Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Gestur Guðna er Herdís Magna Gunnarsdóttir: Nokkuð góður erfðafjölbreytileiki í íslenska kúakyninu

Gestur Guðna er Herdís Magna Gunnarsdóttir: Nokkuð góður erfðafjölbreytileiki í íslenska kúakyninu

Nú ertu orðin for­ystu­maður í Lands­sam­bandi kúa­bænda.

„Við höfum sam­ein­ast Bænda­sam­tök­unum eins og önnur búgrein­ar­fé­lög. Ég er for­maður Búgreina­deildar naut­gripa­bænda í Bænda­sam­tök­unum og er nýlega orðin vara­for­maður Bænda­sam­tak­anna,“ segir Herdís Magna Gunn­ars­dóttir í við­tali við Guðna Ágústs­son þar sem þau ræða um ýmis mál­efni kúa­bænda og land­bún­að­ar­ins. Hér fyrir neðan er tekið úr við­tal­inu varð­andi kúa­bú­skap og naut­gripa­rækt.

Kúa­bú­skap­ur­inn hefur þró­ast með miklum hraða á þess­ari öld. Hvernig sérðu hann fyrir þér?

Þetta hefur fylgt þess­ari tækni­fram­för eða bylt­ingu.

„Maður vill ekki taka of stóra ábyrgð á því að segja hvernig þetta verður. Kúabúum hefur fækkað mikið og hratt en þau hafa stækkað og það er sama þróun og við sjáum alls staðar ann­ars staðar og ég held að það sé óhjá­kvæmi­legt að þeim muni fækka meira. Við sjáum fram á það. En svo á maður von á að það nái ein­hverju jafn­vægi og meiri stöðnun. En þetta hefur fylgt þess­ari tækni­fram­för eða bylt­ingu.“

Það er gríð­ar­leg tækni­breyt­ing. Þetta er nútíma­fjós.

„Já, það er mik­ill munur frá því sem var áður. Þú kannski gast byggt til að bæta við nokkrum básum og þar af leið­andi líka bætt við smá­kvóta en núna þarftu alltaf helst að byggja fyrir einn róbóta í einu og það eru kannski 60 kýr. Þannig að þetta stækkar í stærri ein­ingum.“

Herdís segir að Íslend­ingar eigi heims­met í hlut­falli af mjólk sem kemur úr róbótum. „Það er hvergi ann­ars staðar jafn­hátt hlut­fall af mjólk­inni sem kemur inn í hverju landi úr mjalta­þjónum.“ Herdís, sem er bóndi á Egils­stöðum sem hefur verið í ætt­inni í nokkrar kyn­slóðir, segir að hún hafi verið 14 ára þegar for­eldrar hennar byggðu nýtt fjós og minnir hana að það hafi verið annað fjósið til þess að kaupa mjalta­þjón til Íslands.

Hvað í ósköp­unum hefur gerst með íslensku kúna? Allt í einu er hún farin að mjólka upp í 14.000 lítra. Og þegar ég var strákur þótti met að fara yfir 4.000. Er þetta aðbún­að­ur­inn eða er þetta rækt­un­ar­starfið?

Aðbún­að­ur­inn er nátt­úr­lega allt annar og við höfum náð árangri í rækt­un­ar­starfi.

„Aðbún­að­ur­inn, þekk­ingin og þró­unin í fóð­ur­öfl­un­inni. Aðbún­að­ur­inn er nátt­úr­lega allt annar og við höfum náð árangri í rækt­un­ar­starfi; gríð­ar­legum vil ég meina.“

Kúa­bú­skap­ur­inn hefur batnað mjög. Eru bænd­urnir mjög vak­andi og í eilífri þróun og lær­dómi við að mennta sig áfram?

„Já, ég vil leyfa mér að segja það. Auðvitað er það mis­mun­andi milli ein­stak­linga eins og alls staðar ann­ars staðar í öllum greinum. En já, það er alltaf verið að leita ein­hverrar þró­unar áfram og bæta tækni og nýt­ingu.“

Menn eru ekki lengur að tala um norskt kúa­kyn.

Þá var tekin þessi ákvörðun að fara í stærri verk­efni til að rækta áfram kúa­kynið.

„Það bloss­aði aftur upp á síð­asta búgreina­þingi. Það var verið að rifja það upp. Pabbi tal­aði mikið fyrir norska kúa­kyn­inu á sínum tíma en við verðum að horfa á það að bændur hafa sam­ein­ast um það. Það hefur verið fundað um þetta og mikið tek­ist á. Það er ákvörðun bænda að flytja ekki inn norskt kúa­kyn. Og þá var tekin þessi ákvörðun að fara í stærri verk­efni til að rækta áfram kúa­kynið. Og við erum farin að sjá að veru­leika þetta stóra verk­efni sem felst í að það er búið að greina erfða­mengi íslensku kýr­innar og þá er hægt að taka DNA-sýni þegar grip­irnir fæð­ast og við getum séð hversu efni­legir þeir verða. Þetta styttir ætt­liða­bilið úr sjö árum í tvö af því að við þurftum alltaf að fá naut og ná úr því sæði, það þurftu að koma kálfar og þeir þurftu að verða að kúm til þess að hægt væri að dæma hve afkvæmin væru góð eins og þetta er í dag. En þetta byrj­aði í vor og fá bændur merki; við pöntum okkar merki og tökum sýni úr öllum kvígum sem fæð­ast og sendum til grein­ingar og svo fáum við grein­ingu til baka. Þetta er ofboðs­lega spenn­andi og gaman.“

Skyld­leika­rækt er ekk­ert að há íslenska kúa­stofn­inum? „Nei, nefni­lega ekki. Minna en maður hefði kannski haldið. En það er nokkuð góður erfða­fjöl­breyti­leiki í íslenska kúa­kyn­inu.“

Eftirspurn eftir góðu nautakjöti

Nú ertu ekki bara að sjá um kýrnar og kúa­bændur. Undir þinn lið heyrir líka hin nýja atvinna sem hefði kannski átt að koma löngu fyrr: Að fram­leiða nauta­kjöt.

Svo hafa verið fluttir inn fóst­ur­vísar hingað til Íslands.

„Það hefur stundum verið sagt að nauta­kjötið hafi verið ákveðin auka­af­urð af mjólk­ur­fram­leiðsl­unni. En það má ekki mis­skilj­ast. Ég hef átt­aði mig á að það hafi verið mis­skiln­ingur. Fólk heldur að það hafi verið fæddir kálfar til þess að lóga þeim en þeir hafa verið aldir. En nú er alltaf að stór­aukast meiri fag­mennska í nauta­kjöts­fram­leiðsl­unni. Það hefur áður verið flutt inn erlent holda­kyn; það var Galloway, síðan Angus og síðan núna erum við að fá nýtt erfða­efni frá Angus; frá Noregi. Það er sam­tín­ingur af því besta í heim­inum. Í Noregi taka þeir frá öðrum löndum og rækta þar upp og það er með bestu „angusum“ í heim­inum. Svo hafa verið fluttir inn fóst­ur­vísar hingað til Íslands. Núna í vor erum við að fá fyrsta kjötið af þessum nýju gripum frá bændum á markað. Þetta er nýr atvinnu­vegur í land­bún­að­inum og hefur verið ákveðin vöntun og mikil eft­ir­spurn. Það selst allt nauta­kjöt í land­inu. Mig minnir að við séum með 80% hlut­deild í nauta­kjöti. Og nátt­úr­lega er mikið flutt inn líka. Það er alltaf eft­ir­spurn eftir góðu nauta­kjöti.“

Kjötsalar segja að það vanti kjöt, ekki síst nauta­kjöt.

Við höfum séð verð á nauta­kjöti úti í búð fara hækk­andi jafnt og þétt.

„Já, það er það sem við höfum verið að sjá og það er jafn­vel líka erfitt að nálg­ast það erlendis. Það hefur verið slæm þróun í nauta­kjöts­fram­leiðsl­unni. Það hefur ekki verið passað nægi­lega vel upp á þetta. Þegar tolla­samn­ing­ur­inn við Evr­ópu­sam­bandið tók gildi þá hefur það þær afleið­ingar að toll­kvótar fyrir nauta­kjöt hafa auk­ist um 600% síðan 2016. Það er ofboðs­lega mikið magn og aukin sam­keppni en engu að síður átta ég mig ekki alveg á af hverju það þarf endi­lega að þýða að afurða­verð til bænda og fram­leið­enda hefur lækkað jafnt og þétt á þessum tíma. Og rökin fyrir því að opna fyrir inn­flutn­ing eru oft­ast þau að það eigi að lækka verð. En við höfum séð verð á nauta­kjöti úti í búð fara hækk­andi jafnt og þétt síðan þetta gerð­ist og auð­vitað vísi­tölu neyslu­verðs á sama tíma. En á sama tíma lækkar verðið til bænda. Þetta var nátt­úr­lega það sem var varað við. Það var ástæða fyrir því að bændur voru að berj­ast gegn þessu. Þetta hefur haft þær afleið­ingar að afurða­verð til bænd­anna hefur lækkað.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Menning

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Nýtt bóka­for­lag vill efla íslensku­lestur meðal fólks af erlendum upp­runa

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar

Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu

Myndband
Menning

Luthers­son frum­sýnir blóð­uga ást­ar­sögu í eyði­mörk Kali­forníu