Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Dáleiðarinn Sara frelsar fólk frá krónískum verkjum: „Allur bati verður að koma innan frá“

Dáleiðarinn Sara frelsar fólk frá krónískum verkjum: „Allur bati verður að koma innan frá“
Sara Páls­dóttir Mynd: Aðsend

Nýjasti gestur bræðrana Gunnars og Davíðs Wiium í hlað­varp­inu Þvotta­húsið er frum­kvöð­ull­inn, dáleið­ar­inn og orku­heil­ar­inn Sara Páls­dóttir.

Sara Páls­dóttir

Batinn kemur innan frá

Sara, sem hefur stundað dáleiðslu og orku­heilun sam­hliða lög­mennsku í nokkur ár segir að þessi and­lega vinna sé farin að taka meira og meira yfir og að nú hafi hún tekið ákvörðun um að hætta í lög­mennsku og ein­beita sér ein­göngu að orku­heilun, dáleiðslu og nám­skeið­unum sínum Frelsi frá kvíða. „Það sem veldur því er það að þetta er minn til­gangur en við komum öll í þetta líf með ein­hvern ákveð­inn til­gangi og fáum gjafir til að fylla upp í þann til­gang. Og þetta er minn til­gangur,“ svar­aði Sara þegar bræð­urnir spurðu hana af hverju hún væri að snúa sér alfarið inn á and­legu braut­ina.

„Allur bati verður að koma innan frá. Það sem ég glímdi við sjálf, alvar­legan fíkni­sjúk­dóm, átrösk­un­ar­sjúk­dóm, krónískan og mjög alvar­legan kvíða, brotna sjálfs­mynd. Ég glímdi við krónísk verkja­vanda­mál, ég glímdi við síþreytu, ég var alltaf þreytt. Sjúkra­þjálf­ar­inn minn greindi mig með vefja­gigt og ég var bara orðin algjör­lega örmagna og örvænt­inga­full. Og þegar ég var í þess­ari líðan, í þess­ari örvænt­ingu, þá var eng­inn þarna úti sem gat sagt mér hvað var að mér. Ég leit­aði til alls­kona sér­fræð­inga, mis­mun­andi lækna, sjúkra­þjálf­ara og kíróprakt­ora, osteopata og það var eng­inn sem gat sest niður með mér og sagt mér „það er þetta sem er að valda þessu og það er þetta sem þarf að gera“. Og allt sem ég reyndi og allar þessar með­ferðir sem ég reyndi voru ekki að skila mér þeim árangri sem ég vildi ná út úr líf­inu sem var að fá algjört frelsi frá þessum nei­kvæðu ein­kennum og verða heil­brigð. Ég vildi ekki verða öryrki, ég gat ekki lengur unnið heilan vinnu­dag út af því að ég var svo ofboðs­lega veik.“ Segir Sara að nú vilji hún hjálpa fólki sem er að upp­lifa það sama og hún upp­lifði, að kom­ast yfir þetta og losa það við nei­kvæða orku sem veldur oft þessum veik­indum.

Dáleiddi Wiium bræður í beinni

Aðdá­endur Þvotta­húss­ins muna sjálf­sagt eftir Söru er hún kom til bræðr­anna fyrir hálfu ári, í þætti númer 70.

Í þeim þætti fór hún yfir sína sögu og aðdrag­andan inn i dáleiðslu og and­lega vel­ferð. Saga hennar er lituð af mik­illi þján­ingu og lík­am­legum kvillum sem fylgdu mik­illi upp­safn­aðri nei­kvæðri orku sem hún hefur nú náð að losa sig við, líkt og hún lýsti hér fyrir ofan. Í lok þess þáttar leiddi hún Gunnar í djúpa dáleiðslu þar sem hann varð fyrir sterkri sál­rænni reynslu sem að eigin sögn náði honum upp á nýtt vit­und­ar­stig sem ein­kenn­ist af mik­illi gleði og létt­leika í leik og starfi. 

Gunnar lýsti reynslu sinni á eft­ir­far­andi hátt:

„Ég fór alveg úr lík­am­anum og sam­ein­að­ist öllu því sem er, algjört out off body experience. Ég tókst á við alvar­leikan, sorg og sekt og var svo leiddur út úr dáleiðsl­unni hlæj­andi og glaður, í algjörri sælu­vímu og laus undan gríða­legum þunga sem ég hafði burð­ast með í ára­tugi.“

Í þessum nýjasta þætti sem er sá 92 í röð­inni, fer Sara enn frekar yfir alla þá and­legu og lík­am­legu kvilla sem stafa af upp­safn­aðri nei­kvæðri orku sem við ýmist fram­leiðum sjálf með óheil­brigðu hug­ar­fari eða söfnum fyrir innra með okkur sem þeim áföllum sem við höfum orðið fyrir á lífs­leið­inni.  

Kvíði og þung­lyndi, síþreyta og almennt orku­leysi, nei­kvæðar hugs­anir, skert sjálf­mynd, krónískir verkir, með­virkni í sam­böndum, svefn­leysi og martraðir, höf­uð­verkir, fób­íur eða áráttur, vöðva­bólgur, húð­vanda­mál, fíkni­vanda­mál, maga­verkir og melt­ing­ar­vanda­mál svo eitt­hvað sé nefnt eru þættir sem Sara segir að hægt sé að fá frelsi frá með því að ráð­ast í orsök vand­ans sem oft liggur i und­ir­með­vit­und okkar í formi óupp­gerðra áfalla sem birt­ist sem nei­kvæð orka. Þessa orku fáum við að sjá og finna fyrir þegar við förum í dáleiðslu­á­stand og fáum þannig aðgang að und­ir­með­vit­und okkar. Okkur er svo í raun boðið upp á úrvinnslu í þessu ástandi sem lýsir sér þannig að við getum annað hvort losað okkur við eða ein­fald­lega umbreytt nei­kvæðri orku yfir í jákvæða orku sem við svo njótum góðs af og verðum frjáls frá þeim nei­kvæðu ein­kennum sem upp­söfnuð nei­kvæð orka veldur.

Í þætt­inum var loka­tak­markið hins­vegar að leiða Davíð í dáleiðslu­á­stand sem lausn við krónískum verkjum í kvið­holi, brjósti og mjöðmum. Verkir sem Davíð er búin að vera glíma í ein­hverju formi síðan hann var ung­lingur. Dáleiðslan gekk afar vel og aug­ljóst var að Davíð fór í djúpt ástand dáleiðslu sem færði hann að rótum vand­ans. Hann nefndi í því sam­hengi atburði úr æsku sem og áfall sem hann varð fyrir er bróðir hans týnd­ist í Dublin fyrir nokkrum árum síðan og hefu aldrei fund­ist. Eins minnt­ist hann á álagið sem fylgdi á að vera með rekstur og mikin mann­forða sem hann þurfti svo að segja upp í COVID. Hann sagði að það hefði reynst honum gríð­ar­lega erfitt sér­stak­lega svona stuttu eftir að hann missti bróðir sinn á eins dul­ar­fullan hátt og raun bar vitni. Í ljós kom að sú nei­kvæða orka sem fylgdi áföllum for­tíð­ar­innar hafði safn­ast saman í maga­svæði Davíðs og var að valda sárum og krónískum verkjum. Með því að tengja sig við und­ir­með­vit­und Davíðs í dáleiðsl­unni gat Sara orku­heilað hann og losað þessa orku úr maga­svæði hans. Eftir því sem leið á dáleiðsl­una fór Davíð að líða betur og smátt og smátt eftir því sem Sara náði að fikra sig lengra inn í kjarn­ann fóru verkirnir að hverfa og í lok dáleiðsl­unar var hann orðin alveg verkja­laus og vart gat leynt undrun sinni yfir því. Óhætt er að segja að sjón er sögu rík­ari!

Sara og Davíð í miðri dáleiðslu.

Frá því dáleiðslan átti sér stað þann 27 júní síð­ast­lið­inn, hefur Davíð ekki fundið fyrir þessum maga­verkjum sem hann og læknar stóðu ráð­þrota gagn­vart. 

Í lok þátt­ar­ins aug­lýstu þau þrjú þriðja þátt­inn sem verður tekin upp eftir ein­hverja mán­uði þar sem Sara ætlar að fram­kalla svo­kall­aða fyrra­lífs dáleiðslu þar sem Gunnar mun þá sitj­ast í stól­inn og mögu­lega kom­ast að því hver hann var og hvaða hlut­verkum hann gengdi í sínum fyrrum lífum. 

Fyrir þá sem hafa áhuga á að kynna sér starf og þjón­ustu Söru Páls­dóttur er bent á facebook síðu hennar Frelsi frá kvíða og svo heima­síðu hennar.

Þennan áhrifa­ríka og töfr­andi þátt má heyra og sjá í heild sinni á spil­ar­anum hér fyrir neðan ásamt að Þvotta­húsið má finna á öllum helstu streym­isveitum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Menning

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Nýtt bóka­for­lag vill efla íslensku­lestur meðal fólks af erlendum upp­runa

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar

Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu

Myndband
Menning

Luthers­son frum­sýnir blóð­uga ást­ar­sögu í eyði­mörk Kali­forníu