Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Ágúst beittur harðræði inni á Geðdeild: „Þetta er auðvitað bara nauðgun“

Ágúst beittur harðræði inni á Geðdeild: „Þetta er auðvitað bara nauðgun“

Nýjasti gestur bræðr­anna Gunnars og Davíðs Wiium í hlað­varps­þætt­inum Þvotta­húsið er hann Ágúst Kristján Stein­ars­son, stjórn­un­ar­ráð­gjafi, tón­list­ar­maður, fyr­ir­les­ari og rit­höf­undur. Ágúst er með langa sögu af geð­kvillum sem og bar­áttu við krabba­mein sem þeir tóku púls­inn á í þætt­inum.

Upplifði hrikalega meðferð á geðdeild

Ágúst greind­ist 19 ára með geð­hvörf, en þó var það ein­ungis manía þar sem hann fann ekki fyrir þung­lyndi. Í sam­tal­inu við þá Wiium bræður sagð­ist hann upp­lifa mikið ofbeldi og mikla hörku í við­móti innan geð­heil­brigð­is­kerf­is­ins á Íslandi. Hann lýsti einu skipti er hann fór á geð­deild fyrir um 10 árum síðan:

„Ég fer sjálf­vilj­ugur inn á geð­deild, bið um hjálp og þau taka mér opnum örmum. Ég mæti lækni sem ég hélt fyrst að væri vist­maður því hann bar það með sér að vera ekki alveg í lagi. Og hann er að fylgj­ast með mér í þrjá daga og segir svo að ég geti farið. Þegar ég er að fara ákvað ég að stríða honum, ögra honum, man ekki nákvæm­lega hvað ég sagði við hann en það endar á því að það kviknar eldur í aug­unum á honum og hann segir mér að hunskast í burtu. Ég varð þá mjög ánægður með sjálfan mig, að hafa tek­ist að ögra honum enda er það partur að man­í­unni, að ögra og ýta við status quo. En svo kem ég aftur dag­inn eftir því ég gleymdi bak­poka og er að leita að honum en er þar grip­inn af lækni. Hann leiðir mig inn í her­bergi þar sem við erum þrír fyrst. En svo fjölgar þeim og við erum orðnir sjö. En það var ekk­ert sem gerð­ist þarna, ekk­ert sem ég sagði eða gerði sem gaf þeim ástæðu til að fara svona með mig. En þetta endar með því að þeir beita mig lög­reglu­brögðum til að yfir­buga mig. Þarna eru komnir tveir lög­reglu­menn líka inn í dæmið. Um leið og þeir sjá veikan blett á mér, stökkva þeir á mig.“

Gunnar spurði Ágúst hvort um hafi verið að ræða sjálf­ræð­is­svipt­ingu og ját­aði hann því.
„Þegar þarna er komið við sögu þurfti ekki fjöl­skyld­una til að svipa mig sjálf­ræði, bara dóm­stóla,“ svar­aði Ágúst en sagði að það hefði gerst áður að fjöl­skyldan lét svipta hann sjál­f­ræð­inu. „En já, þeirra umboð er nokkuð skýrt og það sem ger­ist er að þú verður bara svert­ingi fyrir 150 árum, þú verður „per­sona non grata“. Það er ekki hlustað og maður er auð­vitað í skrítnu ástandi en þrátt fyrir að maður er að reyna að tjá sig og láta vita hvernig manni líður, er ekki hlustað. Þau eru ekki til staðar fyrir mann, þau eru ekki að hjálpa manni, þau eru bara að láta mann gera hluti sem þau vilja að maður geri. Eða það er að minnsta kosti upp­lifunin.“

Davíð spurði Ágúst hver aðdrag­andi sé á þess­ari aðför, af hverju þetta hafi gerst en því svarar Ágúst til að „þeir“ hafi greini­lega fengið bak­þanka, ein­hverra hluta vegna. „Ég gekk inn á geð­deild­ina eins og bara klippur út úr banda­rískri „jocky“ háskóla bíó­mynd, ég er mættur á stað­inn og læt fara svo­lítið mikið fyrir mér og ætla að rugla í þeim og vera með galdr­a­t­rix og fleira,“ sagði Ágúst bros­andi. Bætir hann því svo við að ein­hverra hluta vegna hafi þeir svo fengið bak­þanka með að senda hann aftur heim og loka hann inn í her­bergi þar sem hann vissi ekk­ert hvað var í gangi enda í maníu. Þar er hann afklæddur, lagður í jörð­ina og spraut­aður í báðar rasskinn­arnar. „Þetta er auð­vitað bara nauðgun, ekk­ert annað.“ Bætti Ágúst því við að ekk­ert hafi kom­ist að hjá honum á þessum augna­bliki annað en reiði. „Ég hefði getað verið nið­ur­brot­inn og hræddur og alls­konar en það eina sem var pláss fyrir var reiði. Ég vakn­aði svo inni í þessu her­bergi sem var gætt af örygg­is­vörðum og er í þeirra höndum í 7 eða 10 daga.“

Vildi Ágúst þó koma því til skila að allir væru að gera sitt besta hér á landi og um að sé að ræða kerf­is­vanda en aðstæður starfs­manna séu mjög krefj­andi.

Lyfin ekki eina lausnin

Ágúst ræddi einnig við Wiium bræður um lyfja­gjöf á geð­heil­brigð­is­svið­inu en hann seg­ist ekki með öllu andsnú­inn lyfja­gjöf enda taki hann inn lyf í dag. Segir hann þó að stundum sé eins og lyfin séu eina lausnin, sem hann sé sann­færður um að sé ekki raunin. „Ég var alltaf á móti lyfjum og geð­deild því þetta virk­aði ekki en svo fór ég til Dan­merkur og sá að þetta virk­aði. Notum lyf ef þau virka en við þurfum að gera þetta heild­stætt.“

Gunnar nefndi dæmi um allan þann fjölda sem góð­vinur hans hefur fengið en sá vinur sætti sjálf­ræð­is­svipt­ingu og lyfjum var þvingað í hann.

„Og tekið skal fram að ekki er verið að bjóða honum þessi úrræði, þeim er klínt á hann með valdi og við­ur­styggi­legu ofbeldi því jú, mað­ur­inn hefur verið sviptur frelsi í hvert skipti,“ sagði Gunnar áður en hann þuldi upp lyfin.

Listinn yfir þau lyf sem geð­heil­brigð­is­kerfið hefur reynt á vin Gunnars er svohljóð­andi:

Lithium, Cipralex, Zoloft, Prozac, Wellbutrin, Risper­dal, Zyprexa, Invega, Clozapine, Seroquel, Abilify, Haldol, Peratsin, Phenergan, Klór­pró­masin, Rítalin, Concerta, Stratt­era, Librium, Sobrill, Temestad, Rivotrill og Ven­laxa­fine.

Allt annað viðhorf í Kaupmannahöfn

Á tíðum fannst Ágústi við­horf og með­ferð starfs­manna nei­kvæð og nið­ur­brjót­andi, þar sem væri jafn­vel skortur á sam­kennd..

En þegar hann var vistaður á spít­ala í Kaup­manna­höfn eftir að hafa verið tek­inn fastur af lög­reglu, kviknakinn á ein­hverju torg­inu. Hagaði hann sér mjög illa í lög­reglu­gæsl­unni. En á spít­al­anum upp­lifði hann allt annað and­rúms­loft, þar fann hann fyrir mik­illi mann­gæsku og ást.

„Þar er ég ólaður niður, sem er ekki gert á Íslandi. Þar er ég lyfj­aður meira en gert er á Íslandi og haga mér bara mjög vel. Þau gerðu þetta bara rétt. Ég upp­lifði kær­leik, ást og þol­in­mæði.“

Þetta var hans síð­asta man­íukast en Ágúst hefur náð tökum á lífi sínu eftir þetta og er nú á níunda ári án man­íukasta án man­íukasta en Ágúst veltir því jafn­vel upp hvort þessi góða með­ferð sem hann fékk í Danmörku hafi lagt grunn að þessu jafn­vægi og heil­brigði sem hann er þakk­látur fyrir í dag.

Þennan ein­læga og afslapp­aða þátt má sjá í heild sinni á spil­ar­anum hér fyrir neðan sem og að Þvotta­húsið má finna á öllum helstu streym­isveitum, spotify meðal ann­ars.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Menning

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Nýtt bóka­for­lag vill efla íslensku­lestur meðal fólks af erlendum upp­runa

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar

Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu

Myndband
Menning

Luthers­son frum­sýnir blóð­uga ást­ar­sögu í eyði­mörk Kali­forníu