Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Sunna var flogaveik áður en hún kynntist CBD:„Var alltaf að fá tvö, þrjú stór köst á mánuði“

Sunna var flogaveik áður en hún kynntist CBD:„Var alltaf að fá tvö, þrjú stór köst á mánuði“
Sunna dóttir Sigurðar Mynd: Aðsend

Hamp­fé­lagið stendur á bak­við HAMPKASTIÐ sem eru umræðu­þættir í hljóði og mynd og fjalla að sjálf­sögðu um HAMP.  Þátta­stjórn­endur eru stjórn­ar­menn Hamp­fé­lags­ins Sigurður Hólmar og Þórunn Þórs. Gunnar Dan Wiium sér um úrvinnslu og frétta­skrif og Sigfús Ótt­ars­son um tækni­mál.  Gestir þátt­ar­ins verða bæði íslenskir og erlendir sér­fræð­ingar á sínu sviði um nýt­ingu hamps.

Nýjasti gestur Hamp­kasts­ins er Sigurður Hólmar Jóhann­es­son sem er for­maður Hamp­fé­lags­ins og eig­andi Ozon sem rekur Hempli­v­ing og Gott CBD. Sigurður er einnig faðir Sunnu Valdísar sem greind­ist sem unga­barn með einn sjald­gæfasta tauga­sjúk­dóm sem fyr­ir­finnst, AHC. Líkurnar á að grein­ast með sjúk­dóm­inn er 1 á móti milljón.

Sigurður umkringdur kanna­bis-plöntum.

Siggi eins og hann er kall­aður seg­ist ekk­ert hafa verið að spá í neinu hvað við­kemur hampi eða Kannabis fyrstu fjöru­tíu ár ævi sinnar. Eftir að dóttir hans Sunna Valdís greind­ist með sinn sjúk­dóm var þeim sagt að með árunum myndi sjúk­dóm­ur­inn batna en það varð svo ekki raunin, hún í raun versn­aði bara eftir því sem árunum leið. Engin lækn­ing eða lyf voru í boði fyrir sjúk­dóm Sunnu og fór því Siggi á stúf­ana í leit að ein­hverju sem gæti linað þján­ingar hennar. 

Í kringum 2012 þá fer Siggi að kynna sér hvað væri í boði á pub­med.gov, þar fann hann eitt­hvað sem hann hafði aldrei heyrt um áður en það var CBD, og í því sam­hengi fór hann að sjá það aftur og aftur nefnt í sam­bandi við floga­veiki. Eitt af aðal ein­kennum AHC sjúk­dóms­ins eru einmitt floga­köst og þar af leið­andi end­aði hann alltaf þar hvað varðar mögu­leg úrræði. Hann við­ur­kennir að hafa verið ragur við að fara þessa leið.

„Þegar Sunna sjö ára, sem var 2013, fór hún að fá floga­köst, sem hún hafði ekki fengið áður. Þá mundi ég eftir þessu CBD sem var alltaf verið að tala um að gæti hjálpað gegn floga­köstum. Ég fór eitt­hvað að skoða þetta betur en var samt svo­lítið ragur við þetta af því að kanna­bis fyrir mér var bara eit­ur­lyf,“ sagði Siggi og sagði að þegar hann hafi verið í grunn­skóla hafi honum verið kennt að kanna­bis væru bara eit­ur­lyf. „Þú tekur kanna­bis í dag og kókaín á morgun og svo ertu farin að sprauta þig á þriðja degi,“ sagði Siggi.

Árið 2017 voru floga­köstin hennar Sunnu orðin tíð og lífs­hættu­leg í hvert skiptið. Siggi tók ákvörðun í kjöl­farið að ferð­ast til Banda­ríkj­anna þar sem hann heim­sótti fyr­ir­tæki sem heitir Charlotte´s Web sem hefur verið leið­andi í ræktun á THC-fríum hampi. Siggi fór með eig­endum þessa fyr­ir­tækis í gegnum allt ferlið varð­andi ræktun og vinnslu hamps­ins og að þess­ari heim­sókn lok­inni fer Siggi aftur heim til Íslands og tók hann með sér nokkrar flöskur sem hann byrj­aði að gefa Sunnu. Á aðeins nokkrum vikum fækk­aði floga­köst­unum þar til að þau hættu alveg og hefur hún verið laus við floga­köstin síðan. „Það magn­að­asta við þetta er að hún hefur ekki fengið eitt ein­asta kast síðan. Hún var alltaf að fá tvö, þrjú stór köst á mán­uði áður.“

Siggi og Sunna á góðum degi.

Sigurður nefnir í þessu sam­hengi van­mátt hins hefð­bundna heil­brigð­is­kerfis á svo mörgum sviðum og segir hrein­lega að sé verið kerf­is­bundið að brjóta á fólki með kvilla með óígrund­uðum lyfja­gjöfum sem oft á tíðum gera meiri skaða en gagn. Hann segir að ECS kerfið sé almennt ekki kennt í háskólum í heim­inum í dag sem er í raun alveg galið vill hann meina. 

Þegar hann talar um ECS kerfið er átt við Endocannabinoid system, skamm­staf­ast sem ECS. Á íslensku myndi það þýð­ast sem Endokannabínóða­kerfið og því skamm­staf­ast sem EKK. Kerfið sem um ræðir er flókið merkja­kerfi frá fru­munum sem sam­anstendur af endókannabínóðum, ens­ímum og kannabínóða-mót­tökum, sem hafa stjórn á ýmissi starf­semi í manns­lík­am­anum. Ber að nefna í þessu sam­hengi hjálp við svefn, lund, mat­ar­lyst og melt­ingu, minni, bólgu­myndun, húð­vanda­mál, end­ur­heimt og frjó­semi. Þessar flóknu teng­ingar finn­ast í heil­anum, vefjum og kirtlum og í öllum aðal líf­færum okkar. 

Kerfið var upp­götvað af Tékk­neskum vís­inda­manni árið 1992 í Ísrael og við þessa upp­götvun komust vís­inda­menn að því að lík­am­inn fram­leiðir sína eigin kannabínóða í marg­vís­legum til­gangi sem kerfið, ECS er hannað til að taka á móti. 

Siggi talar um hvernig við­horf fólks í sam­fé­lag­inu hafa breyst stór­kost­lega og þá einna helst eftir stofnum Hamp­fé­lags­ins árið 2019. Hann segir að mikil vit­und­ar­vakn­ing hafi átt sér stað þó svo að hann vilji einnig meina að langt sé í land og þá einna helst í sam­bandi við lög­gjafir og reglu­gerðir og er þörfin brýn hvað varðar aðgerðir að hálfu lög­gjafa­valds­ins. 

Siggi talar um byrj­enda ár Hamp­fé­lags­ins og segir að það hafi ekki verið neitt mál að stofna sjálft félagið og fá kenni­töl­una en að það hafi verið smá ævin­týri að þegar koma að því að stofna banka­reikn­ing. Hann labb­aði inn í Lands­bank­ann og seg­ist ætla stofna banka­reikn­ing á nýtt félag, afgreiðslu­konan sagði það bara sjálf­sagt og tekur við papp­ír­unum. Hún gjóir eitt­hvað yfir papp­írana og verður hálf skrítin á svip­inn og fer afsíðis með papp­írana og kemur svo löngu seinna með papp­írana og segir, “nei því miður, við getum ekki stofnað við­skipti við ykkur”. Siggi spurði hana hvernig stæði á því og hún byrj­aði bara að stama og sagði að þau væru ekk­ert að standa í neinu svo­leiðis. Svo þannig fór að Lands­bank­inn vildi ekki stofna til við­skipta við Hamp­fé­lagið sem eru bara hefð­bundin félaga­sam­tök. En þessi saga er einmitt lýsandi fyrir for­dómana sem hamparar hafa mátt að verða fyrir á leið sinni. 

Siggi seg­ist alveg skilja út á hvað þessir for­dómar snú­ast um, hann hafi sjálfur þurft að glíma við þessar hug­myndir og for­dóma í langan tíma áður en hann svo tók ákvörðun um að gefa dóttur sinni olíu.

Sunna

Hann segir að margt sé búið að breyt­ast og í raun sé staðan sú að ræktun á iðn­að­ar­hampi er lög­leg en Ísland sé að bíða eftir Evr­ópu­reglu­gerð í málum hamps­ins til þess að leyfa CBD sem mat­væli. Honum finnst það skrítið þar sem við séum ekki í Evr­ópu­sam­band­inu og gætum því búið til okkar eigin lög­gjöf og staðla. Ef við horfum til Evrópu sjáum við í málum sem snúa að krabba­meins­með­ferðum þjóðir eins og Þýska­land þar sem krabba­meins­sjúk­lingum er ávísað kanna­bis sam­hliða hefð­bundnum krabba­meins­með­ferðum og með mjög góðum árangri. Sigga finnst einmitt við hér á Íslandi ekki nógu góð í að nýta okkur reynslu ann­arra stór­þjóða sem virð­ast vera 20-30 árum undan í umgengni við kanna­bis. 

Í þessu ljósi má benda á að Þýska­land ætlar að lög­leiða allan kanna­bis árið 2024.

Mögu­leikar plönt­unar segir Siggi vera óend­an­lega, því meira sem hann kynnir sér plönt­una því meira upp­götvar hanna að í henni fel­ast gríð­ar­legir mögu­leikar hvað varðar líð­heilsu á öllum sviðum sem og auð­vitað klárt hrá­efni fyrir alls­konar mann­virki og aðra hluti sem fram­leiddir eru úr hampi út um allan heim. 

Siggi starf­aði sem flug­um­ferð­ar­stjóri í 27 ár og elskaði þá vinnu. Örlögin tóku yfir og álagið að ann­ast svona rosa­lega veikt barn tók sinn toll. Hann seg­ist hrein­lega hafa rek­ist á vegg og neydd­ist til að skilja við sinn far­sæla feril sem flug­um­ferð­ar­stjóri og leita á önnur mið. 

Ásamt því að stofna Hamp­fé­lagið saman með öðru góðu fólki rekur hann fyr­ir­tækið Ozon ehf sem býður uppá hamp­vörur með vöru­merkj­unum Hempli­v­ing og gæða­stimpl­inum Gott CBD. 

Ozon flytur inn og selur hamp­vörur um allt land í apó­tekum og versl­unum. 

Samhliða því stofn­aði hann fyr­ir­tækið Mobility sem sér­hæfir sig í hjálp­ar­tækjum fyrir fatl­aða sem hann komst að eftir ára­lagt brölt með dóttir sinni að voru ein­fald­lega ekki í boði á íslenskum mark­aði. 

Hjálp­ar­tækin sem nefnir hann í því sam­hengi hjóla­stóla sem voru bæði allt of dýrir og úrvalið frekar tak­markað og því vildi hann breyta og úr því spratt Mobility sem selja í dag fjöl­brett úrval af hjálp­ar­tækjum á verðum sem aldrei hafa verið í boði fyrr á Íslandi. 

Siggi stofn­aði einnig með góðu fólki Góðvild sem er góð­gerða­fé­lag sem vinnur fyrir lang­veik og fötluð börn á Íslandi og hefur Góðvild gefið af sér gríð­ar­lega orku til þessa mála­flokks sem virt­ist alltaf mæta afgangi í sam­fé­lags­um­ræðu. Til að stuðla að vit­und­ar­vakn­ingu í þeim efnum setti Góðvild af stað sjón­varps­þætti sem heita Spjallið með Góðvild þar tekið var vel utan um þennan mála­flokk. Teknir voru upp 60 þættir sem nálg­ast má á Vísi, Youtube og god­vild.is þar sem spjallað var við for­eldra lang­veikra barna, þing­menn, ráð­herra, sér­fræð­inga og börnin sjálf og þeim gefin rödd sem fram að þessu hafði ekki fengið að heyr­ast. 

“Ég hvet fólk til að skoða plönt­una, fræð­ast um hana. Kíkja inn á Hamp­fé­lagið og skoða fyr­ir­estrana sem voru haldnir af sér­fræð­ingum á ráð­stefnu Hamp­fé­lags­ins árið 2019.”

Fjöldin af fólki sem mætti í troð­fullt hús í stóra salnum á Grand hótel þegar ráð­stefnan var haldin sýndi okkur það hvað margir það eru sem hafa áhuga á plönt­unni. Síðan þá hefur áhugin samt sem áður bara verið að vaxa og fyr­ir­spurnir ber­ast dag­lega til Hamp­fé­lags­ins frá krökkum í mennta­skólum og háskólum sem eru að vinna hin og þessi verk­efni tengd hamp­inum og því má búast við veld­is­auknum áhuga á hamp­inum og þeim 130 þekktra Kannabínóða með nýrri upp­lýstri  kyn­slóð og það vekur upp von um þær nauð­syn­legu breyt­ingar hvað varðar líð­heilsu og nátt­úr­legra lausna við hinum og þessum kvillum sem hið hefð­bundna heil­brigð­is­kerfi hefur oft á tíðum mis­tek­ist að leysa.

Í lokin segir Siggi að nauð­syn­legt þyki að lög­leiða CBD sem og alla kannabínóð­ana sem fæðu­bót­ar­efni en ekki bara sem húð­vöru. Hann segir að það sé áherslu­mál og í raun óum­flýj­an­legur veru­leiki sem ekk­ert fær spornað við.

Þetta upp­lýsandi við­tal má sjá á spil­ar­anum hér fyrri neðan auk þess að finn­ast á öllum helstu streym­isveitum.  Einnig má benda á auð­velt er að skrá sig í Hamp­fé­lagið á hamp­felagid.is og fá þar reglu­lagar til­kynn­ingar á því sem er að ger­ast í hamp­brans­anum á Íslandi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Menning

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Nýtt bóka­for­lag vill efla íslensku­lestur meðal fólks af erlendum upp­runa

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar

Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu

Myndband
Menning

Luthers­son frum­sýnir blóð­uga ást­ar­sögu í eyði­mörk Kali­forníu