Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Rúv tók viðtal við Vilmund dýnuhvíslara út úr kvöldfréttum:„Ég veit ekkert hvað fór þeim í millum“

Rúv tók viðtal við Vilmund dýnuhvíslara út úr kvöldfréttum:„Ég veit ekkert hvað fór þeim í millum“
Vil­mundur skoðar heilsu­sam­legar svefn­vörur. Mynd: Aðsend

Nýjasti gestur bræðr­anna Gunnars og Davíðs Wiium í hlað­varps­þætt­inum Þvotta­húsið er Vil­mundur Möller Sig­urðs­son, raf­eind­ar­virkja­meist­ari og dýnu­hvísl­ari.

Vil­mundur Möller Sig­urðs­son.

Fár­veikur á heilsu­dýnu

Vil­mundur uppgvötvaði fyrir að um 5 árum að heilsu­dýnan sem hann hafði keypt dýrum dómi árið 2006 væri í raun alvar­lega heilsu­spill­andi. Hann var farin að glíma við alvar­lega heilsu­kvilla á borð við króníska verki um allan lík­amann, sár, útbrot, hár­los, bólgur og gigt. Þá var hann kom­inn með kæfisvefn og ofsa­svita, stöðuga síþreytu og drauga­verki sem færð­ust til um lík­amann án nokk­urs sam­engis. 

Vil­mundur var orð­inn fár­veikur og botn­aði ekki í hvað væri raun­veru­lega að veikja hann. En síðan upp­götv­aði hann ástæð­una: Skaðleg útgufun úr svampefnum í svefn­vöru. „Þegar ég upp­götv­aði þetta var ég orð­inn eins og kannski mann­eskja sem nær sér ekki eftir Covid, sinnum þrír, ef ekki meira.“ 

Vil­mundur stofn­aði Facebook-hóp um mál­efnið og þar eru rúm­lega 10.000 manns. „Ég hélt ég gæti bara gengið inn á land­lækni og sagt honum að ég vissi um stór­hættu­legt efni sem er að veikja hund­ruði ef ekki þús­undir manna hér á landi og það þyrfti að bregð­ast við þessu.“

Léleg viðbrögð landlæknis

Aðspurður um við­brögð land­læknis sagði Vil­mundur: „Ég fékk léleg við­brögð. Bæði Þórólfur og Alma sögðu að það væri ekk­ert sem þau gætu gert þar sem þetta væri ekki vís­inda­lega sannað. Að þetta væru veik­indi frá efna­vöru og þar af leið­andi gætu þau ekk­ert gert. Ég sagði þeim að það væri veikt fólk til umræðu en það virð­ist ekki hafa neitt vægi. Ég sagði þeim að „það er fullt af veiku fólki hérna, hópur sem er stofn­aður og sögur þar inni, hund­ruðir af sögum þar sem fólk er að lýsa því hvernig það hefur verið veikt og hvernig það nær aftur betri heilsu með því að fara úr svampefn­unum og yfir í heil­næm­ari efni.“ Og ég náði nú að kreista mig á þrjá fundi með land­lækni og tvo með umhverf­is­stofnun. Og einn fund með full­trúa heil­brigð­is­ráð­herra og einn með heil­brigð­is­ráð­herr­anum að lokum.  Og það er bara stutt og laggott. Ekkert að ger­ast hjá þeim sem eru heil­brigð­is­ráð­herra og land­læknir. Umhverf­is­stofnun er hins vegar að vinna svo­lítið í þessum efnum núna og koma með ein­hverjar rann­sóknir og yfir­lýs­ingar um að mjúkt plast sé hættu­legt en þau hafa ekki farið ennþá í það að segja að svefn­varan sé hættu­leg.“

Viðbrögðin fram úr björtustu vonum

Ákvað Vil­mundur ásamt eig­in­konu sinni að prófa að flytja inn heil­næmar dýnur og athuga hvort ekki væri áhugi fyrir því í Facebook-hópnum. „Og það urðu þetta líka svaka­legu við­brögð. Fólk stóð bara í röð fyrir utan hjá okkur þegar við opn­uðum fyrst.“

Gunnar vildi fá að vita hvað væri í þess­ari dýnu sem Vil­mundur fann í Bret­landi. „Ég var að leita að ein­hverju sem kæmi stutt frá og svo var ég búinn að sjá að ull væri málið. Af því að ull í fatn­aði er æðis­legt. Og þarna í Englandi var hægt að finna ull­ar­svefn­vörur sem inni­héldu upp, hamp, gorma og líf­rænan bóm­ull, að það væri ekk­ert útguf­un­arpla­stefni í því.“ End­ing­ar­tím­inn á slíkum dýnum er um 12 til 15 ár.

Hér er dæmi um ull­ar­rúm.

Davíð spurði Vilmund hvernig þessar dýnur standa gegn stoð­kerf­is­vanda og almennum svefn­gæðum. „Þetta er ekki alveg ein­falt að útskýra sko. En við getum sagt að ef þú ert með bólgur í lík­am­anum þá þarftu svona þrýsti­jöfn­un­ar­dýnu en um leið og hún er að leysa þetta mál með þrýsti­jöfnun þá er hún að auka bólgur. Eða hún er að við­halda bólgum. Hún bjó til þessar bólgur til að byrja með þegar þú varst nokkuð slæmur og þurftir kannski bara að hreyfa þig eða eitt­hvað en þú keyptir þér þessa æðis­legu dýnu sem átti líka að hjálpa þér og hún er með svona þrýsti­jöfnuð. En hún fer jafn­vel að auka bólg­urnar og þar af leið­andi þarftu á þrý­st­jöfn­un­ar­dýnu að halda til þess að geta bara fún­kerað í líf­inu.“

Þöggun Rúv

Fjöl­miðlar hafa sýnt máli Vil­mundar nokkurn áhuga en hann lenti þó í því að vera tek­inn út úr kvöld­fréttum Rúv. „Það var tekið við mig við­tal sem átti að birt­ast í kvöld­fréttum Rúv, það kvöldið. Og síðan fékk ég bara að heyra það rétt fyrir kvöld­fréttir að það yrði fellt niður. Að þetta yrði fellt niður eftir að þeir töl­uðu við sölu­að­ila svefn­vara. Þetta var bara saga um mín veik­indi. Og saga um veik­indi fleiri fólks.“

Gunnar spurði Vilmund af hverju það breytti ein­hverju, að Rúv hafi talað við sölu­að­ila heilsu­dýna. „Kannski hót­uðu þeir að taka allar aug­lýs­ingar út úr miðl­inum. Sölu­að­il­inn var nafn­greindur en ég veit ekk­ert hvað fór þeim í millum en það var þetta sem ger­ist, að þessi frétt er dregin til baka. Eftir þetta er ég orð­inn svo desperat því ég vissi um svo mikið af veiku fólki, alla daga, í skila­boðum og í sím­tölum en þetta var áður en ég hóf inn­flutn­ing á dýn­unum. Þannig að ég var búinn að tala við þau á Rúv og Kveik og Kastljós og heyrði það seinna að ég væri bara orð­inn ein­hver vand­ræða­gemsi á Rúv, pirr­andi gaur.“

Þennan upp­lýsandi og sjokker­andi þátt má sjá í heild sinni á spil­ar­anum hér fyrir neðan ásamt að þætti þvotta­húss­ins má finna á öllum helstu streym­isveitum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Menning

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Nýtt bóka­for­lag vill efla íslensku­lestur meðal fólks af erlendum upp­runa

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar

Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu

Myndband
Menning

Luthers­son frum­sýnir blóð­uga ást­ar­sögu í eyði­mörk Kali­forníu