Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Haraldur er nýr deildarforseti Guðspekifélagsins: „Hvaða skynfæri eru það sem skynja stemmingu?“

Haraldur er nýr deildarforseti Guðspekifélagsins: „Hvaða skynfæri eru það sem skynja stemmingu?“
Haraldur Erlends­son Mynd: Aðsend

Nýjasti gestur bræðar­anna Gunnars og Davíðs Wiium er eng­inn annar en geð­lækn­ir­inn og nýkos­inn deild­ar­for­seti Guð­speki­fé­lags­ins á Íslandi, Haraldur Erlends­son. Hér er brot úr við­tal­inu.

Haraldur útskrif­að­ist úr lækna­deild Háskóls Íslands og starf­aði á Borg­ar­spít­al­anum á end­ur­hæf­ingar og tauga­deild og svo á lyfja­deild. Hann tók nám í tauga­lækn­ingum í London (DCN). Haraldur starf­aði í nær fimm ár við heilsu­gæslu á lands­byggð­inni og var læknir á Flateyri þegar snjó­fljóðin féllu 1995. Þá byrj­aði hann að vinna með fólk með áfallastreitu og í fram­haldi af því lærði hann geð­lækn­ingar í Bret­landi og kláraði sér­fræði­prófin árið 1999 og masters­námið árið 2000. Hann starf­aði sem sér­fræð­ingur í geð­lækn­ingum í Sussex í East Grin­stead og síðar í Hastings. Haraldur byrj­aði svo að starfa með konur með mikla áfallastreitu og jað­ar­per­sónu­leika­röskun í 10 ár. Þá var hann yfir­læknir í Cygnet Hospital Bierley í Bradford og síðar geð­læknir í Dean Hospital hjá Partners­hip in Care. Árið 2012 flutti hann heim til Íslands og tók við sem yfir­læknir og for­stjóri á Heilsu­stofnun NLFÍ í Hvera­gerði ásamt því að gegna stöðu sem yfir­læknir geð­heilsuteymis Suð­ur­lands á Selfossi í nokkur ár. Hann lét svo af störfum þar 2019 og hóf stofu­rekstur, fyrst í Hvera­gerði og síðar í Kópavogi.

Spurður út í það hvernig draumar og ímynd­un­ar­aflið komi inn í þessi hefð­bundnu geð­vís­indi segir Haraldur að með því að skoða drauma og ímynd­un­ar­aflið má greini­lega sjá sam­hengi og greini­lega end­ur­speglun á hvernig manni raun­veru­lega líður. Hann vill líka meina að hin hefð­bundnu vís­indin séu að opn­ast meira og meira fyrir þessu þáttum hug­ans.

„Þig dreymir fjall, þig dreymir hund, þig dreymir ljós­veru og svo vakn­arðu og ferð að hugsa um þennan draum, þá kemur ein­hver til­finn­ing með því. Eða þú gengur inn í kirkju eða inn á Þing­velli og þú finnur að það er góð stemm­ing. Hvaða skyn­færi eru það sem skynja stemm­ingu? Þetta er í raun kjarna-and­leg upp­lifun. Í tíbeska búdd­ism­anum er þetta kallað „ástand rým­is­ins“.“

Nýverið var Haraldur kosin deild­ar­stjóri Guð­speki­felags­ins. Guð­speki­fé­lagið er félags­skapur fólks sem leitar sann­leik­ans í gegnum hin ýmsu form trú­ar­bragða og kenni­setn­inga. Guð­speki­fé­lag­anum er ekki sama hvernig heim­ur­inn er. Hann er í senn áhorf­andi og þátt­tak­andi. Hann vill skoða mann­lífið, einkum manns­hug­ann, eiga þátt í myndun jákvæðra við­horfa, því sam­kvæmt guð­spek­inni eru allir menn fyrst og fremst menn, þrátt fyrir ýmsa meira eða minna til­búnar skipt­ingar. Enginn einn getur skor­ast undan hlut­deild sinni í ábyrgð heild­ar­innar – af því hann lítur á bræðra­lagið sem stað­reynd. Ein­kenn­is­orð Guð­speki­fé­lags­ins eru „Engin trú­ar­brögð eru sann­leik­anum æðri“.

Báðir for­eldrar Haralds voru virkir félagar Guð­speki­fé­lags­ins svo hann elst upp í þessu umhverfi og umræðum. Hann sjálfur verður svo fyrir ólíkum reynslum sem barn sem marka hann og full­vissa hann um að það sé dulin heimur handan efn­is­heims sem ber að rann­saka með íhugum. 

Félagið „Theosophical Society“ var stofnað af rúss­neska dul­spek­ingnum Helena Petrovna Bla­vat­sky oft kölluð Madame Bla­vat­sky og Henry Steel Olcott í New York í árið 1875. Fljót­lega eftir stofnun félags­ins flytja Bla­vat­sky og Olcott til Indlands og verða þau og félagið fyrir miklum áhrifum þar í gegnum hindúisma og búdd­isma. 

Guð­speki­fé­lagið stofn­aði útibú í Reykja­vík 1912 en Íslands­deild Guð­speki­fé­lags­ins var form­lega stofnuð 1921.

Eftir að félagið kemur til Íslands fara margir kirkj­unnar menn að skrá sig í félagið og má segja að frjáls­hyggjan í þessum efnum hafi leyst upp ákveðið íhald sem lengi hafi ríkt. Félags­skap­ur­inn mynd­aði sterka senu sem tengdi lands­byggð­ina á vissan hátt aftur við nátt­úr­una, teng­ingu sem land­byggð­ar­fólkið hafði á vissan hátt misst við flutn­ing sinn í þétt­býlið.

„Þau verða fyrir miklum áhrifum í Indlandi, bæði af hindúism­anum og búdd­ism­anum og taka þátt í sjálf­stæð­is­bar­áttu Indverja og eru þess vegna á ákveðnum stalli þar enn. Og svo verða þau eins­konar brú milli hug­mynda Aust­ur­heims og Vest­ur­heims. Þau áttu mik­inn þátt í því í kringum 1880-90 að, hvernig á ég að orða það fal­lega? að brjóta upp fastan krist­inn hug­mynda­heim og komu með mikið af ferskum hug­myndum inn í Vestræna menn­ingu.“

Stórir karakt­erar eins og Grétar Fells, Haraldur Pét­urs­son, Gunnar Dal, Þór­bergur Þórð­ar­son og Sigvaldi Hjálm­ars­son voru á sínum tíma mjög virkir félagar Guð­speki­fé­lags­ins. Mikið af bókum voru skrif­aðar af þessum mönnum og liggja þær í miklu magni í hillum forn­bóka­búða hér á landi, sann­kall­aður brunnur af visku sem þessir merku menn náður sér í og skil­uðu af sér með sinni and­legu iðkun sam­hliða ötullu starfi innan Guð­speki­fé­lags­ins.

Viðtalið má sjá og heyra í heild sinni á spil­ar­anum hér fyrir neðan ásamt að hægt er að finna Þvotta­húsið á öllum helstu streym­isveitum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Menning

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Nýtt bóka­for­lag vill efla íslensku­lestur meðal fólks af erlendum upp­runa

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar

Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu

Myndband
Menning

Luthers­son frum­sýnir blóð­uga ást­ar­sögu í eyði­mörk Kali­forníu