Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Svavar var í neyslu og bjó í tjaldi en þá birtist hjálpin: „Náðu þér í kókómjólk og hreinar nálar“

Svavar var í neyslu og bjó í tjaldi en þá birtist hjálpin: „Náðu þér í kókómjólk og hreinar nálar“
Svavar Georg

Nýjustu gestir bræðrana Gunnars og Davíðs Wiium eru Kristín Dav­íðs­dóttir og Svavar Georgs­son. Kristín er hjúkr­un­ar­fræð­ingur og teym­is­stjóri skaða­minnk­unar hjá Rauða kross­inum og Svavar fyrrum skjól­stæð­ingur fú Ragn­heiðar og að eigin sögn fík­ill og alka­hólisti í bata en hann hefur verið edrú í tæp þrjú ár. Hér er brot úr við­tal­inu.

Svavar og hans reynsla

Talið barst að Svavari og hans reynslu. Svavar fór yfir sögu sína og lýsti því hvernig hann sem ung­lingur í Vest­manna­eyjum fer að fikta við allt sem er hættu­legt, áfengi og fíkni­efni þar á meðal. Um 17. ára ald­ur­inn flytur hann til Reykja­víkur og segir hann að pabbi sinn hafi sagt við hann við brott­för að hann trúi því að Svavar muni enda í ræs­inu í Reykja­vík, svo­leiðis var stemn­ingin sem sagt orðin og faðir hans reynd­ist sann­spár. Í ein­hver ár flakk­aði hann á milli vina en neyslan jókst og jókst. Eitt sinn fékk hann úthlut­aða félags­legri íbúð en hann var ekki fljótur að brenna þær brýr og missti hann íbúð­ina. Ekkert virk­aði og svo kom að því að hann var orðin algjör­lega heim­il­is­laus og komin í harða neyslu á Ritalin og kókaín í æð. „Svo verður þetta alltaf verri og verri þróun og ég er far­inn að brjóta af mér til að fjár­magna þetta. Hvort sem það var með því að selja eit­ur­lyf og fleira.“

Svavar var í harðri neyslu

Hann útskýrði í við­tal­inu hvernig gisti­skýlið á Lind­ar­götu hjálp­aði honum mikið og veitti honum skjól á verstu tímunum en svo þegar hann bar sig eftir ein­hverri hjálp þar inni var í raun enga hjálp að fá. „Þegar ég var þarna bað ég ítrekað for­stöðu­mann­inn um að koma mér í með­ferð. Það er ofboðs­lega gott að vera þarna en mér per­sónu­lega finnst það vanta rosa­lega mikið upp á það að haldið sé betur utan um þá sem þarna eru.“ Þarna horfði hann upp menn sem gista þarna ár eftir ár og upp­lifði hann eins og hann væri bara í ein­hverri geymslu. Þá not­aði hann einnig neyð­ar­skýlin úti á Granda. „Þetta var hugsað fyrir þá sem voru í harðri neyslu en „gömlu“ karl­arnir sem voru bara í bjór og áfengi áttu að vera uppi á Lind­ar­götu. En eins og Kristín sagði áðan þá í Covid varð svo­lítið mixup og ef einn stað­ur­inn er fullur þá verð­urðu að fara á þann næsta. Ég fann samt ekki eins og það væri ein­hver hjálp í skýl­unum en ég er ekki að setja út á þennan stað, þetta er rosa gott að þetta sé til, að þú getir átt svona neyð­ar­skýli til að leita til en mín upp­lifun var bara svona.“

Illa far­inn af neyslu

Honum fannst samt fínt að vera þarna framan af, kost­aði ekki neitt svo allar félags­legu bæt­urnar gat hann notað í fíkni­efni þó svo að þær hafi yfir­leitt horfið á 1-2 dögum enda þessi efni sem um ræðir mjög dýr í inn­kaupum. Eftir að bæt­urnar klár­uð­ust tóku afbrot við, þjófn­aður og inn­brot, öllu var stolið steini létt­ara til að kom­ast yfir efnin sem kerfið öskr­aði á stans­laust.

Frú Ragnheiður

Hann kynn­ist úrræði Frú Ragn­heiðar einn dag­inn þegar félagi hans inn á skýli segir við hann „Svavar, drull­aðu þér út, bíll­inn er fyrir utan, farðu út og náðu þér í kókó­mjólk og hreinar nálar.“ Svavar vissi ekki hvað á sér stóð veðrið en þetta voru hans fyrstu kynni af Frú Ragn­heiði. Í bílnum kynnt­ist hann fólki sem ekki bara veittu honum útbúnað til öruggrar neyslu og tjald og hlý föt heldur líka við­mót sem ein­kennd­ist af hlýju og vel­vild. Eitthvað sem í raun er það dýr­mætasta fyrir mann­eskju í þess­ari stöðu, stöðu þar sem oft­ast allir ætt­ingar og vinir eru búnir að loka á við­kom­andi, kerfið er búið að loka á þig, sam­fé­lagið er búið að loka á þig. Svavar bjó á tíma­bili í tjaldi sem gat orðið ansi kalt í verstu veðr­unum en eftir að hann varð edrú var honum sagt af starfs­manni Frú Ragn­heiðar að þau hafi oft haft áhyggjur af honum, sér­stak­lega þegar þau sáu ekki tjaldið hans. „Mér þótti svo vænt um að heyra þetta, að það var ein­hver raun­veru­lega að spá í því hvort ég væri lif­andi eða ekki.“

Í dag er allt annað að sjá Svavar

Í kynnum og návist sjálf­boða­liða Frú Ragn­heiðar fann fyrir ein­hverri mennsku sem að hans sögn urðu til þess að hann fann sig til­búin til að biðja um hjálp. Hann skynj­aði innra með sjálfum sér að hann væri að deyja og til­hugs­unin um börnin sem hann átti þarna úti og gat ekki sinnt að neinu leiti nísti inn að beini. Á þessum tíma var hann búinn að vera í tjaldi í langan tíma í rjóðri fyrir neðan bens­ín­stöð­ina við Fellin í efra Breið­holti. Hann bað þáver­andi for­stöðu­konu Frú Ragn­heiðar um að hjálpa sér að kom­ast inn í með­ferð og það virk­aði. Nóvember 2019 gekk hann inn á Vog og síðan hefur hann verið edrú og segir Svavar að ef ekki hefði verið fyrir Frú Ragn­heiði hefði hann örugg­lega ekki lifað þetta af, hann var á síð­asta snún­ing og kær­leik­ur­inn og hjálp­semin sem hann fékk frá fólki sem vinnur þessa óeig­in­gjörnu vinnu urðu honum til lífs. 

Þetta magn­aða og upp­lýsandi við­tal við Svavar og Kristínu má sjá og heyra á spil­ar­anum hér fyrir neðan ásamt að Þvotta­húsið finnst á öllum helstu streym­isveitum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Menning

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Nýtt bóka­for­lag vill efla íslensku­lestur meðal fólks af erlendum upp­runa

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar

Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu

Myndband
Menning

Luthers­son frum­sýnir blóð­uga ást­ar­sögu í eyði­mörk Kali­forníu