Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Grétar Mar gefur lítið fyrir forystu sjómannasamtakanna: „Skipstjórar hræddir við útgerðarmennina“

Grétar Mar gefur lítið fyrir forystu sjómannasamtakanna: „Skipstjórar hræddir við útgerðarmennina“
Grétar Mar Jónsson, skip­stjóri og fyrr. Alþing­is­maður

„Það er ákveðin hætta fyrir hendi þegar koma svona aðkomu­menn í raun­inni sem Samherji og Síld­ar­vinnslan eru; hugs­an­lega bara eftir þeirra geð­þótta fara þeir með allan kvót­ann úr Grinda­vík,“ segir Grétar Mar Jónsson í hlað­varp­inu Sjó­ar­anum þegar hann er spurður hvernig honum lít­ist á tíð­indi dags­ins sem eru að Vísir í Grinda­vík er að renna undir Síld­ar­vinnsl­una og þar með Samherja. Grétar Mar er búinn að vera bar­áttu­maður fyrir hags­muna­málum sjó­manna um ára­tuga­skeið, var for­maður í skip­stjóra- og stýri­manna­fé­lag­inu Vísi í sjö ár og stjórn­ar­maður í Far­manna­sam­band­inu á sínum tíma; for­seti Farmanna- og fiski­manna­sam­bands­ins.

Núna heyrir maður eig­in­lega fagn­að­ar­læti úr Grinda­vík.

„Já, ég man eftir svona fagn­að­ar­látum í Sand­gerði þegar HB og Miðnes voru sam­einuð. Þá átti að bæta við og auka og skapa fleiri störf og konur fengu að sitja við það í eina ver­tíð að þræða loðnu upp á prik til að þurrka. Svo var búið að taka allan kvót­ann upp á Akranes úr Sand­gerði og engin hafn­ar­gjöld nátt­úr­lega og ekki atvinna heldur. Þetta er bara það sem er inn­byggt í þessu bless­aða fisk­veiði­stjórn­un­ar­kerfi okkar að menn eru alltaf að sam­eina. Og nú skilst mér meira að segja að þeir séu yfir í þessi 12%, Síld­ar­vinnslan, með þessu. Og þeir kom­ast upp með það þegj­andi og hljóða­laust eða svo virð­ist vera.“

Og þeir kom­ast upp með það að vera langt yfir öllum mörkum.

En Síld­ar­vinnslan er nátt­úr­lega bara Samherji.

„Í raun­inni og auð­vitað er kvóta­eign Síld­ar­vinnsl­unnar búin að vera í nokkur ár 50% í eigu Samherja. Og þeir kom­ast upp með það að vera langt yfir öllum mörkum.

Ég er ekki að segja að þeir muni ekki halda áfram með fisk­vinnslu í Grinda­vík. En það er alveg við­búið að það verði breyt­ingar með tíð og tíma þó það skeði ekki á morgun eða hinn.“

Það er ekk­ert hægt að lofa ein­hverju svona er það?

„Nei, það er í raun­inni ekki hægt. Svo er það bara hvað er best fyrir Síld­ar­vinnsl­una að gera. Er betra að vinna fisk­inn fyrir norðan á Dalvík eða á Akureyri eða hvar sem er?“

Það verður ekk­ert spurt um byggð­ar­sjón­ar­mið þar?

„Nei.“

Og kannski er það ekk­ert í raun og veru hægt?

„Nei, þetta er bara afleið­ing af þessum fram­selj­an­legu veiði­heim­ildum sem eru í gangi og með öllum þeim göllum sem þeim fylgja. Fisk­veiði­stjórn­un­ar­kerfið sem sumir segja að sé besta fisk­veiði­stjórn­un­ar­kerfi í heimi hefur aldrei verið að skila okkur neinum árangri. Við munum nú eftir því sem ungir menn þegar okkur var lofað því ef við færum að til­lögu Hafró í tvö þrjú ár að þá vorum við farnir að veiða 450-500.000 tonn á ári af þorski.“

Og það hefur ekki ræst úr því.

Það hefur ekk­ert gerst.

„Og það hefur ekki ræst úr því. Og í raun­inni höfum við aldrei farið yfir 267.000 tonn sem var kvót­inn á fyrsta kvóta­ár­inu.“

Þú ert Suð­ur­nesja­maður og bjóst lengst af í Sand­gerði en fluttir svo til Hafn­ar­fjarðar. Það vekur athygli þegar ekið er niður á hafn­irnar að þetta er stein­dautt; það er að segja Keflavík. Það er búin öll útgerð þar.

„Þú getur eig­in­lega byrjað í Vogunum. Útgerðin sem var þar, sem var góð útgerð og hét Valdimar, gerði út þrjá báta á sínum tíma. Þeir sam­ein­uð­ust Þor­birn­inum í Grinda­vík um leið og Fiskanes sam­ein­að­ist Þor­birn­inum og fleiri fyr­ir­tæki. Svo nátt­úr­lega er kvóti í Garðinum. Nes­fiskur á tölu­vert af kvóta; gerir út nátt­úr­lega bæði í Hafn­ar­firði frysti­skipið sitt, Baldvin Njálsson, og svo eru bát­arnir gerðir út úr Sand­gerði að stærstum hluta.“

Miklar afleiðingar

Grétar Mar hefur lengi barist gegn kvót­anum. Er þetta allt komið á dag­inn eins og þetta getur verið verst; eins og hann og fleiri spáðu?

„Ég man eftir því að við skrif­uðum ein­hvern tím­ann grein, ég og Guðjón Arnar, og bentum á hvað þetta þýddi, frjálsa fram­salið sem var sett á 1991. Og það hefur allt komið á dag­inn sem við sögðum þá hvað myndi ger­ast.“

Þessir stóru gleypa hina smáu.

„Það er bara lög­málið í þessu á meðan þetta er svona.“

Vísir keypti upp var það ekki Djúpavog? Þingeyri?

„Jú.

HB sam­ein­að­ist Miðnesi í Sand­gerði sem var með tvo tog­ara og þrjá báta. Eða fjóra. Og svo Kefl­vík­ing, loðnu­bát. Og þetta hefur allt farið saman.“

Svo fór Akranes nátt­úr­lega þegar Reykja­vík gleypti það.

„Já.“

Er þetta ekki hag­kvæmni stærð­ar­innar?

„Það held ég ekki.“

Þú ert ekki á því.

Á móti kemur að það eru svo miklar afleið­ingar.

„Nei, auð­vitað er stærð­ar­hag­kvæmni á mörgum sviðum mjög æski­leg og góð en á móti kemur að það eru svo miklar afleið­ingar. Ef maður fer yfir sveit­ar­fé­lögin sem hafa farið illa út úr þessu; þú getur farið á Þingeyri. Þú getur farið á Flateyri. Þú getur farið á Súg­anda­fjörð. Ísafjörð. Bol­ung­ar­vík, þó þeir hafa kannski aðeins náð að berj­ast í þessu. Svo getur þú farið á Drangs­nes og Hólmavík. Og svo getur þú farið áfram á Kópasker, Rauf­ar­höfn og Húsavík, Bakka­fjörð og Borg­ar­fjörð eystri. Þú getur talið enda­laust upp. Breið­dals­vík og Stöðv­ar­fjörð, Reyð­ar­fjörð og Djúpavog. Þetta er hring­inn. Nátt­úr­lega er Sand­gerði kvóta­laus og Þor­láks­höfn er held ég með 20% af því sem þeir áttu þegar mest var eða þegar kvóta­kerfið var sett á. Stokks­eyri og Eyr­ar­bakki: Ekkert þar. Og svona má rekja þetta.“

Grétar Mar er spurður hvað honum finn­ist um strand­veið­arnar. Er það eitt­hvað til að jafna þetta? Ball­ansera þetta?

Það er til dæmis ömur­legt að þeir skuli ekki fá að veiða á sunnu­dögum.

„Það ball­anser­ast ekk­ert þegar þú ert að tala um kannski 10-15.000 tonn. Eitthvað sem frysti­tog­ari veiðir á einu og hálfu ári. Aflinn sem er í strand­veið­inni; þetta er svo lítið. Það vantar að minnsta kosti 5-6000 tonn inn í strand­veið­arnar þannig að þeir hafi úthald í 48 daga yfir sum­arið. En svo nátt­úr­lega það versta við strand­veið­arnar eru þessar skerð­ingar sem eru á þeim; það er til dæmis ömur­legt að þeir skuli ekki fá að veiða á sunnu­dögum því það vantar alltaf afla í fisk­vinnsl­una sem er án útgerðar á mánu­dögum.“

Það er nátt­úr­lega hörð and­staða gegn þessu.

„Já, en stór­út­gerðin fer alltaf að gráta og grát­kór­inn er virkj­aður þegar á eitt­hvað að breyta og gera eitt­hvað sem væri til bóta fyrir almenn­ing. Það er bara það sorg­lega við þetta.“

Afskaplega döpur

Bar­áttu­maður gegn kvót­anum og bar­áttu­maður fyrir rétt­indum sjó­manna. Þurfti Grétar Mar aldrei að gjalda fyrir það? Var aldrei nún­ingur? Kostaði þetta hann ekk­ert per­sónu­lega?

„Pottþétt. Það bitn­aði á mér. Það gerði það. Og sér­stak­lega eftir að ég hætti sem for­seti Farmanna- og fiski­manna­sam­bands­ins; var felldur þar. Og þá var ekki um auð­ugan garð að gresja hjá manni í að fá vinnu,“ segir Grétar Mar sem fór í kjöl­farið á milli báta; bæði minni báta „og svo lúðu­veiðar og svona utan­kvóta­skrap; meira að segja á sæbjúgu.“

Þú tókst við af Guðjóni A. Krist­jáns­syni og varst í tvö ár og þá kom Árni Bjarna­son og felldi þig. Það hafa verið átök.

„Nei, ekki kannski átök. Það voru bara 33 held ég með atkvæð­is­rétt á Fara­manna- og fiski­manna­sam­bands­þing­inu og hann vann mig 18-15.“

En hann er enn.

„Já, það er bara mjög slæmt fyrir sjó­menn að hann skuli vera enn því að hann hefur verið hand­ó­nýtur for­ingi og í hags­muna­gæslu fyrir sína menn.“

Öll stétt­ar­fé­lög sjó­manna eru afskap­lega döpur.

Er það Samherji?

„Ég veit það ekki. Hann kom beint frá Samherja, var stýri­maður og afleys­inga­skip­stjóri hjá Samherja. Í fyrstu kjara­samn­ingum sem þeir gerðu eftir að ég var settur af þá tóku þeir þátt í því að lækka skipta­pró­sent­una á nýjum skipum sem leið­rétt­ist sjálf­sagt aldrei. Og annað í þeim dúr sem þeir gerðu. Öll stétt­ar­fé­lög sjó­manna eru afskap­lega döpur. Sama má segja bæði um Sjó­manna­sam­bandið og eins Vél­stjóra­fé­lagið.“

Hefur þá ekki tek­ist að lemja á þeim ef menn eru orðnir mátt­lausir?

„Það er í fyrsta skipti núna þegar kemur að úthlutun eða til­lögur að úthlutun hjá sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra í 20 ár sem skip­stjórar koma fram á sjón­ar­sviðið og tjá sig um þessi mál. Og þá sér­stak­lega tveir norð­lenskir skip­stjórar hjá Fisk Seafood og svo Eiríkur Jónsson á Akranesi sem er hjá Brym. Þeir eru að tala um að það sé ekk­ert vit í karfa­út­hlut­un­inni en í gegnum tíð­ina, á síð­ustu 20 árum, hafa skip­stjórn­ar­menn ekk­ert þorað að tjá sig um þetta.“

Það er svo­lítið ein­kenni­legt af því að skip­stjór­inn er alvaldur um borð eða svo­leiðis og þetta er venju­lega aðaltöffar­inn um borð. Svo æmta þeir ekki né skræmta þegar komið er í land.

Þeir eru bara hræddir við útgerð­ar­menn­ina.

„Nei, þeir eru á þokka­legum launum, jafn­vel bara mjög góðum launum. Og þeir eru ekki að hugsa um annan stýri­mann, fyrsta stýri­mann eða strák­ana sem eru um borð. Þeir eru bara hræddir við útgerð­ar­menn­ina. Það er bara þannig.“

Þeir fá bara order

Faðir Grétars Mars var skip­stjóri og útgerð­ar­maður og seg­ist hann fyrst hafa farið á norð­ur­sjó­inn með föð­ur­bróður sínum. „Maður var alinn upp við þetta. Það var alltaf verið að tala um fisk og fisk­gengd og fiskerí og góða sjó­menn,“ segir Grétar Mar sem var á sjó í 42 ár og skip­stjóri í 34 ár.

Þetta er búið að taka allan sjarma af þessu.

Saknar þú ekk­ert þess­ara tíma?

„Ekki þegar þetta kvóta­kerfi var farið að virka svona eins og flestir skip­stjórar fá í dag; þeir fá bara order um hvað megi veiða í næstu veiði­ferð. Svo verður að fara úr þorski, ef þú ert í mok­þorsk­veiði, til að sækja ufsa eða jafn­vel karfa eða eitt­hvað annað. Svo er þér sagt að fara út og veiða karfa eða ufsa. Þetta er búið að taka allan sjarma af þessu.“

Grétar Mar er spurður hvað sé minn­is­stæð­ast af ferl­inum.

Og svo vestur á „brjál­aða hrygg“.

„Skemmti­leg­ustu árin voru fyrir daga kvóta­kerf­is­ins þegar menn máttu bara bjarga sér og reyna að ná í sem mestan afla. Ég þarf reyndar ekk­ert að kvarta. Ég var hjá góðum útgerð­ar­manni sem hét Jakob Sig­urðs­son í Sjófangi. Ég var á Sæborg­inni sem hann átti í níu ár. Var á síld á haustin og rækju á sumrin þó ég hafi ekki mikið verið á rækj­unni Mér fannst þetta leið­in­legur veiði­skapur. Ég var svo aftur á netum alltaf á ver­tíð­unum og reri þá úr Sand­gerði. Mest úr Sand­gerði. Maður fór nátt­úr­lega austur fyrir land eða austur á Höfða sem við köllum, Ing­ólfs­höfða. Og svo vestur á „Brjálaða hrygg“. Maður var út um allar trissur.“

Hvar er „Brjálaði hryggur“?

„90 mílur í Látra­bjarg og 90 mílur í Snæ­fells­jökul.“

Þetta voru góðir tímar.

„Það var margt skemmti­leg sem skeði þar. Ég var einu sinni að fiska þarna á „brjál­aða hryggnum“. Það var svo mikið í net­unum að við þurftum eig­in­lega að gilsa inn. Þá bara flutu tross­urnar. Maður hélt að maður væri búinn að slíta færið því þá var bara trossan að koma upp og drek­inn og allt neðan í. Við drógum sjö trossur og fengum rúm 80 tonn af slægðu ofan í lest og vorum eig­in­lega búnir að fylla. Ég lagði sjö trossur og ég gat ekki dregið nema þrjár fyrir dag­inn. Það voru ein­hver 40 tonn af slægðu í þrjár trossur. Ég lagði sjö og dró þrjár fyrsta dag­inn, dró svo þrjár annan dag­inn og fékk bát til að draga yfir mig eina; sjö­undu tross­una.“

Þá varstu búinn að fylla og rúm­lega það kannski.

„Það var eitt­hvað smott­erí eftir. Við fórum bara suður.“

Ég kallaði „brot“

Grétar Mar var afla­kóngur. Hvað þarf til að menn fái þessa til­finn­ingu eða öðlist þessa visku sem þarf til að hitta á fisk?

„Maður var með frá­bæran mann­skap og maður kíldi á þetta af miklum krafti. Mann­skap­ur­inn hjá mér átti hverja krónu skylda sem hann hafði í hlut. Þetta var bara mikið púl og heilu ver­tíð­irnar var þetta þannig að mann­skap­ur­inn fékk að sofa kannski þrisvar sinnum tvo og hálfan til þrjá tíma. Landstími, úts­tími og svo kannski í land í tvo þrjá tíma. Það var bara verið að kíla á þetta.“

Það var verið að djöfl­ast áfram.

„Í dag er þetta auð­veld­ara hjá mönnum. Menn eru að fiska í 15 mílna rad­íus frá sinni heima­höfn kannski yfir 1000 tonn. Jafnvel á mán­uði.“

Grétar Mar segir að það hafi verið lang­skemmti­leg­ast að vera á nót­inni; síld og loðnu. „Ég var eina loðnu­er­tíð á Berg Vigfús, sem var gamli Kefl­vík­ingur, og svo var ég þrjú sumur á norsk-íslensku síld­inni í síld­arsmug­unni. Svo var ég á Sæborg­inni nokkur haust á síld fyrir austan. Það var skemmti­leg­asti veiði­skap­ur­inn.“

Bara allt á bólakaf.

Grétar Mar seg­ist ekki hafa lent í háska en segir þó: „Ég lenti einu sinni í því í kol­vit­lausu veðri; suð­vestan sjö átta vind­stig og svo gerði hviður og þá bætti hann í. Ég fór fjóra róðra og var úr Sand­gerði og út í tross­urnar var alltaf beint á móti og ég var í fimm tíma út í trossur sem átti ekki að taka nema tvo og hálfan til þrjá tíma. Það bara gekk ekk­ert á móti veðr­inu. Ég lagði tross­urnar bara undan veðr­inu. Bara lens­aði. Sæborgin var mjög gott skip, sér­stak­lega á lensi. Svo einu sinni þegar ég var að leggja og þeir voru að láta seinni drek­ann detta þá sá ég að það var skafl fyrir aftan mig. Og allir strák­arnir úti á dekki. Ég kall­aði „brot“ út um glugg­ann. Svo kom bara fylla fram eftir dekk­inu. Bara allt á bólakaf. Þeir voru nú búnir að koma sér eitt­hvað í var og einn fór á bak við mastrið. Svo fór ég að telja þegar fór að renna út af honum aftur. Þá vant­aði mig einn. Ég nátt­úr­lega varð skelf­ingu lost­inn. Ég verð bara að segja eins og er. Þá hafði hann náð að skjóta sér inn í gang­inn og loka dyr­unum. Það var miklu fargi af manni létt þegar maður sá að þetta var í lagi. En ég fór ekki á sjó dag­inn eftir. Það var sams konar veður. Þetta var orðið gott.“

Það er mikil gæfa að hafa verið skip­stjóri í öll þessi ár og sleppa áfalla­laust.

„Já, þegar maður lítur til baka er maður voða­lega mont­inn að hafa fiskað þetta mikið en þá er þetta það sem er gulls ígildi.“

Svo ef maður slítur af sér veið­ar­færi eða slasar fólk þá er maður vit­leys­ingur eða asni.

Menn gleyma því aldrei ef þeir missa mann.

„Nei. Það held ég ekki. Ég held að það hefði verið rosa­lega þungt. Það er oft svo stutt á milli hlát­urs og grát­urs í þessu. Við erum hetjur, við róum í vit­lausum veðrum og fáum ein­hvern afla en svo ef maður slítur af sér veið­ar­færi eða slasar fólk þá er maður vit­leys­ingur eða asni.“

Þá ertu skúrkur.

„Þá ertu skúrkur. Og það er oft svo stutt þarna á milli.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Menning

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Nýtt bóka­for­lag vill efla íslensku­lestur meðal fólks af erlendum upp­runa

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar

Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu

Myndband
Menning

Luthers­son frum­sýnir blóð­uga ást­ar­sögu í eyði­mörk Kali­forníu