Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Mummi barðist við meingallað kerfi: „Félagsþjónustan í Hafnarfirði drap þessa stúlku“

Mummi barðist við meingallað kerfi: „Félagsþjónustan í Hafnarfirði drap þessa stúlku“
Mummi í Göt­ursmiðj­unni Mynd: Aðsend

Nýjasti gestur bræðr­anna Gunnars og Davíðs Wiium er engin annar en Týr Þór­ar­ins­son sem er kannski betur þekktur sem Mummi í Götu­smiðj­unni. Mummi er rokk­ari, mótór­haus, bind­ind­is­maður og kvik­mynda­gerð­ar­maður í grunn­inn og lista­spíra inn við hjartað.

Mummi gengur nú undir nafn­inu Týr.

Götusmiðjan

Mummi var vill­ingur, tossi að eigin sögn. Gekk illa í ferkönt­uðu skólaum­hverf­inu og fljótt var hann far­inn að mis­nota fíkni­efni. Honum var svo reyndar sparkað úr með­ferð af Vogi eftir sjö daga fyrir að vera ekki nógu góður alki eins og hann orð­aði það en nú hefur hann verið edrú í um 30 ár.

Mummi er einna helst þekktur fyrir ötult starf með ung­lingum í fíkni­vanda og rak í um 14 ár með­ferð­ar­heim­ilið Götu­smiðjan sem að eigin sögn skil­aði mjög góðum árangri. Hann fann sig í þessum bransa eftir að hann hóf störf í félags­heim­ili þar sem hann kenndi ung­lingum kvik­mynd­ar­gerð. Þar hitti hann ung­linga sem hann tengdi strax við, ung­lings­drengi sem virt­ust eiga erfitt upp­dráttar og oft á tíðum bjuggu við mik­inn óstöðu­leika heima fyrir. Segir hann að hann hafi fundið að þessar týpur sóttu mikið í hann og að hann nyti virð­ingar sem hann svo nýtti sér til fram­dráttar í vinnu sinni með þessum hópi seinna meir. 

Smátt og smátt færð­ist hann meira og meira yfir í að hýsa þessi ung­menni sem mörg hver áttu sér engan sama­stað. Allt frekar tíma­bundin verk­efni sem ollu oft á tíðum fjarð­ar­foki hjá hinu opin­bera. Hann hefur verið ásak­aður um ýmis­legt í gegn um tíð­ina og það lýsti sér strax í byrjun í við­tölum með hinu opin­bera. Hann var meðal ann­ars spurður út í þennan áhuga á ungun drengjum og hvort þær væru af eins­konar anar­legum hvötum byggðar. 

Mummi horfði upp á þessi ung­menni fara inn og út úr með­ferðum og sum hver deyja. Hann heyrði hið opin­bera lýsa því yfir að vandi hús­næð­is­lausra ung­menna í fíkni­vanda væri engin og því tók hann af skarið og opn­aði Götu­smiðj­una, með­ferð­ar­úr­ræði með óskil­greindan tíma þeirra sem nýttu sér úrræðið. Eina skil­yrðið var að börnin væru undir 18 ára og hafði barna­vernd­ar­stofa svo­kall­aða yfir­um­sjón með milli­göngu þeirra ung­menna sem nýttu sér úrræðið. Á þeim 14 árum sem Götu­smiðjan var starf­rækt fóru um 2.000 ung­menni í gegnum úrræðið og með mjög góðum árangri að eigin sögn. Hann nefndi í við­tal­inu töl­fræði sem mið­uðu við það að að tveimur árum liðnum úr með­ferð voru um 50% ung­menna í góðum málum og sjálf­bær félags­lega og fjár­hags­lega, með vinnu og þak yfir höf­uðið.

Kerfið drepur

Ferill var settur af stað með sam­komu­lagi milli Mumma og Braga Guð­brands­sonar, þáver­andi for­stjóra Barna­vernd­ar­stofu um að barna­vernd­ar­yf­ir­völd myndu taka við heim­il­inu og Mummi myndi stíga til hliðar eftir öll þessi ár í 150% vinnu. Yfir­takan fór af stað eins og samið var um en áður en síð­ustu samn­ing­arnir höfðu verið und­ir­rit­aðir fór af stað atburð­ar­rás sem varð til þess að Götu­smiðj­unni var lokað rétt sí svona, börn­unum hrúgað upp í rútu og keyrð í burtu. Bragi og Mummi hafa síðan eldað grátt silfur saman og end­aði þessi atburð­ar­rás í rétt­ar­sal þar sem Mummi stefndi Braga vegna átta ummæla sem hann lét falla í fjöl­miðlum í tengslum við þetta mál og var Bragi sýkn­aður með öllu.

„Málið er það að Bragi fór ekk­ert dult með það að hann ætl­aði að taka mig niður. Og það var tals­vert áður en Götu­smiðj­unni var lokað,“ sagði Mummi við bræð­urna. Ástæðuna sagði Mummi vera marg­þætta. „Ég var kjaft­for, þetta gekk vel, þetta virk­aði, ég var gagn­rýn­inn á kerfið, mjög gagn­rýn­inn. Eins og félags­fræð­ingar hvísl­uðu að mér sögðu, ég vildi að ég gæti talað en ég er bund­inn þagn­areið. Ég efast um að það sé mikið skárra en kerfið var svo grút­mátt­laust og möskvarnir í örygg­is­net­inu voru svo stórir að það féllu ein­hvern­veg­inn flestir niður um þá.“ Mummi nefnir svo dæmi um 16 ára stúlku sem kom upp í Götu­smiðju en saga hennar var mikil harm­saga, ofbeldi og mis­notkun inni á heim­il­inu en mamma hennar seldi hana og systur hennar. „Þessi stelpa tal­aði ekki, hún bara urraði. Og reyndi að vera eins óaðl­að­andi og hægt var. Nema hvað að hún er hjá okkur í tvö ár, tekur bíl­próf, fær dellu fyrir hestum en við vorum með hesta og tón­list­arsmiðjur og lista­smiðjur og fleira. En dag­inn sem hún varð svo 18 ára, þá þvoði félags­þjón­ustan í Hafn­ar­firði hendur sínar af henni. Við vildum halda henni til tví­tugs en nei, það var engin miskun, hún átti bara að fara. Við fórum á fund eftir fund og bara „ple­ase“ en það var bara „computer says no“. Ég sagði þeim að þetta væri sér­stakt til­felli og ég vilji vera með hana áfram en að þau verði að hjálpa mér með þetta, borga henni vasa­pen­ing eða eitt­hvað. En nei, hún er orðin 18, þá verður hún að fara. Það eina sem félags­þjón­ustan bauð henni var lítil stúd­íó­í­búð lengst út í Hafn­ar­firði, því hún var þaðan. Stelpu­greyið náði að vera edrú í kannski mánuð. Hálfum mán­uði seinna var hún dáin. Það var á þriðja hjarta­stoppi eftir að hún byrj­aði að sprauta sig aftur. Ég segi, félags­þjón­ustan í Hafn­ar­firði drap þessa stúlku.“

Æviráðinn Bragi

Wiium bræður spurðu Mumma nánar út í þátt Braga í að ná honum niður.

„Hann hlust­aði á enda­lausar kvart­anir frá kerf­inu um mig og ein­hvers­staðar skap­að­ist alveg veru­leg óvild í minn garð. Bragi var þarna for­stjóri Barna­vernd­ar­stofu. Og garg­andi fylli­bytta. Það eru enda­lausar fyll­er­ís­sögur af honum út í á ein­hvers­staðar skil­urðu, þetta er ekk­ert leynd­ar­mál, þjóðin veit þetta. Hann er bara mjög tjón­aður ein­stak­lingur. En ævi­ráð­inn. Barna­vernd­ar­stofa verður til í tíð Jóhönnu en þau eru góðir vinir. Bragi smíðar Barna­vernd­ar­stofu, tekur for­stjóra­stól­inn og rekur það batt­erí alveg frá byrjun. Hann var með ævi­ráðn­ingu en einn ráð­herr­ann sem var þá við völd hringdi í mig og spurði „hvernig í and­skot­anum losna ég við þennan mann?“, skil­urðu, hann var sjálfur að koma sér út í horn. En hann Bragi var búinn að segja við mig að hann skyldi koma mér niður, með góðu eða illu.“

„En af hverju?“ spurði Gunnar Mumma. „Ég geri ráð fyrir að ég hafi verið illa lið­inn af kerf­inu, félags­þjón­ustum, barna­vernd. Ég hlífði engum. Ég var ekki að meiða fólk en ég réð­ist á stofn­an­irnar alveg ein­beittur.“

Bragi hélt því fram að meðal ann­ars að und­ir­rót lok­unar Götu­smiðj­unnar væri stjórn­un­ar­vandi for­stöðu­manns­ins Mumma sem væri far­inn að bitna á með­ferð­inni og skaða börnin sem væru í með­ferð. Bragi vildi meina að  sam­skipti Mumma við börnin væru farin yfir vel­sæm­is­mörk og fram­ganga hans farin að valda van­líðan og óör­yggi, auk þess átti Mummi að hafa lagt stars­menn í ein­elti og ekki síst hótað ung­mennum lík­ams­meið­ingum.

Sagan sem Mummi sagði hins­vegar í Þvotta­hús­inu í miklum smá­at­riðum stang­ast hins­vegar algjör­lega á við ásak­anir Braga sem nú gegnir hlut­verki innan nefndar á vegum Sam­ein­uðu þjóð­anna sem fer með rétt­indi barna.

Viðtalið við Mumma í Götu­smiðj­unni er eitt það lengsta sem Þvotta­húsið hefur tekið upp, heilar 2.5 klst. Hand­ritið sem lagt var upp með í byrjun hljóð­aði upp á rúma klukku­stund en flæðið bauð ekki upp á annað enda er Mummi mikil sögu­maður og með mikið líf á bak­við sig. 

Viðtalið má sjá og heyra í heild sinni hér á spil­ar­anum fyrir neðan en einnig má finna Þvotta­húsið á öllum helstu streym­isveitum eins og Spotify svo eitt­hvað sé nefnt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Menning

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Nýtt bóka­for­lag vill efla íslensku­lestur meðal fólks af erlendum upp­runa

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar

Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu

Myndband
Menning

Luthers­son frum­sýnir blóð­uga ást­ar­sögu í eyði­mörk Kali­forníu