Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Spjallvinur Guðna – Guðni Halldórsson, formaður LH: „Gríðarlega bjartsýnn á framtíð hestamennsku“

Spjallvinur Guðna – Guðni Halldórsson, formaður LH: „Gríðarlega bjartsýnn á framtíð hestamennsku“

„Þetta hefur frest­ast út af Covid og við vonum að þetta verði risa­í­þrótta­við­burður, sam­koma, manna­mót og sveita­ball,“ segir Guðni Hall­dórs­son, for­maður Lands­sam­bands hesta­manna­fé­laga, í við­tali við Guðna Ágústs­son þar sem þeir fara um víðan völl. Risa­við­burð­ur­inn sem um ræðir er Landsmót hesta­manna, sem haldið verður á Rangár­bökkum á Hellu 3.–10. júlí.

Þetta er stærsta rækt­un­ar­há­tíð land­bún­að­ar­ins á Íslandi.

Þetta verður allt sem hesta­mennskan rúmar.

„Algjör­lega, þarna leiða menn saman sína stærstu og bestu rækt­un­ar­gripi og þarna verður líka keppt í gæð­inga­keppni, kapp­reiðum – sem er auð­vitað elsta íþrótt okkar Íslend­inga vil ég meina – skeið­kapp­reiðar – og ætti að vera þjóðar­í­þrótt – og þarna verður líka keppt í íþrótta­greinum; tölti, slagtauma­tölti og gæð­inga­skeiði: Þetta verður allt sem hesta­mennskan rúmar. Þarna verða börn, ung­lingar, ung­menni, stóð­hestar, mikil hátíða­höld og glæsi­leg hópreið sem verður von­andi sú fjöl­menn­asta hingað til. Þannig að þetta verður gríð­ar­lega mikið fyrir augað og eyrað.“

Sveitamaður upp að vissu marki

Hver er Guðni Hall­dórs­son?

„Guðni Hall­dórs­son er sveita­drengur vestan af Mýrum. Bónda­sonur. Ólst þar upp á stóru kúa­búi á þess tíma mæli­kvarða, Þver­holtum á Mýrum, þar sem for­eldrar mínir voru með kúa­bú­skap.“

Guðni segir að þeir bræð­urnir hafi verið með ólækn­andi hesta­bakt­eríu en þeir fluttu vestur þegar Guðni var níu ára og bróðir hans fimm ára. Bróð­ir­inn er Gunnar Hall­dórs­son, járn­inga­maður og tamn­inga­maður, sem býr enn þá á Mýrunum.

Vorum að djöfl­ast í þessu af ein­hverri þrjósku og óbilandi áhuga.

„Við fengum gamlan bragga hjá for­eldrum okkar sem hafði verið not­aður undir hey og inn­rétt­uðum hann með frum­stæðum hætti. Við vorum þar með bása og byrj­uðum að temja trippi þegar þau höfðu aldur til og vorum að djöfl­ast í þessu af ein­hverri þrjósku og óbilandi áhuga,“ segir Guðni en hann talar um vel­vild fólks í sveit­inni í garð þeirra bræðra.

Guðni fór síðar í Fjöl­brauta­skól­ann við Ármúla en hann valdi þann skóla þar sem þar var starf­ræktur hesta­klúbbur og að hans sögn var skól­inn sá fyrsti sem gaf ein­ingar fyrir hesta­mennsku. „Þá vorum við á nám­skeiði uppi í Víðidal og vorum á járn­inga­nám­skeiði þar sem við lærðum járn­ingar og á reið­nám­skeiðum.“ Guðni fór síðar í mat­reiðslu­nám og eftir það í lög­fræði á Bifröst en hann starfar við lög­mennsku í dag. „Ég starfa við fyr­ir­tækja­ráð­gjöf; kaup og sölu á fyr­ir­tækjum.“

Eig­in­kona Guðna er Krist­jana Þór­ar­ins­dóttir sál­fræð­ingur. „Við erum eig­in­lega öllum stundum í hest­hús­inu; við búum uppi á Skraut­hólum á Kjal­ar­nesi; sveita­sæl­unni sem er algjör­lega frá­bært og getum haft hest­ana fyrir utan glugg­ann og farið í reið­túr á kvöldin. Svo eigum við hest­hús í Mosó og það er frá­bær aðstaða þar. Getum riðið út. Og það er hægt að vera þar öllum stundum líka.“

Maður getur starfað við sitt fag en verið sveita­maður upp að vissu marki.

Guðni segir að þau hjónin eigi sam­tals fjögur börn, 20 hross, tvo hunda, fjóra ketti og 20 hænur.

„Maður getur starfað við sitt fag en verið sveita­maður upp að vissu marki. Kjal­ar­nes er ekki nema 25 mín­útur frá vinnu­staðnum. Það er ekk­ert stór­kost­legt vanda­mál.“

Endurskoðun og uppstokkun

Síðan leidd­ist Guðni inn í félags­mál.

„Einhvern tím­ann í gamla daga hafði ég verið í stjórn Íþrótta­dóm­ara­fé­lags­ins og hesta­manna­fé­lags­ins í Borg­ar­firði og eitt­hvað svona en síðan hafði ég lítið haft mig í frammi í félags­málum þangað til að eitt kvöldið var hringt í mig frá Félagi hrossa­bænda og spurt hvort ég vildi verða full­trúi þeirra í lands­liðsnefnd lands­sam­bands­ins. Mér fannst það auð­vitað heiður og upp­hefð og eftir að hafa rætt það við mína konu þá tók ég það að mér.

Ég tók þetta alvar­lega og lagði mikið af mörkum og mik­inn tíma og orku.

Ég fór strax að láta mjög mikið til mín taka í því og við fórum í gagn­gera end­ur­skoðun og upp­stokkun á lands­liðs­starf­inu. Við tókum þetta bara alveg frá a til ö með það fyrir augum að auka starfið og fag­mennsk­una og reyna að ná meiri árangri á öllum sviðum. Það tókst gríð­ar­lega vel og var ofboðs­lega spenn­andi og skemmti­legt. Það var mikið starf og ég tók þetta alvar­lega og lagði mikið af mörkum og mik­inn tíma og orku.

Svo gerð­ist það að Lárus (Ást­mars­son), sem var for­maður lands­sam­bands­ins, ákvað að stíga til hliðar úr þessu hlut­verki eftir að hafa verið í sex ár. Menn fóru að koma að máli við mig og spurðu hvort ég hefði áhuga á að stíga inn og bjóða mig fram í þetta sem ég og gerði. Ég brenn fyrir þessu starfi og brenn fyrir hesta­mennsk­unni og vil gera það sem ég get til þess að  bæta hana á öllum sviðum.“

Fjórða stærst

Guðni Hall­dórs­son segir að ekki átti sig allir á því að Lands­sam­band hesta­manna­fé­laga sé fjórða stærsta sér­sam­bandið innan ÍSÍ. „Það er fót­bolt­inn og golfið, svo eru það fim­leik­arnir og svo erum við rétt þar á eftir. Við erum tölu­vert fjöl­menn­ari og stærri heldur en hand­bolti og körfu­bolti og margar aðrar greinar þannig að við eigum að bera höf­uðið hátt og berum höf­uðið hátt og lítum stórt á okkur og viljum taka til okkar rými.“

Talið berst að reið­höllum og Guði Ágústs­son nefnir stórar hug­sjónir varð­andi mikla höll, nýja og öðru­vísi.

Núna þurfum við að fara að sjá yfir­byggðan keppn­is­völl í fullri stærð.

„Það er gríð­ar­lega spenn­andi verk­efni og ég held að það sé næsta skref ofan á þessar reið­hallir sem eru búnar að rísa og voru bylt­ing á sínum tíma fyrir 20-30 árum. Núna þurfum við að fara að sjá yfir­byggðan keppn­is­völl í fullri stærð þar sem menn geta farið að keppa. Þó menn hafi verið að keppa í þessum reið­höllum þá er ekki sama að jafna að vera á full­byggðum velli inn­an­húss sem þetta myndi skapa auk þess sem það myndi gjör­breyta öllu starfi, kennslu, þjálfun, fatl­aðra starfi og æsku­lýðs­starfi; þannig að þetta er ofboðs­lega spenn­andi fram­kvæmd en það eru einka­að­ilar sem fara fyrir þessu og auð­vitað eru Fákur og lands­sam­bandið þessu mjög vel­viljuð. Ég er sann­færður um að þetta verk­efni eigi eftir að verða að veru­leika.“

Gríðarleg eftirspurn

Svo ber­ast Hólar í tal. Þar er nýr rektor að taka við, Hólm­fríður Sveins­dóttir, og þar útskrif­ast árlega magn­aðir hesta­fræð­ingar.

„Já, það er nátt­úr­lega alger bylt­ing að vera með hesta­skóla þar sem kemur á hverju ein­asta ári fjöld­inn allur af gríð­ar­lega vel mennt­uðu ungu fólki sem starfar bæði hér heima og erlendis og tekur þetta tamn­inga- og kennslu­starf áfram og lengra. Og eft­ir­spurnin eftir góðu tamn­inga­fólki hefur verið gríð­ar­leg.

Í hesta­mennsk­unni er í raun skortur á hrossum, hest­húsum, hesta­kerrum og hnökkum.

Það mætti útskrifa fleiri því það er skortur á tamn­inga­fólki og reið­kenn­urum og í hesta­mennsk­unni er í raun skortur á hrossum, hest­húsum, hesta­kerrum og hnökkum. Menn hafa varla undan því það er svo mik­ill áhugi á hesta­mennsk­unni sem er auð­vitað frá­bært.“

Guðni er bjart­sýnn á fram­tíð­ina. „Þau eru auð­vitað mörg verk­efnin og margt sem má bæta í og keyra fastar á en heilt yfir en engin ástæða til ann­ars en að vera gríð­ar­lega bjart­sýnn á fram­tíð hesta­mennsku. Þetta er svo stór­kost­legt sport. Þetta er íþrótt sem sam­einar alla fjöl­skyld­una. Þetta sam­einar úti­veru, ferða­lög, fólk getur verið að keppa, þjálfað sig alveg upp á heims­mæli­kvarða og allt þar á milli.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Menning

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Nýtt bóka­for­lag vill efla íslensku­lestur meðal fólks af erlendum upp­runa

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar

Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu

Myndband
Menning

Luthers­son frum­sýnir blóð­uga ást­ar­sögu í eyði­mörk Kali­forníu