Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Gestur Guðna er Baldvin Jónsson: Íslenska fegurðin, lambakjötið og skyrið

Gestur Guðna er Baldvin Jónsson: Íslenska fegurðin, lambakjötið og skyrið

Baldvin Jónsson kemur víða við í við­tali við Guðna Ágústs­son, en hann talar meðal ann­ars um ýmis verk­efni sem hann hefur komið að í gegnum tíð­ina en hann var ein­ungis 18 ára gam­all árið 1969 þegar hann flutti inn hljóm­sveit­ina Kinks sem hélt hljóm­leika í Aust­ur­bæj­ar­bíói.

Hann flutti síðar til Kanada þar sem hann kynnti sér aug­lýs­inga­tækni og blaða­út­gáfu – off­set­prentun – og þar vestra vann hann hjá nokkrum fyr­ir­tækjum.

„Ég held að allir Íslend­ingar hefðu gott af því að búa erlendis í svona tvö ár til að kynn­ast því í raun og veru hvað Ísland er frá­bært land til að búa í. Maður lærir það ekki nema að kynn­ast hinni hlið­inni. Og Kanada er samt með betri þjóð­ríkjum held ég. Þeim hefur tek­ist að taka allt það besta frá Banda­ríkj­unum og frá Evrópu og búa sér til sitt eigið sam­fé­lag. Þegar ég var þar voru um 50% íbúa í Toronto inn­flytj­endur af fyrstu kyn­slóð.“

Baldvin bjó þar í rúm tvö ár. Hann hafði starfað hjá Morg­un­blað­inu áður en hann flutti út og fór að vinna þar aftur eftir að heim kom. „Það var tengt því sem ég var að læra úti; við vorum að fara að taka upp off­set­prentun og þessa nýju prent­tækni.“

Í framtíðarnefnd

Stein­grímur Her­manns­son, þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra, skip­aði Baldvin, Sjálf­stæð­is­mann, í nefnd.

Ég held að obb­inn af þessum hug­myndum sem þá voru lagðar fram 1980 stand­ist tím­ans tönn og ætti kannski að skoð­ast frekar.

„Hann skip­aði mig sem for­mann fram­tíð­ar­nefndar sem er sú eina sem hefur verið stofnuð af því tagi í sögu þjóð­ar­innar. Það vakti athygli bæði meðal Fram­sókn­ar­manna og Sjálf­stæð­is­manna að Stein­grímur var gagn­rýndur fyrir að velja mig og ég var gagn­rýndur fyrir að hafa þegið þetta. Við vorum góðir vinir, við Stein­grímur, og mér þótti afskap­lega vænt um hann. Við skil­uðum af okkur sex mán­uðum, þessi hópur, og þá skip­aði hann mig aftur í fram­halds­nefnd þar sem við útfærðum þessar hug­myndir og ég held að obb­inn af þessum hug­myndum sem þá voru lagðar fram 1980 stand­ist tím­ans tönn og ætti kannski að skoð­ast frekar. Nú skilst mér að Alþingi sé búið að skipa fram­tíð­ar­nefnd sem er skipuð þing­mönnum. Ég er ekk­ert viss um að það sé rétt. Hin nefndin var skipuð fólki úr atvinnu­líf­inu og frá hinu opin­bera. Það var góð blanda. Og við settum okkur bara mjög skýr mark­mið. Ég veit ekki til þess að neitt hafi komið út úr fram­tíð­ar­nefnd þings­ins og á ekk­ert von á að það komi neitt þar. En auð­vitað þurfa menn að fara að hugsa um þetta land og tæki­færin næstu 50 ár.“

Miss World

Baldvin vann á aug­lýs­inga­deild Morg­un­blaðs­ins í 24 ár eða til árs­ins 1990.

„Þá fannst mér vera ákveðin tíma­mót. Mér fannst spenn­andi tímar fram undan í ljós­vak­anum. Síðan hafði ég tekið að mér Feg­urð­ar­sam­keppni Íslands sem var í sam­bandi við breska fyr­ir­tækið Miss World og síðan í Evrópu Ungfrú Evrópa. Ungfrú heimur. Ég reyndi að standa mig og fá stúlkur í keppn­ina sem myndu sann­ar­lega standa undir merkjum að vera góðir full­trúar Íslands og mér fannst það líka áhuga­vert að Ísland gæti kannski unnið feg­urð­ar­sam­keppni.“

Baldvin seg­ist síðar hafa verið kjör­inn full­trúi Evr­ópu­þjóð­anna og var síðan starfs­maður hjá Ungfrú heimur, Miss World, þegar Hólm­fríður Karls­dóttir vann tit­il­inn. Hann ferð­að­ist með henni víða um heim og svo síðar með Lindu Pét­urs­dóttur þegar hún vann tit­il­inn.

Við vorum að boða um hrein­leika og nátt­úru­feg­urð.

Baldvin segir að for­svars­mönnum Miss World hafi þótt boð­skapur Íslend­ing­anna vera svo fal­legur. „Við vorum að boða um hrein­leika og nátt­úru­feg­urð, heil­brigð­is­mál og lífs­gæði og Ísland hefur upp á svo margt að bjóða í tengslum við það. Þá höfðum við Grímur Sæmund­sen stofnað fyr­ir­tæki sem hét Íslenska heilsu­fé­lagið; við fórum að skoða alls konar nátt­úru­af­urðir sem væru góð fæðu­bót­ar­efni. Upp úr því kom svo Bláa lónið og öll þau lífs­gæði sem það hefur boðið upp á.“

Whole Foods

Guðni seg­ist fyrst hafa orðið var við Baldvin sem hug­sjóna­ríkan bar­áttu­mann þegar hann kom úr þessum ferðum með feg­urð­ar­drottn­ing­unum um heim­inn; eins og hann hafi öðl­ast nýja sýn 1990. Hann fór að tala fyrir íslenska land­bún­að­inum með undra­verðum hætti sem nátt­úru­auð­lind og ferskum og ein­stökum í ver­öld­inni. Jafnvel íslensku kúnni. Sauð­kind­inni. Hestinum.

„Þetta er alveg rétt. Ég varð fyrir miklum hug­hrifum af þessum ferðum og fann alltaf að það voru allir að leita til dæmis að tæki­færum í líf­rænni ræktun. 1995 héldum við fund í Vík í Mýrdal með líf­rænum bændum sem voru ekki orðnir nokkuð skipu­lagðir í Mýr­dalnum. Við fengum fyrir algjöra til­viljun fram­kvæmda­stjóra og for­mann alþjóða­sam­taka líf­rænna bænda. Þeir voru að fara til Banda­ríkj­anna og flugu í gegnum Reykja­vík og buð­ust til að koma og hitta fólk á Íslandi. Svo ég ákvað að slá bara upp fundi og halda hann í Mýr­dalnum. Þangað mættu yfir 100 manns og sýndu þess­ari líf­rænu hugsun mik­inn áhuga en síðan hefur ekk­ert gerst.“

Þú opn­aðir Whole Foods-búð­irnar í Banda­ríkj­unum í gegnum lambið. Það voru áform.

Það voru alltaf ein­hver átök og alltaf ein­hver leið­indi sem brut­ust út.

„Jú, það var stofnað í til­efni af því að menn voru að setja styrk til styrktar íslenskri tungu og síðan íslenskri menn­ingu og þá fannst mönnum eðli­legt að kanna það hvort það væri raun­veru­legur mögu­leiki að selja íslensk mat­væli sem sæl­keramat­væli á sæl­kera­mark­aði. Það var upp­hafs­sýnin. Og það tókst. Þá var verið að selja fryst kjöt til New York. Það fékkst ekk­ert fyrir það. Þetta var selt í góðum búðum. En verðið var langt frá því að vera ásætt­an­legt. Þannig að mér tókst að kom­ast í sam­band við þessar Whole Foods-búðir sem eru sann­kall­aðar sæl­kera­búðir og leggja mikla áherslu á upp­runa­vottun og þeir urðu strax hrifnir af þess­ari hug­mynd með íslenska lambið; enda féll það vel að þeirra búðum af því að nýsjá­lenskt lamba­kjöt er svo erfitt að fá á tíma­bil­inu sept­em­ber fram í októ­ber­lok. Þannig að íslenska kjötið pass­aði akkúrat inn í þennan tíma. Og þá sáum við fyrir okkur að menn ættu að setja sér það mark­mið að selja 1.000 til 1.200 tonn af fersku kjöti í slát­ur­tíð sem ferskt kjöt og heima­mark­að­ur­inn væri þá að taka 6000 tonn. Þannig að þeta væri 7.500 tonna fram­leiðsla á ári og þar af 1.500 tonn í útflutn­ing. Það væri raun­hæft mark­mið að setja sér. En það var afskap­lega lít­ill áhugi og mikil slags­mál á milli slát­ur­hús­anna. Við fengum kjöt frá Húsavík og slát­ur­fé­lag­inu á Hvamms­tanga og það voru alltaf ein­hver átök og alltaf ein­hver leið­indi sem brut­ust út í stað þess að búa til það sem við lögðum til í áformi sem var að land­bún­að­ur­inn myndi stofna félag sem myndi heita Sölu­mið­stöð land­bún­að­ar­ins og sæi um allan útflutn­ing þannig að menn væru ekki að rekast á. Þetta lærði maður af Nýsjá­lend­ingum; það er bara ein stofnun sem selur allt kjöt frá Nýja-Sjálandi og þeir fram­leiða 900.000 tonn á ári. Þá fóru menn eitt­hvað að velta fyrir sér sam­keppn­is­lögum eins og það skipti þetta ein­hverju máli. Síðan leiddi þetta af sér að við fórum að selja þeim osta, skyr og smjör og það gekk mjög vel.“

Risavaxið slys

Baldvin vann dálítið með Bænda­sam­tök­unum og land­bún­að­ar­ráðu­neyt­inu.

„Öll von­brigðin sner­ust að því sem voru sam­skipti mín við Íslend­ing­ana og íslensku fyr­ir­tækin. Það voru menn í ráðu­neyt­inu sem hlógu að því að það ætti að fara að selja skyr til Ameríku; þetta væri gælu­verk­efni sem aldrei myndi ganga upp.“

Talað var um fornan íslenskan mat og hlegið.

Menn stukku ekki á þann vagn heldur stofn­uðu annað fyr­ir­tæki.

„Mjólkur­iðn­að­ur­inn vildi ekki fá skrá­sett vöru­merkið skyr. Og gerði ekki til­raun til þess. Ég var búinn að fá það stað­fest að það væri hægt að skrá vöru­merkið skyr á þeim for­sendum að mjólkin kæmi úr kúa­kyni sem væri hvergi ann­ars staðar til í heim­inum nema á Íslandi og þess vegna gæti skyrið heitið skyr. Menn stukku ekki á þann vagn heldur stofn­uðu annað fyr­ir­tæki. En það versta af því öllu, er að við lögðum til að þetta ekta, íslenska skyr yrði fram­leitt úr mjólk­ur­dufti sem yrði flutt í gámum til Banda­ríkj­anna og þar með myndum við losna við alla tolla sem voru um 10% en að þetta væri iðn­að­ar­skyr og við vorum búin að finna þrjú fyr­ir­tæki í Banda­ríkj­unum sem gátu fram­leitt þetta úr íslenska mjólk­ur­duft­inu og þá gastu keypt umbúð­irnar þar, lokið og bragð­efnin. Og þá hefði þetta verið fyr­ir­tæki í eigu Mjólk­ur­sam­söl­unnar. En í stað þess velur mjólkur­iðn­að­ur­inn að fara í sam­starf við banda­rískt fyr­ir­tæki þar sem íslensku aðil­arnir eiga kannski 15-20% í félag­inu og þar af kúa­bændur 5%. Þetta var risa­vaxið slys í mínum huga.“

Svo kom Siggi’s skyr.

„Þeir komu tveimur til þremur árum seinna. Það var auð­vitað mjög snjallt hjá Sigga að stökkva á þennan vagn, enda græddi hann millj­arða á þessu. Mjólk­ur­sam­salan og mjólkur­iðn­að­ur­inn á Íslandi væru núna í þeim sporum að allir gætu fram­leitt eins mikið og hver og einn getur og væru í algjörum blóma. Og það væri eng­inn kvóti og engar nið­ur­greiðslur og ekki neitt. Á þessu 20 ára tíma­bili væri þetta ein sterkasta útflutn­ings­grein á land­inu. Núna eru menn að tengj­ast þessu amer­íska fyr­ir­tæki og fá bara sára­lít­inn hlut af því sem þeir hefðu ella fengið. Þetta olli manni líka miklum von­brigðum.“

Guðni spyr Baldvin, sem stóð meðal ann­ars fyrir Food & Fun-hátíð­unum sem voru árlega í 19 ár og gerðu það að verkum að hingað til lands flykkt­ust meist­ara­kokkar og eld­uðu sæl­kera­mat úr íslensku hrá­efni, hvað hann sé að fást við í dag.

„Ég er enn þá með áhuga fyrir mörgu, sér­stak­lega þessum líf­ræna geira. Mér finnst hann vera feiki­lega spenn­andi og ég held að það eigi að leggja meiri áherslu á það. Og þar liggja tæki­færin núna þegar fisk­eldið er að fara upp á land.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Menning

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Nýtt bóka­for­lag vill efla íslensku­lestur meðal fólks af erlendum upp­runa

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar

Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu

Myndband
Menning

Luthers­son frum­sýnir blóð­uga ást­ar­sögu í eyði­mörk Kali­forníu