Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Alicia Fall frá Her Many Voices – Fann sína köllun er hún hitti konu og börnin hennar ellefu

Alicia Fall frá Her Many Voices – Fann sína köllun er hún hitti konu og börnin hennar ellefu
Alicia Fall

Hamp­fé­lagið stendur á bak­við HAMPKASTIÐ sem eru umræðu­þættir í hljóði og mynd og fjalla að sjálf­sögðu um HAMP.  Þátta­stjórn­endur eru stjórn­ar­menn Hamp­fé­lags­ins Sigurður Hólmar og Þórunn Þórs. Gunnar Dan Wiium sér um úrvinnslu og frétt­ar­skrif og Sigfús Ótt­ars­son um tækni­mál.  Gestir þátt­ar­ins verða bæði íslenskir og erlendir sér­fræð­ingar á sínu sviði um nýt­ingu hamps. 

Nýjasti gestur Hamp­kasts­ins er Alicia Fall sem er stofn­andi Her Many Voices sem er sam­fé­lags­verk­efni í Banda­ríkj­unum þar sem frum­byggjum er hjálpað til að hjálpa sér sjálfum.

Tekið skal fram að við­talið fór fram á ensku.

Hennar mörgu raddir

Alicia er fædd í New York og en eftir þrí­tugt fór hún að flakka tals­vert milli New York og Colorado. Alica vann í tón­list­ar­brans­anum og í enda þess fer­ills fór vinna hennar mikið að snú­ast um tón­list­ar­við­burði tengdum góð­gerð­ar­málum og út frá því stofn­aði hún góð­gerð­ar­sam­tökin Her Many Voices árið 2009. Nafnið Her Many Voices vísar í móðir jörð sem Her og börn jarðar sem Voices. Áheyrslan í byrjun var á konur og börn og út frá þeirri vinnu var stofn­aður sjóður sem hefur verið hennar aðal­hlut­verk að halda utan um síð­ustu ár. 

Alicia á ættir sínar að rekja til frum­byggja N-Ameríku og er austur Bensaliki eða Cheerioki. Hún á tvær ætt­leiddar dætur sem einnig eiga rætur sínar að rekja til frum­byggja og eru þær virkir aðgerða­sinnar í mann­réttind­ar­málum í dag.

Haiti og hampurinn

Í kringum sjóð­inn starfa um 13 manns auk hinna ýmsu verk­taka og hafa höf­uð­á­herslur verið í kringum menntun og ýmis hjálp­ar­störf tengt fólki sem býr við fátækt. Eftir jarð­skjálft­ann í Haiti 2010 kynnt­ist Alicia konu þaðan sem varð til þess að sjóð­ur­inn hefur gefið mikla orku í menntun og upp­bygg­ingu á Haiti síðan. 

Um 300 hund­ruð þús­und manns lét­ust í jarð­skjálft­anum árið 2010 og hefur stór hluti fólks í Haiti búið við mat­væla- og hús­næðisó­ör­yggi síðan, sem Alicia hefur ávarpað af miklum þunga í tengslum við þeirra hjálp­ar­starf sem hefur að miklu leiti snúið að kven­mönnum í vanda eftir þessar hörm­ungar. 

Síðustu sex ár eða svo hefur hún unnið með hamp­iðn­að­inum með það að leið­ar­ljósi að skapa atvinnu, fæðu og hús­næð­is­ör­yggi á svæðum eins og Haiti því plantan býður að hennar mati upp á nán­ast óend­an­lega mögu­leika hvað þessa örygg­is­þætti varðar. Þessi þrot­lausa vinna Aliciu er farin að skila árangri eftir miklar sam­ræður og kynn­ingar hátt­settra manna í rík­i­s­tjórn Haiti því ennþá er ræktun hamps ólög­leg þar en von­ast Alicia til að það muni breyt­ast vegna þeirrar vinnu sem farið fram gegnum Her Many Voices. 

Her Many Voices hefur flutt inn til Haiti sér­fræð­inga á sviði hamps, rækt­unar og fram­leiðslu á afurðum hamps­ins til að kynna fyrir stjórn­völdum mögu­leik­ana sem fel­ast í hamp­inum með góðum árangri. Stjórn­völd Haiti fylgja að miklu leiti lög­gjöf N-Ameríku og í kjöl­far vakn­ing­arnar sem hefur átt sér stað í BNA segir Alicia að það líði ekki að löngu þar til hamp­ur­inn verður gerður lög­legur í Haiti og þá muni það koma í ljós hve mikil lyfti­stöng fyrir bugað sam­fé­lag hamp­ur­inn mun verða.

Varðandi mögu­leika hamps­ins í bygg­ing­ar­iðn­aði, hafa rann­sóknir leitt í ljós að hamp­steypan komi nokkuð vel út í jarð­skjálfta­mæl­ingum auk þess að mygla og raki þrífst ekki í hamp­steyp­unni sem er algengt vanda­mál á svæðum sem Haiti sökum raks loft­lags og mik­ils hita. Þar að auki er eðli hamp­steypunar þannig að hún ein­angrar hitan úti og geri rýmið inn­an­dyra sval­ara sem einnig er dýr­mætt á heitum slóðum. 

„Einkavæðing heimilanna“

Hemp Long house community er verk­efni sem Alicia er einnig að beina orku sinni að þessa dag­ana. Hún tal­aði um hefðir frum­byggja þar sem margar fjöl­skyldur byggju í mik­illi nálægð við hvort annað, hugs­uðu um hvort annað, studdu hvort annað eins og stór fjöl­skylda eða ætt­bálkur sem er drifið áfram af tengslum við hvort annað og sam­eig­in­legri vel­ferð. Hún vill meina að þetta er það sem okkur nútíma fólki vantar í tengsl­arofnum heimi þar sem mikil áhersla er lögð á sjálf­stæði ein­stak­lings­ins og sjálfs­bjarg­ar­við­leitni sem getur farið of langt og fyrir vikið hætt að sinna sínum til­gangi því það skapi tengsla­rof við sam­fé­lagið með til­heyr­andi þján­ingu. 

Alicia segir að sam­fé­lags­vandi okkar í dag bygg­ist á þessu, þess­ari „einka­væð­ingu“ og því séu svokölluð Long house concept ekki bara ákjós­an­leg heldur nauð­syn­leg til að sam­eina okkur, fara til baka í rætur sam­fé­lags­ins. Verk­efnið myndi þá snú­ast um að mennta og færa fólk saman í þekk­ingu hamps­ins allt frá fræi til afurðar og fram­leiðslu. Sigurður sagði henni frá því hvernig þar til fyrir ekki svo mörgum öldum eða ára­tugum síðan hafi íslend­ingar einnig búið saman á þennan hátt. Fólk bjó saman í nátt­úr­legum bursta­bæjum og safn­að­ist saman í bað­stofum þar sem fólk borð­aði saman, söng og kvað vísur, fólkið fékk hita af hvort öðru og treysti á þessi tengsl allt frá unga­börnum til gam­al­menna.

Fann sína köllun

Sigurður spurði Aliciu hvað það hefði verið sem kveikti áhuga hennar á hampi og mögu­leikum plönt­unar. Alicia seg­ist hafa upp­lifað vissa opin­berum þegar eitt sinn hafi hún hitt fyrir konu sem bjó í hjalli sem sam­an­stóð af gömlum báru­járns­plötum og gömlum greinum. Þar bjó þessi kona með sín ell­efu börn við sára fátækt. Alicia hugs­aði með sér að eng­inn eigi að þurfa að búa við svo sáran kost og það væri svo margt hægt að gera til að sporna við og stíga úr þess­ari fátækt og þessu von­leysi. Hún hugs­aði með sér hvað væri best eða ákjós­an­leg­ast fyrir þessi svæði að nota til upp­bygg­ingar á sjálf­bærum inn­við. 

Á þeim tíma var kanna­bis nýlega orðið lög­legt í Colorado þar sem hún bjó mest af tím­anum. Einn af stjórn­ar­með­limum Her Many Voices var i hamp­ræktun og hann kynnti Alicu fyrir fólki sem byggði hús úr hamp­steypu. Hún sótti nám­skeið í hamp­steypu og segir að um leið og hún setti hend­urnar í blauta hamp­steypuna, var sem hún öðl­að­ist skyndi­lega vissu um að hamp­ur­inn væri klár­lega það sem hún hefði verið að leita að, hún fann sína köllun.

Hampurinn er mjög fyrirgefandi

Alicia stopp­aði á Íslandi á leið til Amster­dam þar sem hún mun halda fyr­ir­lestra á ráð­stefnu um sjálf­bæran lífstíl. Fyr­ir­lestrar hennar munu fjalla um hamp og mannúð og einnig mun hún fjalla um gríð­ar­legt skóg­ar­högg á Haiti, sem þar fyr­ir­finnst, ásamt skóg­ar­höggi í Suður Ameríku sem er gríð­ar­lega alvar­leg umhverf­isógn. Til að kjarna boð­skapin hennar niður þá snýst hann um sam­fé­lags og nátt­úru­legt jafn­rétti. 

Alicia hélt nýverið Ted-fyr­ir­lestur þar sem hún sagð­ist heyra oft þessa spurn­ingu „hver er ég?“ og hún vill meina að við frekar ættum að vera spyrja okkur hver erum við, sýnum öðrum áhuga og vænt­um­þykju, virkjum þessa sam­kennd sem heldur sam­fé­lag­inu saman. Heldur hún því fram að lítil skref eins og hún sé að taka geti haft gríð­ar­leg áhrif sem ekki má gera lítið úr. 

Varðandi hamp­inn og kolefn­is­bind­ingu segir Alica und­ar­legt að öll þessi áhersla um allan heim sé á ræktun trjáa í tengslum við kolefn­is­bind­ingu. Tré vaxa hægt og tím­inn milli 10 og 150 ára þar sem tré af öllum gerðum og stærðum geta farið að binda kolefni að ein­hverju ráði. Hins­vegar með hamp­inn sem er búið að sverta og hefur verið ólög­legur í ára­tugi vex í sína fullu stærð á aðeins nokkrum mán­uðum og er að binda allt að tutt­ugu sinnum meira af kolefnum en hefð­bundin tré. Ekki nóg með hreinsun loft­ins sem hamp­ur­inn fram­kallar þá er hamp­p­lantan þannig að hún hreinsar jarð­veg­inn sem við mann­fólkið erum einnig búin að menga gríð­ar­lega með alls­konar kemískum efnum, hamp­ur­inn ein­fald­lega drekkur í sig nán­ast alla mengum og vinnur úr henni á nátt­úru­legan hátt af miklum krafti. Plantan er afar fyr­ir­gef­andi og hjálpar okkur mönn­unum að rétta úr þeim skaða sem við höfum valdið móðir jörð. 

Þennan upp­lýsandi og kær­leiks­ríka þátt má sjá í heild sinni á spil­ar­anum hér fyrir neðan áamt að Hamp­kastið finnst á öllum helstu streym­isveitum. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Menning

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Nýtt bóka­for­lag vill efla íslensku­lestur meðal fólks af erlendum upp­runa

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar

Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu

Myndband
Menning

Luthers­son frum­sýnir blóð­uga ást­ar­sögu í eyði­mörk Kali­forníu