Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Dísella Lárusdóttir: „Ég nennti ekki að láta fólk segja mér hvað ég mætti“

Dísella Lárusdóttir: „Ég nennti ekki að láta fólk segja mér hvað ég mætti“
Dísella Lár­us­dóttir Mynd: Kazuma Takigawa – búið er að klippa myndina til

Dísella Lár­us­dóttir hefur í mörg ár starfað hjá Metropolit­anóp­eru­hús­inu í New York og fékk í vor ásamt Grammy-verð­laun ásamt sam­starfs­fólki fyrir upp­setn­ingu Metropolitan-óper­unnar á verki Philips Glass, Akhnaten. Dísella hefur þó mest verið heima frá því að Covid-far­ald­ur­inn skall á og hér býr fjöl­skyldan. Í við­tali við Reyni Trausta­son talar hún meðal ann­ars um tón­list­ina, verð­launin, ráð­legg­ing­inum sem hún vildi ekki fara eftir og skrýtna tíma­bilið.

Hjördís Elín Lár­us­dóttir; betur þekkt sem Dísella: Óperu­söng­konan sem hefur staðið á svið­inu úti í hinum stóra heimi og tekið þátt í ævin­týrum fyrir framan áheyr­endur ólst upp í Mos­fellsbæ, dóttir Sigríðar Þor­valds­dóttur leikkonu og Lárusar Sveins­sonar tón­list­ar­manns. tTompet­leik­ara. Syst­urnar eru þrjár: Hún, Ingi­björg og Þórunn.

Dísella Lár­us­dóttir

„Við hlæjum oft að því að við fengum ekki snuð; við fengum munn­stykki,“ segir Dísella en þær systur lærðu á trompet og það er elsta barn Dísellu, son­ur­inn Bjartur Lárus, farið að gera. „Hann er kom­inn með fram­tenn­urnar þannig að hann er kom­inn á trompet. Eins mun fara fyrir hinum börn­unum mínum. Þau munu öll fara á trompet. Það er gott að læra að lesa nótur, læra músík og vera í skóla­hljóm­sveit. Mér finnst það vera gott og heil­brigt fyrir börn að læra þetta.“ Jú, Dísella var í skóla­hljóm­sveit og spil­aði þar á trompetið sitt. Svo fór hún að læra á píanó.

Hún var und­ir­leik­ari hjá Reykja­lund­arkórnum á sínum tíma, þar sem faðir hennar var stjórn­andi, og þegar kór­fé­lagar sungu lag þar sem ekki var kraf­ist und­ir­leiks söng Dísella sópran­rödd. Faðir hennar sagði að hún væri með fína rödd og að hún ætti að læra söng. „Þannig að ég fór að læra söng.“

Faðir hennar lést svo árið 2000. „Hann var ekki nema 58 ára gam­all. Það var mikið sjokk fyrir okkur. Hann var mjög hraustur að við héldum. Þetta var mjög skyndi­legt. Hann eig­in­lega datt niður á fimmtu­degi og var dáinn á þriðju­degi. Hann vakn­aði aldrei. Hjarta­á­fall.“

Dísella ákvað að leggja söng­inn fyrir sig. „Ég var byrjuð að syngja með Gunnari Þórð­ar­syni á Broadway sem var dásam­legur tími. Alveg hrika­lega skemmti­legt. Ég segi stundum að það sé svo­lítið þeim tveimur að kenna, það voru Gunnar Þórðar og pabbi sem ýttu mér út í þetta. Pabbi var svo hvetj­andi og svo var Gunnar að gefa mér vinnu sem söng­konu. Það var lyk­il­at­riði í þessu öllu saman. Ég var til 2002 að mig minnir á Broadway og tók þátt í söngvakeppn­inni tvisvar, hvort sem það var bak­rödd eða til að taka þátt í keppn­inni sjálf, og kynnt­ist æðis­legu fólki. Þetta var mjög skemmti­legt tíma­bil. Ég ákvað síðan að fara alveg út í klass­íska söng­inn. Ég ætl­aði mér alltaf að fara til Aust­ur­ríkis eins og pabbi hafði gert. Það var draum­ur­inn. Líka upp á tungu­málið. Og ég fór í inn­töku­próf. Ég hafði aldrei upp­lifað ofnæmi en dag­inn sem inn­töku­prófið var haldið var ég algjör­lega radd­laus. Það kom ekki píp út úr mér. Ég mætti samt en þetta var allt fer­lega óþægi­legt. Þetta var ein­hvers konar barka­bólga. Ég komst ekki inn í skól­ann sem var allt í lagi. Ég fór þá til Ameríku en ég var algjör bjáni að reyna ekki aftur. Það var bara hugs­un­ar­hátt­ur­inn þá. Ég mögu­lega skamm­að­ist mín og skildi ekki hvað hafði gerst og var hrædd um að þetta myndi ger­ast aftur.

Ég end­aði á að fara til Banda­ríkj­anna í nám sem kost­aði fullt af pen­ingum og ég er ennþá að borga. En fyrir vikið end­aði ég á að vera í Banda­ríkj­unum og fara þessa leið að fara í Metropolit­ankeppn­ina og komst þar inn.“

Dísella fékk þá fyrsta samn­ing sinn við Metropolitan-óperu­húsið sem var stað­geng­ils­samn­ingur. „Það var ein­hver önnur ráðin en ég var til vara. Þannig eru allar sýn­ingar á Met. Ég fékk þetta stað­geng­ils­hlut­verk fyrir Philip Glassóp­er­una Satya­graha og er hlut­verkið sópran­hlut­verkið í þeirri óperu. Við gerðum þá óperu og svo átti að gera hana nokkrum árum seinna og þá vildu þeir heyra í mér aftur. Þá var ég búin að eign­ast Bjart.“

Tæki­fær­unum fjölg­aði og talar Dísella um óperu­söng­konu sem átti að koma fram í einni óper­unni og átti Dísella að vera til vara. „Það vill svo til að stjórn­and­inn var búinn að nefna nokkrum sinnum við stelpuna, sem ég var stað­geng­ill fyrir, að hún lag­aði eitt­hvað en hún lag­aði það aldrei. Hann var orð­inn svo­lítið ergi­legur við hana og okkur var svissað; ég fékk hlut­verkið og eftir það fór ég að fá meira að gera. Ég þurfti alveg að vinna mig upp stig­ann. Kannski minni hlut­verk.“

Hlut­verkin eru mun fleiri.

Og svo var það Garsenda.

„Debutið mitt var Garsenda í Francesca da Rimini eftir Zandonai. Það er flott hlut­verk en ekki aðal­hlut­verkið. Ég var að taka að mér minni hlut­verk þangað til ég fór í prufu og eftir það fékk ég að verða stað­geng­ill sem Lulu sem er tit­il­hlut­verk og eftir að ég söng það þá var ég allt í einu komin í aðeins þyngri hóp.“

Ofar í röð­inni.

„Já.

Grammy-verðlaunin

Lulu.

„Þetta áttu að vera átta sýn­ingar og það voru tvær sýn­ingar lausar fyrir stað­gengil­inn.“ Hún seg­ist hafa verið mjög spennt. Svo var hringt í Dísellu í árs­lok 2018 og var henni tjáð að það yrðu bara fimm sýn­ingar á Lulu. „Það var búið að kippa mínum tveimur sýn­ingum út. En sem mála­miðlun af því að þeir vildu ekki að ég yrði fúl þá ákváðu þeir að bjóða mér annað hlut­verk. Ég var fer­lega svekkt af því að Lulu er svo flott hlut­verk.“ Henni var boðið hlut­verk Queen Tye í óper­unni Akhnaten eftir Philip Glass. „Þetta var eig­in­lega bara heppni vegna þess að það átti að sýna Lulu frá jan­úar til mars 2021 en þá var Met lokað vegna Covid þannig að sýn­ingin var aldrei sett upp. Hins vegar var það Akhnaten sem við fengum Grammy-verð­launin fyrir. Þetta er hin full­komna saga um réttan tíma og réttan stað. Þannig að ég er mjög sátt eftir á að hyggja.“

Jú, Dísella hlaut Grammy-verð­launin ásamt sam­starfs­fólki fyrir upp­setn­ingu Metropolitan-óper­unnar á verki Philips Glass, Akhnaten. Verð­launin eru fyrir bestu óperu­upp­tök­una en Dísella lék burð­ar­mikið hlut­verk í óper­unni, einmitt hlut­verk Queen Tye eins og þegar hefur komið fram.

Hvernig er að vinna svona stór verð­laun?

„Þetta er bara súr­r­eal­ískt. Ég held ég átti mig ekki á því ennþá. Maður er allt í einu kom­inn inn í eitt­hvað „society“ og far­inn að fá til­kynn­ingar um hvar næstu Grammy-verð­laun verða til­kynnt. Maður er kom­inn í ein­hverja lúppu. Það er skrýtið. Það er verið að tala um mann sem kollega. Æ, ég veit það ekki. Þetta er bara súr­r­eal­ískt. Þetta er dásam­lega skemmti­legt en ég læt þetta ekk­ert stíga mér til höf­uðs. Ég er alveg með fæt­urna á jörð­inni. Mér finnst ég ekki vera búin að sýna allt sem í mér býr þannig að ég er ennþá að reyna að bæta mig.“

Fussaði við þessu

Dísella er spurð hvort hún hafi snúið bak­inu við dæg­ur­lög­unum þegar hún varð klass­ísk söng­kona.

„Mér var ráð­lögð alls konar vit­leysa þegar ég var í skóla. Þetta var fyrir allar þessar bylt­ingar eins og MeeToo. Heim­ur­inn er búinn að brey­ast svo svaka­lega; ég tala nú ekki um eftir Covid. Á þessum tíma var mér ráð­lagt að tala ekki um það ef ég ætti mann og tala ekki um að ég vildi fjöl­skyldu.“

Það var verið að gera út á kvení­mynd­ina. „Algjör­lega. Ég fuss­aði við þessu; ein­hver íslensk remba í mér. Og ég tók ekki þátt í þessu. Ég eign­að­ist barn þegar ég var að byrja minn frama og var opin­ber­lega gift og tók son minn með mér hvar sem ég söng.“ Eig­in­mað­ur­inn á þeim tíma var Teddy Kernizan en þau Dísella skildu síðar. Lárus Bjartur, sem er 12 ára, er sonur þeirra. „Við erum ennþá í góðu sam­bandi og erum „coparenting“. Þetta er erfitt á milli landa en við erum að reyna að skipt­ast á.“ Sonur þeirra er önnur hver jól hjá föður sínum og segir Dísella að hann hitti föður sinn alltaf á sumrin. Maður Dísellu í dag er Bragi Jónsson og eiga þau tvö börn saman. Jökull Orri er sjö ára og Snædís Lind er að verða tveggja ára. „Með báða strák­ana var með­gangan ekk­ert mál en svo kom stelpan. Ég veit ekki hvort það sé af því að hún er stelpa eða af því að ég er aðeins eldri; ég gat ekki setið síð­ustu þrjá mán­uð­ina. Ég varð ýmist að standa eða liggja. Það var mjög erfitt. Ég er vön að eiga við brjósklos og yfir­leitt þegar ég fæ verk í bakið þá fer ég út að labba og labba verk­inn af mér en í þetta skipti var þetta ekki það. Þetta var ein­hver tauga­verkur og hann versn­aði með því að ganga. Ég vissi það ekki fyrr en ég fór til sjúkra­þjálf­ara að ég væri að gera þetta verra með því.

Aftur að tón­list­inni og ráð­legg­ing­unum. „Mér var líka ráð­lagt að hætta öllu þessu popp­standi þannig að þegar ég fékk ein­hver gigg hérna heima svo sem jólatón­leika þá þurfti ég alltaf að passa upp á að vera mjög klass­ísk. Þetta var mjög kjána­legt af því að í dag og miðað við hvernig heim­ur­inn er orð­inn þá sýnir þetta fjöl­breyti­leika; að maður geti sungið pott og klassík. En á þessum tíma var mér ráð­lagt að gera þetta ekki af því að ég yrði aldrei tekin alvar­lega sem óperu­söng­kona ef ég væri að syngja eitt­hvað popp til hliðar.“

Dísella tók þátt í Eurovi­son árið 2006 og söng þá lagið Útópía. „Þetta var mjög skondið af því að kenn­ar­inn minn var alltaf að sýna öðrum nem­endum þetta mynd­band af mér að syngja Útópíu af því að hún var að dást að radd­tækni minni. En samt mátti ég ekki stæra mig af þessu af því að þetta var popp­söngur og þá var ekki hægt að taka mig alvar­lega. Hvert sem ég fór var ég alltaf beðin um að taka þetta lag,“ segir Dísella og nefnir mat­ar­boð í Perú þar sem hún söng það án und­ir­leiks. „Þetta er skemmti­legt lag og vakti greini­lega lukku.“

Þú er í óperu­söngnum í dag en ertu farin að taka ein­hver gigg sem eru dæg­ur­lög?

„Ég er farin að gera það núna. Ég ákvað á ein­hverju tíma­bili – Covid hefur kannski hjálpað til líka – að ég nennti þessu ekki lengur; ég nennti ekki að láta fólk segja mér hvað ég mætti og hvað ég mætti ekki.“

Hún segir að sér finn­ist vera gaman að syngja popp.

Hvað er í upp­á­haldi hjá þér í popp­inu? „Kannski ekki popp,“ segir hún. „Þetta er meira djass. Það er ekk­ert sér­stakt. Það er fal­leg lag­lína og fal­legur texti. Því ein­læg­ara því betra. Einhver svona hlý­legur texti.“

Dúndrandi krítík

Dísella hefur mest verið á Íslandi eftir að Covid-heims­far­ald­ur­inn skall á. Hvað ertu að fást við í dag?

„Ég er á svo­lítið skrýtnu tíma­bili núna. Ég var hérna heima í Covid sem var dásam­legt og ég var orðin góðu vön að fá allt í einu að vera heima. Mér fannst það dásam­legt. Ég velti því jafn­vel fyrir mér hvort þetta væri nýja lífið mitt – að hætta þessu gauli og vera bara til staðar fyrir börnin.“ Svo fékk Dísella Grammy-verð­launin í vor og söng aftur í sýn­ing­unni og seg­ist hún hafa fengið dúndr­andi krítík. „Það var rosa­lega hvetj­andi þannig að ég er aftur að hugsa um að halda þessu aðeins áfram og sjá hvað ger­ist. Ég er ekki mjög dríf­andi í að sækja mér atvinnu­tæki­færi.“

Hún talar um að heim­ur­inn sé mjög skrýt­inn núna. „Ég var að vinna hjá Met í vor. Og það var nýtt fólk í öllum hornum þar. Fólk hætti bara. Og þetta er ekki eina húsið sem er þannig. Það voru margir sem gáfust upp. Ég var ekki sú eina sem sat heima hjá mér; það er annað í líf­inu en þetta stress í gegnum þennan brjál­aða óperu­heim.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Menning

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Nýtt bóka­for­lag vill efla íslensku­lestur meðal fólks af erlendum upp­runa

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar

Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu

Myndband
Menning

Luthers­son frum­sýnir blóð­uga ást­ar­sögu í eyði­mörk Kali­forníu