innan seil­ingar í sveit­unum og það eitt og sér er mikil áskorun í sam­bandi við skóla­starf, í sam­hengi við sam­göngur og í sam­hengi við menn­ing­una og nær­ing­una sem fólk þarf. Svo þurfum við að hafa tæki­færi til verð­mæta­sköp­unar á lands­byggð­inni. Tækifæri til starfa. Því ef þau eru ekki þá fara börnin í skóla og mennta sig en koma ekki til baka og þá fjarar undan þessu hægt og rólega. Og við þurfum að huga að því hvernig við getum nýtt gæði lands­ins í takt við áskor­anir sam­tím­ans. Við búum að stór­kost­legri sögu land­bún­aðar og eigum að geta byggt á honum áfram; aukið verð­mæta­sköpun.“ Helgi nefnir áburð og orku­mál – segir að á því séu lausnir til dæmis með því að nýta betur líf­rænan áburð og áburð sem fellur til en flytja minna af honum eða fram­leiða okkar eigin.

„Eins og hag­kerfið okkar er sett upp þá treystum við á inn­flutn­ing en það sem við þurfum að hugsa núna er meiri áhersla á sjálf­bærni; hvernig við getum nýtt okkar eigin auð­lindir betur sem er sam­fé­lags­lega skyn­sam­legt en það er líka efna­hags­lega skyn­sam­legt. Og þetta kemur beint inn á land­bún­að­inn og tæki­færin í sveit­unum. Og í síauknum mæli eru menn að hugsa að kolefn­is­málum og lofts­lags­málum í heim­inum. Og okkar mestu tæki­færi til þess að taka þátt í því stóra verk­efni er að nýta landið okkar að hluta til í þágu lofts­lags­mál­anna, þar sem það er skyn­sam­legt. Við höfum úr miklu landi að moða.“

Störf án stað­setn­ingar eða óstað­bundin störf gefa fólki færi á að búa þar sem það vill búa.

Helgi seg­ist halda að þessi inn­við­ar­upp­bygg­ing sem hefur verið stór­kost­leg á liðnum árum í tengslum við sam­göngu­kerfið, far­síma­kerfið og ljós­leið­ara­kerfið muni gefa sveit­unum tals­vert líf. „Störf án stað­setn­ingar eða óstað­bundin störf gefa fólki færi á að búa þar sem það vill búa. Nú er vinnu­stað­ur­inn ekki mið­punkt­ur­inn. Vinnu­stað­ur­inn er bara hvar þú situr með tölv­una.“

Mývatn frekar en Austurvöllur

Helgi segir að það sem muni hjálpa land­bún­að­inum, sauð­fjár­bú­skapnum og öðru, sé að núna skynji hann miklu meiri virð­ingu fyrir sjón­ar­miðum sem áttu undir högg að sækja fyrir bara örfáum árum síðan.

Við þurfum að vera stolt af því sem við erum að gera.

„Við búum að land­bún­aði sem er stór­kost­legur þar sem við notum lítið af lyfjum, við búum vel að skepn­unum okkar, við hugsum vel um það sem við verum að gera og við byggjum þetta á þekk­ingu og kraft­miklu fólki og gæðum lands sem við getum verið stolt af. Og ég held að ein af áskor­unum land­bún­að­ar­ins sé að við höldum og pössum upp á þessi sjón­ar­mið. Við hugsum um hvaðan kjötið kemur sem við borðum, úr hvaða korni brauðið var gert, hvaðan græn­metið kemur og hvort þessi blóm séu frá Suður-Ameríku og flogin í gegnum Amster­dam eða hvort þau séu frá Dals­garði. Það verður almennt vit­und um að til þess að styðja við þessa grein þá þurfum við að nýta hana og við þurfum að kynna hana og kynna hana með stolti í gegnum þá fjöl­mörgu ferða­menn sem koma og hjálpa okkur að halda dampi í þessu öllu saman. Og við þurfum að gæta að því að tala okkur aldrei niður. Við þurfum að vera stolt af því sem við erum að gera. Við þurfum að halda áfram að byggja upp. Við þurfum að rækta meira korn og græn­meti,“ segir Helgi og nefnir til að mynda líka við við þurfum að nýta umframork­una betur. „Hvers vegna í ósköp­unum ætti ég að vilja borða avókadó sem er fram­leitt í Suður-Ameríku og búið að trilla yfir hálfan hnött­inn? Hvers vegna erum við ekki að fram­leiða þetta sjálf með orkunni sem við dælum í stórum stíl upp í loftið eða niður í jörð­ina vegna þess að við vitum ekki hvað við eigum að gera við allt heita vatnið sem fellur til í raf­orku­fram­leiðsl­unni?“

Varaþingmaðurinn er náttúrubarn

„Þegar allt er að fara af stað þá hef ég nú stundum leitt hug­ann að því þegar maður er búinn að hlusta á sömu ræð­una í 15. sinn að ég er nátt­úru­barn inn að beini. Mér finnst áhuga­vert að koma inn í störf þings­ins og vona að ég fái tæki­færi til að gera sem mest af því en að sama skapi getur eng­inn neitt einn hvorki hér eða heima fyrir og ég hef engar áhyggjur vegna þess að heima fyrir er fólk sem hugsar um að þar gangi nú allt vel. En ég játa að suma daga hefur mig meira langað til þess að vera staddur á Mývatni en við Aust­ur­völl.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Menning

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Nýtt bóka­for­lag vill efla íslensku­lestur meðal fólks af erlendum upp­runa

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar

Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu

Myndband
Menning

Luthers­son frum­sýnir blóð­uga ást­ar­sögu í eyði­mörk Kali­forníu